Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Side 78
78 79
16. mál kirkjuþings 2017
Flutt af kirkjuráði
Þingsályktun
um umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar
Umhverfisstefna þjóðkirkjunnar
Vísindin hafa fært sönnur á að mannkynið stendur frammi fyrir loftslagsvá sem ógnar
lífríki og vistkerfum jarðar og teflir hlutskipti komandi kynslóða í tvísýnu. Fátækt fólk á
jaðarsvæðum, frumbyggjar á pólsvæðum og íbúar strandbyggða og lálendra eyja glíma
þegar við afleiðingar loftslagsbreytinga. Takist ekki á næstu áratugum að koma fram þeirri
umbreytingu sem Parísarsamkomulag þjóðríkja kallaði á árið 2015, blasa við hamfarir um
heim allan. Þessi vandi er siðferðilegt málefni sem varðar alla.
Alkirkjuráðið og Lútherska heimssambandið hafa í þrjá áratugi látið loftslagsmál til sín
taka. Íslenska þjóðkirkjan er aðili að stefnu þeirra þar sem áréttað er að jörðin sé ekki til
sölu. Í henni felst áskorun til safnaða og leiðtoga kirkjunnar um að boða frið við jörðina,
hóf saman lífsstíl og réttláta skiptingu jarðargæða. Þar er einnig um að ræða hvatningu til
trú mennsku við þá spámannlegu köllun kirkjunnar að benda á óréttlæti, ójöfnuð, félags-
lega neyð og náttúruspjöll af mannavöldum.
Lífið og tilveran öll er sköpunarverk Guðs. Lífið er heilagt og hefur eigið gildi. Manneskjan
er hluti af náttúrunni en ekki yfir hana hafin. Hún ber jafnframt sérstaka ábyrgð vegna
stöðu sinnar í sköpunarverki Guðs samkvæmt gyðing-kristinni hefð. Þeirri ábyrgð fylgir
sú siðferðilega skylda að hlú að öllu lífi. Hlutverk mannkyns er að yrkja jörðina, vernda
hana og næra, og nýta gæði hennar af umhyggju og virðingu með sjálfærni að leiðarljósi.
Einkennisorð þjóðkirkjunnar eru: Biðjandi, boðandi, þjónandi.
• Við biðjum fyrir því að allir sem á Íslandi búa vakni til vitundar um nauðsyn þess að
um breyta lífsháttum þannig að markmið í loftslagsmálum og náttúruvernd náist.
• Við boðum lífsmáta sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda, sóun orku og
matar og notkun skaðlegra umbúða.
• Við þjónum náttúrunni sem allra best öllum i hag, meðal annars með endurheimt
votlendis, skógrækt, landgræðslu og vistvænni starfsemi söfnuða kirkjunnar.
Við sem störfum í kirkjunni viljum taka höndum saman við aðrar hreyfingar og einstaklinga
sem láta sig náttúruvernd og baráttuna gegn loftslagvá varða. Samstillt átak og stuðning
almennings þarf til þess að knýja fyrirtæki og stjórnvöld til þess að standa við markmið í
loftslagsmálum og náttúruvernd.
Kirkjan lætur sig varða náttúruvernd og sýnir í orði og verki að hún tekur loftslagsmálin
alvarlega. Kirkjuráði og umhverfisnefnd kirkjunnar er falið að fylgja umhverfisstefnunni
eftir með aðgerða- og starfsáætlun sem sé fjármögnuð. Markmiðið er að vekja starfsólk og
söfnuðinn til umhugsunar um náttúruna og náttúruvernd, veita þeim úrræði til að sporna
gegn frekari loftslagsbreytingum og til að leggja sitt að mörkum.Atriði í aðgerðaráætlun
umhverfismála fyrir árin 2018-2020