Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 78

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 78
78 79 16. mál kirkjuþings 2017 Flutt af kirkjuráði Þingsályktun um umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar Umhverfisstefna þjóðkirkjunnar Vísindin hafa fært sönnur á að mannkynið stendur frammi fyrir loftslagsvá sem ógnar lífríki og vistkerfum jarðar og teflir hlutskipti komandi kynslóða í tvísýnu. Fátækt fólk á jaðarsvæðum, frumbyggjar á pólsvæðum og íbúar strandbyggða og lálendra eyja glíma þegar við afleiðingar loftslagsbreytinga. Takist ekki á næstu áratugum að koma fram þeirri umbreytingu sem Parísarsamkomulag þjóðríkja kallaði á árið 2015, blasa við hamfarir um heim allan. Þessi vandi er siðferðilegt málefni sem varðar alla. Alkirkjuráðið og Lútherska heimssambandið hafa í þrjá áratugi látið loftslagsmál til sín taka. Íslenska þjóðkirkjan er aðili að stefnu þeirra þar sem áréttað er að jörðin sé ekki til sölu. Í henni felst áskorun til safnaða og leiðtoga kirkjunnar um að boða frið við jörðina, hóf saman lífsstíl og réttláta skiptingu jarðargæða. Þar er einnig um að ræða hvatningu til trú mennsku við þá spámannlegu köllun kirkjunnar að benda á óréttlæti, ójöfnuð, félags- lega neyð og náttúruspjöll af mannavöldum. Lífið og tilveran öll er sköpunarverk Guðs. Lífið er heilagt og hefur eigið gildi. Manneskjan er hluti af náttúrunni en ekki yfir hana hafin. Hún ber jafnframt sérstaka ábyrgð vegna stöðu sinnar í sköpunarverki Guðs samkvæmt gyðing-kristinni hefð. Þeirri ábyrgð fylgir sú siðferðilega skylda að hlú að öllu lífi. Hlutverk mannkyns er að yrkja jörðina, vernda hana og næra, og nýta gæði hennar af umhyggju og virðingu með sjálfærni að leiðarljósi. Einkennisorð þjóðkirkjunnar eru: Biðjandi, boðandi, þjónandi. • Við biðjum fyrir því að allir sem á Íslandi búa vakni til vitundar um nauðsyn þess að um breyta lífsháttum þannig að markmið í loftslagsmálum og náttúruvernd náist. • Við boðum lífsmáta sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda, sóun orku og matar og notkun skaðlegra umbúða. • Við þjónum náttúrunni sem allra best öllum i hag, meðal annars með endurheimt votlendis, skógrækt, landgræðslu og vistvænni starfsemi söfnuða kirkjunnar. Við sem störfum í kirkjunni viljum taka höndum saman við aðrar hreyfingar og einstaklinga sem láta sig náttúruvernd og baráttuna gegn loftslagvá varða. Samstillt átak og stuðning almennings þarf til þess að knýja fyrirtæki og stjórnvöld til þess að standa við markmið í loftslagsmálum og náttúruvernd. Kirkjan lætur sig varða náttúruvernd og sýnir í orði og verki að hún tekur loftslagsmálin alvarlega. Kirkjuráði og umhverfisnefnd kirkjunnar er falið að fylgja umhverfisstefnunni eftir með aðgerða- og starfsáætlun sem sé fjármögnuð. Markmiðið er að vekja starfsólk og söfnuðinn til umhugsunar um náttúruna og náttúruvernd, veita þeim úrræði til að sporna gegn frekari loftslagsbreytingum og til að leggja sitt að mörkum.Atriði í aðgerðaráætlun umhverfismála fyrir árin 2018-2020
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.