Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 32
32 Bókasafnið
Fjórtán starfsmenn íslenskra skólasafna sóttu Zagreb, höfuðborg Króatíu, heim um mánaðamótin október/nóvember 2017. Tilgangur heimsóknarinnar var
að sitja námskeið sem bar yfirskriftina School libraries
as learning centers – Making a difference – sharing best
practice. Um var að ræða svokallað SLAMit námskeið
(School Library as a Multimedia Center in service training)
og var þetta í sjöunda sinn sem slíkt námskeið er haldið.
Á námskeiðinu gafst tækifæri til að kynnast starfsemi
evrópskra skólasafna og fræðast um nýjustu stefnur og
strauma en tilgangur SLAMit er ekki síst að miðla þekk-
ingu og efla þverfaglegt samstarf starfsfólks á skólasöfnum
í Evrópu. Námskeiðið sátu einstaklingar sem vinna við eða
koma með einhverjum hætti að starfi skólasafna og þekk-
ingarmiðstöðva; skólastjórnendur, almennir kennarar, safn-
kennarar, upplýsingafræðingar og upplýsingatæknikennarar.
Þátttakendur á námskeiðinu voru 46; frá Danmörku,
Noregi, Finnlandi, Portúgal, Íslandi og Króatíu. Styrkur
til námskeiðsins var veittur úr Menntaáætlun Evrópusam-
bandsins, Erasmus+, flokknum Nám og þjálfun.
Efni
Námskeiðið stóð yfir í fimm daga frá 30. október til 3.
nóvember. Efni þess var fjölbreytt, fyrirlestrar, styttri erindi,
kynningar og umræður auk skoðunarferða og landkynn-
ingar.
Athygli okkar var á námskeiðinu annars vegar beint að hinu
hefðbundna skólasafni og lestrarhvetjandi verkefnum og
hins vegar að víðtækara hlutverki safnsins sem þekkingar-
miðstöðvar (e. learning center) á 21. öldinni. Fjallað var um
nýjar aðferðir í námi og skólastarfi; hvernig samþætta megi
upplýsingatækni við allt nám; stuðla að þróun og samvinnu
skólasafna í Evrópu og gera upplýsingalæsi og -tækni hærra
undir höfði við námskrárgerð og annað þróunarstarf í skólum.
Aðalfyrirlesarar á námskeiðinu voru dr. Ross J. Todd og dr.
Kari Smith. Ross er dósent og deildarforseti bókasafns- og
upplýsingafræðideildar Rutgers háskólans í New Jersey.
Hann er ástralskur og starfaði um árabil sem skólasafn-
kennari í heimalandi sínu áður en hann helgaði sig fræði-
mennsku og háskólakennslu. Rannsóknir hans beinast
meðal annars að því hvernig nemendur afla sér þekkingar í
stafrænu umhverfi og að hlutverki skólasafna á 21. öld, þætti
þeirra í skólaþróun og hvers konar umbótum í skólastarfi. Í
fyrirlestri sínum, sem bar yfirskriftina From school library
to learning centre to… What are the challenges in the fut-
ure?, ræddi hann um þróunina frá hefðbundnu skólasafni
til nútímalegrar þekkingarmiðstöðvar og velti upp hver
væru brýnustu viðfangsefnin sem biðu starfsfólks í náinni
framtíð.
Dr. Kari Smith veitir forstöðu kennaranámi við National
forskerskole for lærerutdanning (NAFOL) í Þrándheimi.
Rétt eins og Ross starfaði hún um árabil innan grunnskól-
ans áður en hún gerðist háskólakennari. Rannsóknir Kari
snúast að mestu leyti um kennaranám, starfsþróun kennara
og námsmat. Fyrirlestur hennar bar yfirskriftina What is
learning and how to support it? og fjallaði um nám í víðum
skilningi og ýmsar kenningar þar að lútandi.
SLAMit 7
SLAMit 7 hópurinn