Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Blaðsíða 71
71
15. mál kirkjuþings 2017
Flutt af löggjafarnefnd
Tillaga
til þingsályktunar um frumvarp til laga um úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar
Kirkjuþing 2017 beinir þeim tilmælum til dómsmálaráðherra að flutt verði eftirfarandi
frumvarp til laga um úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga um stöðu,
stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997.
Frumvarp til laga um úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar
I. kafli. Hlutverk, aðild og skipan úrskurðarnefndar
Hlutverk
1. gr.
■Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar, sbr. 23. gr. þjóðkirkjulaga, skal úrskurða í kærumálum vegna
ágrein ings á kirkjulegum vettvangi eða þegar embættismaður, starfsmaður eða trúnaðar maður
þjóð kirkjunnar á Íslandi er borinn sökum um siðferðis- eða agabrot eða annað brot í starfi.
□Úrskurðarnefndin fjallar ekki um málefni sem varðar setningu, skipun og lausn frá embætti
eða starfslok á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
□Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar er sjálfstæð í störfum sínum.
Aðild
2. gr.
■Hver sá sem hagsmuna á að gæta getur borið mál undir úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar
eftir því sem mælt er fyrir um í lögum þessum.
Nefndarskipan
3. gr.
■Ráðherra, sem fer með málefni þjóðkirkjunnar, skipar þrjá menn í úrskurðarnefnd
þjóðkirkjunnar til fjögurra ára í senn. Hæstiréttur Íslands tilnefnir tvo nefndarmenn og
skulu þeir uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara, sbr. 12. gr. laga um dómstóla, nr.
15/1998. Biskup Íslands tilnefnir einn nefndarmann og skal hann hafa þekkingu og reynslu
af málefnum þjóðkirkjunnar. Sama gildir um varamenn þeirra. Úrskurðarnefndin velur
sér sjálf formann og skal hann vera annar þeirra sem Hæstiréttur tilnefnir. Sama gildir um
varaformann. Nefndarmenn skulu ekki vera fastráðnir starfsmenn þjóðkirkjunnar.
□Úrskurðarnefnd er heimilt að fara þess á leit við ráðherra að hann skipi tvo sér fróða
menn við með ferð ein stakra mála. Skal annar þeirra til nefndur af Hæsta rétti en hinn af
biskupi Íslands. Þeir skulu starfa með nefndinni við undirbúning og meðferð máls eftir
ákvörðun for manns. Við til nefningu sér fróðra manna skal þess gætt að sér þekking þeirra
nýtist sem best í hlutaðeigandi máli.
□Þóknun nefndarmanna skv. 1. mgr., og eftir atvikum 2. mgr., skal greidd úr kirkjumálasjóði.