Bókasafnið - 01.07.2018, Side 57
Bókasafnið 42. árg – 2018 57
fannst okkur þessi vinnuaðstaða starfsmanna ekki í neinu
samræmi við metnaðinn sem var lagður í vinnuaðstöðu
gesta. Aðspurðir virtust starfsmenn misánægðir með þetta
fyrirkomulag en ungur maður sem kynnti starfsemina var
hæstánægður og sagðist yfirleitt alltaf vinna á fartölvu í
sófanum í kaffistofunni.
Eins og sjá má á myndunum sem fylgja greininni eiga litir
og lýsing stóran þátt í að gera þekkingarmiðstöðina aðlað-
andi og láta gestum líða þar vel. Á efstu hæðinni, bókasafn-
inu, leikur dagsljósið stórt hlutverk, en eftir því sem neðar
dregur og náttúruleg lýsing fer þverrandi, verður hönnunin
á köflum, svolítið gáskafull og líflegir litir fá meira vægi. Við
mælum eindregið með heimsókn þangað ef þið eruð á ferð
í Helsinki. Espoo er um hálftíma ferð frá miðborg Helsinki
og þekkingarmiðstöðin er öllum opin.
Hugsað er fyrir öllu og hér geta starfsmenn hvílt lúin bein ef á þarf að
halda
Kaffistofa starfsfólks þar sem sumir kjósa að vinna
Heimildir
Aalto University. (2016). Aalto University Library was transformed into
Harald Herlin Learning Centre. Sótt af http://www.aalto.fi/en/cur-
rent/news/2016-11-04-004/
Aalto University Learning Centre. (2017). Finlandia Prize for
Architecture 2017. Sótt af https://learningcentre.aalto.fi/en/fin-
landia-prize-for-architecture-2017/
Rämö, E. (2018). Service design and co-design work at Aalto Uni-
versity Learning Centre. Í Atkinson, J. (ritstjóri), Collaboration and
the academic library: internal and external, local and regional, national
and international (bls. 131-141). Kidlington. Chandos Publishing
Ítarefni
Aalto University Learning Centre. (e.d.). Aalto University Learning
Centre. Sótt af https://learningcentre.aalto.fi
Ollila, S. og Toivola, T. (e.d.). Campuses of the future. bringing life and
lectures together. Sótt af https://medium.com/kuudes/campuses-of-
-the-future-bringing-life-and-lectures-together-235af63803ee
Rämö, E. (2014). Science and art meet technology and business:
service design, co-design and the future learning center at Aalto
University, Finland. Sótt af http://library.ifla.org/715/1/149-ramo-
-en.pdf