Breiðfirðingur - 01.04.1966, Síða 58
56
BREIÐFIRÐINGUR
Þá þakkaði hann samstarfsfólki sínu í undirbúnings-
nefndinni, sem var ein kona úr hverju kvenfélagi sýslunn-
ar, nema úr Hvammssveit, sem lagði til þrjár, Ingibjörgu
Sigurðardóttur, Ásgerði, Janet Ingibergsson, Hvammi og
Kristínu Tómasdóttur, Laugarfelli. Þá voru og í nefndinni
séra Eggert Ólafsson, Kvennabrekku og séra Ingibergur
J. Hannesson, Hvoli. Fluttar voru þakkir öllum þeim, sem
lagt höfðu fé í söfnuðina til að láta gera minnisvarðann
og Ársæli Magnússyni, sem annazt hafði smíði og áletrun
krossins.
Lauk hann máli sínu með bæn fyrir landi og lýð og
byggðunum í landnámi Auðar sérstaklega.
Þá var sunginn sálmurinn Dýrð í hæstum hæðum af
söngfólki úr kirkjukórum í Dalaprófastdæmi undir stjórn
Magnúsar Jónssonar frá Kollafjarðarnesi.
Þá flutti séra Eggert Ólafsson á Kvennabrekku ítarlegt
erindi um Auði djúpúðgu.
Eftir erindi séra Eggerts söng Dalakórinn undi rstjórn
séra Magnúsar Jónssonar sálm séra Matthíasar Jochums-
sonar Upp þúsund ára þjóð, sem gæti verið eins og ortur
fyrir þetta tækifæri.
Gjör fjöll að kristallskirkjum
og kór úr bjargavirkjum,
segir skáldið m.a. í sálminum.
A meðan kórinn söng sálminn gekk frú Janet Ingibergs-
son, sem ættuð er frá Irlandi, upp á borgina klædd ís-
lenzkum þjóðbúningi og afhjúpaði krossins að sálminum
loknum.