Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Blaðsíða 62
62 63
7. mál kirkjuþings 2017
Flutt af biskupi Íslands
Þingsályktun
um hlutdeild unga fólksins í kirkjustarfi og stjórn
Kirkjuþing 2017 ályktar að fylgja skuli eftir, hvað íslensku þjóðkirkjuna varðar, ályktun
tólfta þings Lúterska heimssambandsins frá árinu 2017 um þátttöku unga fólksins í stjórn
aðildarkirkna sambandsins.
Miða skal við að ungt fólk, þ.e. sem er á aldrinum sextán til þrjátíu ára, sé að jafnaði
minnst tuttugu hundraðshlutar þeirra innan hverrar skipulagsheildar þjóðkirkjunnar
sem hverju sinni taka bindandi ákvarðanir, semja áætlanir, skipuleggja starfsemi og hafa
kosningarétt.
Verði því eigi við komið að tryggja hlutdeild unga fólksins samkvæmt framanskráðu
skal veita fulltrúum þess eðlilegan rétt til áheyrnar, málfrelsis og framlagningar tillagna.
Kirkjuþing 2017 beinir því til biskups Íslands, forsætisnefndar kirkjuþings og kirkjuráðs
að fara yfir eigið skipulag og starfsemi, svo og þær nefndir og önnur fjölskipuð stjórnvöld,
nefndir og ráð sem starfa á þeirra vegum og leggja fram á kirkjuþingi 2018, eftir því sem
þurfa þykir, tillögur að nauðsynlegum breytingum á starfsreglum til að ná ofangreindum
markmiðum. Ef við á verði verklagsreglum, skráðum jafnt sem óskráðum, eða öðrum
sambærilegum heimildum breytt í sama skyni og þær breytingar kynntar kirkjuþingi 2018.