Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Page 73

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Page 73
73 8. gr. ■Að fresti liðnum skv. 7. gr. skal haldinn fundur í nefndinni með kæranda og gagnaðila þar sem kærandi leggur fram gögn og greinargerð sína ef við á og gagnaðili þau gögn sem hann kýs þá að leggja fram. □Gagnaðila skal veittur frestur til þess að tjá sig skriflega um gögn þau og greinargerð sem kærandi hefur lagt fram. Frestur gagnaðila skal að jafnaði ekki vera lengri en fjórar vikur, en veita má þó lengri frest þegar sérstaklega stendur á. □Sinni gagnaðili ekki tilmælum nefndarinnar skv. 7. gr. innan tilgreinds frests skulu þau ítrekuð með nýjum fresti sem skal að jafnaði ekki vera lengri en tvær vikur. Ef gagnaðili sinnir enn ekki tilmælum nefndarinnar byggir hún úrlausn máls á framlögðum gögnum og öðrum þeim upplýsingum er hún aflar sjálf um málið. 9. gr. ■Að þeim fresti liðnum, sem gagnaðila hefur verið veittur, skal halda fund í úrskurðarnefndinni með kæranda og gagnaðila þar sem greinargerð gagnaðila og önnur skjöl, sem hann kýs að leggja fram, eru afhent. □Þegar öll gögn hafa verið lögð fram getur úrskurðarnefnd að beiðni málsaðila ákveðið að fjalla um mál munnlega. Að jafnaði skal framlagningu gagna lokið á þessu tímamarki. □Ef ákveðið verður að fjalla um málið munnlega skal ákveðinn stuttur frestur til þess og að honum liðnum skal kærandi tjá sig fyrst um málið en gagnaðili að því búnu. □Nú er ekki ákveðið að aðilar tjái sig munnlega um málið fyrir nefndinni og skal þá kæranda veittur frestur til að tjá sig skriflega um það en að því búnu skal gagnaðila gefinn kostur á að koma að skriflegum athugasemdum sínum. Miðað skal við að frestir, sem veittir eru til þess að málsaðilar megi koma að skriflegum sjónarmiðum sínum samkvæmt þessari málsgrein, verði ekki lengri en tvær vikur samtals. Gagnaöflun 10. gr. ■Nefndin skal í upphafi málsmeðferðarinnar og einnig síðar, ef ástæða þykir til, rita stjórnvöldum, einkaaðilum, rannsóknaraðilum eða öðrum bréf og óska eftir því að fá send tilgreind eða ótilgreind gögn sem kunna að vera til upplýsingar um málsatvik. Strax og slík gögn berast nefndinni skulu afrit þeirra afhent málsaðilum. Nefndin getur mælt svo fyrir í bréfi þar sem óskað er afrits gagna samkvæmt þessari málsgrein að gögn, sem henni eru afhent í trúnaði, séu auðkennd sérstaklega.  Opinber rannsókn 11. gr. ■Hafi aðili neytt réttar síns til þess að óska eftir að fram fari opinber rannsókn af sama tilefni og mál það sem til úrlausnar er, skal úrskurðarnefnd leitast við að fá öll þau gögn, sem aflað hefur verið við þá rannsókn, þ.m.t. skýrslur sem gefnar hafa verið fyrir rannsóknaraðilum.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.