Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Page 88
88 89
21. gr.
Kærur til yfirkjörstjórnar.
■Yfirkjörstjórn þjóðkirkjunnar fer með úrskurðarvald í ágreiningsmálum vegna
kirkjuþingskosninga.
□Rétt til að kæra kirkjuþingskosningu eiga allir þeir sem nutu kosningarréttar til
kirkjuþings og þeir leikmenn sem í kjöri voru en höfðu ekki kosningarrétt.
□Kærur skulu berast kjörstjórn eigi síðar en einni viku eftir að úrslit kosninga liggja fyrir.
□Kjörstjórn skal innan þriggja virkra daga frá móttöku kærunnar senda hana ásamt
athugasemdum sínum til yfirkjörstjórnar þjóðkirkjunnar.
□Kæra má til yfirkjörstjórnar:
a. ákvarðanir kjörstjórnar vegna kjörgengis- og kjörskrármála,
b. framkvæmd kirkjuþingskosninga.
□Yfirkjörstjórn eru heimil eftirfarandi úrræði:
a. að fallast á eða synja kröfu manns um kjörgengi,
b. að fallast á kröfu eða synja um að tiltekinn maður skuli ekki vera á kjörskrá,
c. að staðfesta lögmæti framkvæmdar kirkjuþingskosninga, eftir atvikum með
athugasemdum,
d. að ógilda kosningu tiltekins kirkjuþingsmanns eða kirkjuþingsmanna og leggja
fyrir kjörstjórn að endurtaka kosningu í hlutaðeigandi kjördæmi,
e. að ógilda tiltekinn þátt eða þætti í framkvæmd kirkjuþingskosninga og leggja fyrir
kjörstjórn að endurtaka þann eða þá þætti þannig að niðurstaða fáist,
f. að ógilda kirkjuþingskosningu að öllu leyti og leggja fyrir kjörstjórn að láta kjósa
að nýju.
22. gr.
Frávísun kæru.
■Yfirkjörstjórn vísar kæru frá ef:
a. kærandi hefur ekki kæruaðild,
b. hún er of seint fram komin,
c. mál heyrir ekki undir yfirkjörstjórn,
d. kröfugerð er óskýr eða vanreifuð þrátt fyrir ábendingar yfirkjörstjórnar.
23. gr.
Úrskurður yfirkjörstjórnar.
■Yfirkjörstjórn þjóðkirkjunnar skal skera úr þeim málum sem fyrir hana eru lögð eins
fljótt og auðið er og ekki síðar en sjö virkum dögum eftir að mál berst.
□Niðurstöður yfirkjörstjórnar skulu vera í úrskurðarformi og dregnar saman í úrskurðarorð.
24. gr.
Gildistaka.
■Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 7. mgr. 21. gr. og 59. gr. laga um stöðu,
stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma
falla brott starfsreglur um kjör til kirkjuþings nr. 301/2013, með síðari breytingu.