Jökull - 01.01.2016, Side 138
Magnús Tumi Guðmundsson
SAMSTARF VIÐ LANDSVIRKJUN
Áfram var haldið samstarfi við Landsvirkjun, þar sem
fyrirtækið styrkir JÖRFÍ með fjárframlagi sem notað
er upp í kostnað við öflugar vorferðir og viðhald jökla-
húsa. Samningurinn sem nú gildir er til þriggja ára,
2014–2016 og hefur gefist vel. Meirihluti hans fer í
að greiða leigu snjóbíls HSSR í vorferðum.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíðin var haldin í sal Söngskólans við Snorra-
braut þann 7. nóvember, en fordrykkur var í boði Úti-
lífs. Hátíðin var mjög skemmtileg og stemningin af-
bragðsgóð. Þátttakendur voru 45, en nokkuð var um
forföll vegna veikinda.
SPORÐAMÆLINGAVEFUR JÖRFÍ
Styrkur fékkst frá vinum Vatnajökuls til að betrum-
bæta sporðamælingavefinn http://spordakost.jorfi.is.
Unnið var að þessu verkefni á árinu og má búast við
að endurbætur séu orðnar eða verði fljótt sýnilegar.
FRAMTÍÐIN OG FJÁRMÖGNUN VERKEFNA
Ýmsar breytingar hafa orðið á síðustu árum í um-
hverfi félagsins. Rammi vorferða hefur breyst eftir að
Landsvirkjun kemur ekki að þeim með beinum hætti.
Í staðinn fær félagið fjárstyrk og reynir síðan að nýta
hann sem best til að reka snjóbíl í ferðunum. Vonast er
til þess að þetta samstarf haldi áfram. Styrkir frá ráðu-
neytum til útgáfu Jökuls hafa mikið til horfið á síð-
ustu árum. Að einhverju leyti eru það afleiðingar fjár-
málahrunsins 2008 en einnig virðist gæta breyttra við-
horfa þeirra sem fara með stjórn landsins. Einnig hef-
ur dregið mjög úr stuðningi fyrirtækja eftir hrun. Af
þessu leiðir að heldur hefur verið á brattann að sækja
hjá félaginu með að halda í horfinu fjárhagslega. Ný
tækifæri hafa þó einnig komið fram, og má þar nefna
einna helst Vini Vatnajökuls, sem hafa stutt verkefni.
Nú í febrúar tók félagið við styrk að upphæð 1,3 millj.
króna frá Vinunum. Þeim styrk á að verja til að mæta
kostnaði við þátttöku framhaldsnema í jökla-tengdum
verkefnum í vorferð, og jafnframt verður blaða- eða
listamanni boðið að taka þátt. Eftir er að sjá hvernig
þetta reynist, en nýjum tímum fylgja nýjar áskoranir
og tækifæri. JÖRFÍ þarf að þróast með tímunum og
nýta þau tækifæri sem gefast, nú sem hingað til.
Magnús Tumi Guðmundsson
Mikill snjór var á Grímsfjalli í júní 2015. – The huts at Grímsfjall half-covered with snow in June 2015.
Ljósmynd/Photo. MTG.
138 JÖKULL No. 66, 2016