Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 29

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 29
29 1. mál kirkjuþings 2017 Flutt af kirkjuráði Skýrsla kirkjuráðs Inngangur Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, er forseti kirkjuráðs lögum samkvæmt. Auk biskups sitja í ráðinu fjórir fulltrúar kjörnir af kirkjuþingi til fjögurra ára, tveir leikmenn og tveir prestvígðir menn. Hinir kjörnu kirkjuráðsmenn og varamenn þeirra sitja allir á kirkjuþingi en kirkjuráð var kosið á kirkjuþingi 2014 til fjögurra ára. Þeir eru sr. Elínborg Gísladóttir, sóknar prestur í Grindavíkur-prestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi, sr. Gísli Gunnarsson, sóknar prestur í Glaumbæjarprestakalli, Húnavatns- og Skagafjarðarprófasts- dæmi, Stefán Magnússon, bóndi og Svana Helen Björnsdóttir, rafmagnsverkfræðingur og fram kvæmdastjóri. Varamenn í kirkjuráði eru Drífa Hjartardóttir bóndi, Einar Karl Haraldsson framkvæmdastjóri, sr. Geir Waage sóknarprestur og sr. Gísli Jónasson prófastur og sóknarprestur. Starfsemi kirkjuráðs Almennt Um störf kirkjuráðs fer eftir lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 svo og starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000. Þar er kveðið á um verkefni kirkjuráðs sem fer með framkvæmd þeirra sameiginlegu verkefna þjóðkirkjunnar sem lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess, m.a. af hálfu kirkjuþings, prestastefnu, samtaka leikmanna, ráðherra og Alþingis. Kirkjuráð undirbýr kirkjuþing í samráði við forseta þingsins og forsætisnefnd. Þá undirbýr ráðið þingmál sín og veitir kirkjuþingsfulltrúum sem þess óska aðstoð við framsetningu þingmála. Kirkjuráð annast almennt framkvæmd ákvarðana þingsins ef annað er ekki ákveðið af kirkjuþingi. Kirkjuráð hefur yfirumsjón með fjármálum og fasteignamálum þjóðkirkjunnar og fer með stjórn Jöfnunarsjóðs sókna, kirkjumálasjóðs og Kristnisjóðs. Ráðið úthlutar úr sjóðunum á grundvelli umsókna og fjárhagsáætlana. Í fjármálaumsýslunni felst m.a. að gera fjárhagsáætlanir og fjárlagatillögur og árita ársreikninga þeirra sjóða sem ráðið stýrir og leggur fram á kirkjuþingi. Kirkjuráðsfundir Kirkjuráð heldur fund að jafnaði einu sinni í mánuði á biskupsstofu og á þessu starfsári (kirkjuþingsárinu) hélt ráðið ellefu reglulega fundi auk fjögurra aukafunda. Forseti kirkjuþings situr fundi kirkjuráðs þegar málefni kirkjuþings eru til umfjöllunar. Vígslubiskupar sitja fundi ráðsins þegar málefni biskupsstólanna eru til umfjöllunar. Starfshópar kirkjuráðs Starfshópar kirkjuráðs eru lagahópur, fjármálahópur og kirkjustarfs- / fasteignahópur. Þeir eiga sér samsvörun í föstum þingnefndum kirkjuþings og eru skipaðir formanni
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.