Jökull - 01.01.2016, Page 131
Jarðskjálfti í Krýsuvík 1663
ar, aðrir en Ólafur Friðriksson (við Faxafen), töldu
meginorsökina vera breytilega úrkomu og höfðu fyr-
ir sér úrkomumælingar Pálma Hannessonar (1941).
Heimamenn, blaðamaðurinn Árni Óla og jarðfræðing-
urinn Ólafur töldu leka niður úr vatnsbotninum vera
meginorsökina og Ólafur margmældi rennslið inn í
Lambhagatjörn, þar sem það hlaut að hverfa niður
og sást raunar (Guðmundur Kjartansson, 1949). Eft-
ir það sem kom á daginn við skjálftann 2000 og af
samanburði á úrkomu og vatnshæð síðustu 50 árin má
víst fullyrða að misvöxturinn er samþættur af þessu
tvennu (3. mynd).
Early reports of earthquakes at Krýsuvík followed
by lowering of Lake Kleifarvatn
Lake Kleifarvatn on the Reykjanes peninsula has long
been known for large variations of its level and lack
of fish. Þorkell Vídalín (1629–1677) clergyman, doc-
tor and naturalist wrote a report on the hotsprings at
Krýsuvík (1673). In it he described also an earth-
3. mynd. Vatnshæð í Kleifarvatni (m) og úrkoma á Keflavíkurflugvelli. Samfelldar mælingar á hæð vatnsborðs-
ins ná aftur til 1964, er vatnshæðarmælir var settur þar upp. Samband má greina milli úrkomu og vatnshæðar
með um það bil 5 mánaða fasamun. Lækkun eftir 2000 skjálftann er skýr. Lækkun 2008 gæti átt rætur að
rekja til skjálfta (M 3) við SV-enda Kleifarvatns sem hristi upp í sprungum á vatnsbotninum. Tíu ára toppar og
lækkun vatnsborðsins á milli kemur heim við úrkomumælingarnar (mánaðar- og ársmeðaltöl) og þar af leiðandi
lækkun grunnvatnsborðs, en sýnist óeðlilega mikil. Myndina gerði Gunnar Sigurðsson hjá Veðurstofu Íslands.
– Water level of Kleifarvatn 1964–2016 and precipitation at Keflavik airport. The lowering of the lake level
after the 2000 triggered Krýsuvík earthquake (M >5) is clear. It was followed by a 6 years rise and a second
lowering in 2008–2011. A magnitude 3 earthquake at the SW end of Kleifarvatn in 2008 may have shaken up
the fractures and caused continued lowering.
JÖKULL No. 66, 2016 131