Jökull


Jökull - 01.01.2016, Blaðsíða 121

Jökull - 01.01.2016, Blaðsíða 121
Flugvélaleit á Grænlandsjökli um, Bob Cardin, eftirlaunamaður úr flugher Banda- ríkjanna; hann krafðist þess að hafa vald til þess að stjórna öllum þáttum leitarinnar. Smíðuð hafði ver- ið þriðja útgáfan af Super Gopher (Super Gopher III). Þar yrði vatnsgufa send niður með mjög öflugri dælu, og þéttivarmi yki bræðslu, umfram það sem áður hafði náðst með heitu vatni. Komust þeir niður að P-38 vél laust fyrir miðjan júní 1992. Boruðu þeir síðan fjórar samsíða holur, sem hver var 1,2 m í þvermál, og sam- an urðu þær að einni 3 m víðri holu (7. mynd). Mikil hvelfing var brædd í kringum vélina og hún tekin í sundur bút fyrir bút niðri í holubotninum (7. mynd). Hinn 15. júlí var hafist handa við að hífa hlutina upp á yfirborð. Jarðýtur Pizzagallis voru notaðar til þess að flytja flugvélarhlutina frá holuopinu. Öllu var útvarp- að beint til Bandaríkjanna. Flugmenn, sem nauðlent höfðu á jöklinum sumarið 1942, voru komnir í heim- sókn og tárfelldu. En Gordon Scott, sem verið hafði allra manna þrautseigastur við flugvélaleitina í fimm leiðöngrum undanfarin sjö ár, var nú sagður tefja fyr- ir, rétt eins og hann vildi ekki, að verkinu lyki nokk- urn tíma. Hann var orðinn til vandræða og var sendur heim. Pat Epps, sem í 15 ár hafði viðhaldið neist- anum í leitarhópnum, hann flaug einnig burt af jökl- inum. Félagið GES var orðið gjaldþrota og gat ekki staðið við samninga við Schoffner, sem hafði greitt fyrir leiðangurinn (alls 1 milljón $). Því var ljóst, að Schoffner eignaðist flugvélina. Fyrir Epps og Taylor varð flugvélaleitin aðeins 15 ára ævintýri. Loks voru bara 7 menn eftir til þess að ná meg- inhlutanum upp. Einn þeirra var Fáfnir Frostason (Iceman), og var hann eini Íslendingurinn, sem tók þátt í þessum lokaleiðangri árið 1992; alls vann hann með leitarmönnum í þrjú sumur. Hinn 23. júlí 1992 fór meginskrokkurinn upp og hinn 31. júlí þyngsti hlutinn, 3.500 kg og 6 m langur. Tók 8 daga að hífa þetta upp. Allir hlutar flugvélarinnar voru fluttir til Kulusuk og þaðan til Danmerkur, síðan til Málmeyjar, og loks fór farmurinn með skipi til Savannah í Georgíu í Bandaríkjunum. Áfram var haldið í flugskýli Roy Schoffner í Middlesboro í Kentucky, þar sem Bob Cardin, sem að lokum hafði stjórnað uppgreftrinum, hóf að endursmíða flugvélina 28. október 1992. Vélin var mikið skemmd. Hún var tekin í sundur í minnstu búta, þeir merktir og hreinsaðir, kannað, hvort bútarn- ir væru nothæfir, gert við þá, sem voru gallaðir eða gerðir nýir. Leitað var að varahlutum um allar jarð- ir. Vorið 1993 var byrjað að raða bútunum saman á ný. Bob Cardin fékk upphaflegar teikningar af vélinni frá Smithsonian Institution í Washington og vann síð- an í 10 ár við að púsla flugvélinni saman. Sagt er, að kostnaður við endurgerð flugvélarinnar hafi orð- ið þrjár milljónir dala, og að hún sé upprunalegasta viðgerða hervélin, sem til er. Flugvélasmiðurinn Car- din varð seinna forstjóri flugrekstrar olíufyrirtækisins Lewis Energy í Texas. Í ágúst 2002 stóð til að fljúga P-38 orustuflugvél- inni, en flugkappinn, Steve Hinton, hætti við, þegar þrýstingur féll í vökvadælu, rétt áður en hann hæfi sig til flugs. Taldi hann dæluna bilaða, og eftir að gert hafði verið við hana, flaug hann vélinni 26. október 2002. Voru þá rúm 60 ár liðin, frá því að hún nauð- lenti á Grænlandsjökli. Lokaorð Leitin að herflugvélunum á Grænlandi er saga margra þátta. Í upphafi tengdist hún áhuga flugmanna úr seinni heimsstyrjöldinni á því að halda til haga minn- ingum, sem senn myndu glatast. Undir lok 8. áratugar síðustu aldar jók það stolt Bandaríkjamanna að minn- ast framlags þeirra í baráttunni við öxulveldin, lang- þreyttir á Víetnamstyrjöldinni. Þess vegna vildu bæði sjálfboðaliðar og fjársterkir athafnamenn styðja leit- ina að flugvélunum. Tilviljun má hafa ráðið, að sam- an komu menn, sem gátu ekki gefist upp, voru rekn- ir áfram af óskhyggju, þrákelkni og trú. Sannfæring þeirra var slík, að þeir gátu endalaust fundið fé til leit- arinnar. Svo kom að uppgreftinum maður gerólíkur ævintýramönnum, og þá lauk ævintýrinu. Patrick Epps og Richard Taylor eru á margan hátt líkir frumkvöðlum í jöklaferðum á Íslandi á sjötta og áttunda áratugi 20. aldar. Þeir tóku alltaf galvaskir á vandamálum, þegar þau komu upp, en töfðu sig ekki á að búa sig undir ófyrirséða erfiðleika. Þeir lentu í ýmsu brasi, en voru þannig skapi farnir, að þeir höfðu gaman af því og töldu sig aldrei vera óheppna. Í hug- ann koma Gunnar Guðmundsson, Magnús Eyjólfsson, Ólafur Nielsen, Hörður Hafliðason, Árni Kjartansson í jöklaferðum. Ég dáðist að þessu hugarfari, en það JÖKULL No. 66, 2016 121
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.