Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 19

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 19
19 og fyrirtæki slíta samskiptum við hinn seka eða oft meintan seka og á viðkomandi er ekki hlustað meira. Hún eða hann er bara vond manneskja og það borgar sig ekki að hlusta á eða eiga samskipti við þá persónu meir. Þetta gengur jafnvel svo langt að það verður samkeppni um að úthrópa einstakling, finna honum allt til foráttu, koma honum burt. Stundum heggur einnig sá sem hlífa skyldi. Er þetta í lagi. Er þetta kristinn siður? Er 8. kafli Jóhannesarguðsspjalls gleymdur? Í ár minnumst við þess að 500 ár eru síðan Lúter negldi tesurnar 95 á kirkjudyrnar í Wittenberg. Þetta var upphaf siðbótarinnar. Það er óumdeilt að hugmyndir Lúters hafa haft mikil áhrif. Ekki aðeins á kirkju og kristni heldur á vestræn samfélög. Það er líklegt að við séum sammála um að Lúter hafi verið mikilsverð persóna. En það er ekki allt geðslegt sem eftir Lúter er haft. Hefði heimurinn orðið betri ef fólk hefði slökkt á Lúter í framhaldi af því sem hann sagði um Gyðinga? Brennt öll hans skrif, hætt að lesa hann og já hent honum út af Facebook? Nú á tímum virðist lítið þurfa til að “slökkva á fólki”. Ásakanir um eitthvað misjafnt eða aðeins rangar skoðanir virðast jafnvel nægja til að einstaklingur sé afgreiddur, dæmdur úr leik á vettvangi samfélagsmiðla, í kommentakerfum og svo í fjölmiðlum sem flytja fréttir af því sem sagt var á Facebook. Væri hlustað á Lúter ef hann væri uppi á okkar tímum, eða hefði verið slökkt á honum og hann úthrópaður gyðingahatari? Það er gott að hafa háleit markmið um siðferði og vandaða framkomu. Það er ekki gagnrýnt hér. En sjálfsagt er að minna á að sá mælikvarði sem við notum til að dæma aðra er sá mælikvarði sem við ættum að nota til að vega og meta eigin frammistöðu. Ef við viljum að okkur sé sýnt umburðarlyndi þá skulum við byrja á því að sýna öðrum umburðarlyndi. Okkur skortir öll dýrð Guðs en öll erum við vitnisburður um einhvern örlítinn hluta af dýrð hans. Sköpuð í hans mynd þó aðeins sé það lítill hluti hans myndar. Það að vanvirða annað fólk og koma illa fram við það þýðir að við vanvirðum þá birtingamynd Guðs sem það fólk er. Kjarni flestra helstu trúarbragða mannkyns er samúð, samlíðan. Þau trúarbrögð kenna flest Gullnu regluna. Og auðvitað er það kjarni kristninnar að koma fram við aðra eins og við viljum að aðrir komi fram við okkur. Gullna reglan er án efa besta mótefni við þeirri tilhneigingu að afgreiða fólk með niðurlægjandi hætti. Hún er hornsteinn góðra samskipta, lykill að farsælu samstarfi. Gullna reglan er í raun það hornmát sem við ættum að nota í öllum okkar gjörðum. Karen Armstrong er rithöfundur sem þið sjálfsagt þekkið flest. Hún hefur skrifað á þriðja tug bóka um trú og trúarbrögð og haldið fyrirlestra um allan heim. Karen Amstrong hefur hlotnast margvíslegur heiður fyrir skrif sín sem eru mikils metin, ekki aðeins af kristnu fólki heldur einnig gyðingum og múslimum. Fjöldi virðulegra stofnana hafa veitt henni viðurkenningu s.s. heiðursdoktorsnafnbót Karen Armstrong hafði forgöngu um áhugavert verkefni sem er nefnt Charter for Compassion. Tilgangurinn er að fá fólk til að sýna samúð og umgangast alla samkvæmt gullnu reglunni. Það hafa margir tekið undir með henni og gengið til liðs við verkefnið. Í dag eru starfandi hópar í 50 löndum sem sinna þessu verkefni. Í þessum hópum er fjöldi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.