Jökull - 01.01.2016, Qupperneq 125
Flugvélaleit á Grænlandsjökli
10. mynd. Við afhendingu fyrstu vélsleðanna til Raunvísindastofnunar árið 1979. Á myndinni eru, talið frá
vinstri, Magnús Már Magnússon, Helgi Björnsson, Sigurður Þórarinsson, Marteinn Sverrisson, Páll Theodórs-
son, Eggert V. Briem, Þorbjörn Sigurgeirsson og Leó Kristjánsson. Snowmobiles presented to the Science
Institute by Eggert V. Briem, in 1979.
(og móttökumerkið skráð á 35 mm ljósmyndafilmu).
X-ásinn skráir færslu tækjanna eftir jöklinum, því að
hraði þeirra eftir skerminum er í réttu hlutfalli við
hornhraða reiðhjóls, sem dregið er eftir jöklinum með
vélsleða, en á Y-ásnum sýnir sérhver lóðrétt lína í
myndinni styrk endurkasts á tímaferli bylgjunnar, sem
send var niður í jökulinn. Hinn samfelldi endurkasts-
ferill er því gerður úr röð samsíða lína, þar sem birtan
sýnir styrk endurkasts.
Endurkast frá flugvél sést sem breiðbogi (gleið-
bogi, hyperbóla, 8. mynd) á skjá íssjárinnar, þegar
ekið er framhjá henni eftir beinni mælilínu. Sjónsvið
íssjárinnar er til beggja átta innan geira, sem er um 35
til 45 gráðu víður. Hún sér vélina fyrst frá hlið, útund-
an sér, þegar langt er að henni. Þegar íssjáin er dregin
framhjá flugvél, styttist í fyrstu stöðugt að henni, en
síðan fjarlægist hún, þegar komið er framhjá. Á toppi
bogans er styst að vélinni.
Á 9. og 10. mynd sjást svipmyndir úr sögu íssjár-
mælinga.
In search of World War II aeroplanes buried
in the Greenland Ice Cap.
We review the history of the crash-landing of eight
WW-2 aeroplanes on the Greenland ice cap in 1942,
the successful rescuing of the crew members, and at-
tempts to locate the planes in the years since. Starting
in 1977, American explorers made several attempts to
locate and salvage the buried planes, but it was first in
1992 that one of them was brought up to the glacier
surface through a 80 m deep bore hole. The planes
were, however, first located in 1983 with the aid of ra-
dio echo soundings carried out by an Icelandic team
that joined the American salvage mission. The echo
sounder had been designed and developed at the Sci-
ence Institute of the University of Iceland for use in
temperate glaciers.
JÖKULL No. 66, 2016 125