Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Page 51

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Page 51
51 4. mál kirkjuþings 2017 Flutt af löggjafarnefnd Tillaga til þingsályktunar um frumvarp til þjóðkirkjulaga Kirkjuþing 2017 beinir þeim tilmælum til dómsmálaráðherra að flutt verði eftirfarandi frumvarp til þjóðkirkjulaga, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Frumvarp til þjóðkirkjulaga. I. kafli. Skilgreining og aðild. 1. gr. ■Þjóðkirkjan á Íslandi er evangeliskt lúterskt trúfélag og ber réttindi og skyldur að lögum. 2. gr. ■Skilyrði aðildar að þjóðkirkjunni er skírn í nafni heilagrar þrenningar. II. kafli. Réttarstaða þjóðkirkjunnar. 3. gr. ■Þjóðkirkjan ræður skipulagi sínu, stofnunum, embættum og valdmörkum þeirra á milli innan lögmæltra marka. □Þjóðkirkjunni ber að halda úti kirkjulegri þjónustu á landinu öllu og tryggja að allir landsmenn geti átt kost á henni. □Um stöðu þjóðkirkjunnar sem trúfélags fer samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar. □Um inngöngu í og úrsögn úr þjóðkirkjunni fer skv. 8. og 9. gr. laga um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög, nr. 108/1999, eftir því sem við getur átt. 4. gr. ■Um tengsl þjóðkirkjunnar og ríkisins fer samkvæmt lögum og þeim samningum sem eru í gildi hverju sinni milli þjóðkirkjunnar og ríkisins, sbr. og 3. mgr. 3. gr. □Samskipti þjóðkirkjunnar og ríkisstjórnar um málefni kirkjunnar skulu vera við þann ráðherra sem fer hverju sinni með málaflokk er varðar trúmál. 5. gr. ■Stjórnsýslulög, nr. 37/1993, og almennar óskráðar reglur stjórnsýsluréttar gilda þegar kirkju- leg stjórn völd taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna samkvæmt lögum þessum. Upp- lýsinga lög, nr. 140/2012, taka til starfsemi kirkju legra stjórn valda samkvæmt lögum þessum.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.