Breiðfirðingur - 01.04.1996, Page 78
76
BREIÐFIRÐINGUR
til Noregs og Danmerkur. Hve lengi ég verð þar veit ég ekki
enn, en hugsa 3 mánuði, nefnilega mars, aprfl og maí, og koma
svo heim í júní. Eg hlakka til að koma heim máttu trúa, en þú
skalt ekki halda að mér leiðist vitund samt. Eg vona að ég geti
unnið eitthvert gagn er heim kemur
Hugsaðu þér - það var misskilningur milli mín og Sólveig-
ar út af kaupinu og þar af leiðir að Kiddi auminginn getur ekki
fengið hjá mér meira en 50-60 kr. eða þar um á mánuði. Mér
þótti þetta afleitt sem þú getur skilið. Kiddi hefur kannski sagt
þér af þessu. Ekkert þýðir að vera argur við Sólveigu því það
gagnar ekkert. Nú hefi ég sagt Kidda að taka lán en hætta ekki
- ef ég lifi og kem heim, hef ég næga peningavon til að geta
hjálpað honum að borga skuldina. Elsku góða reyndu að sjá
um að hann hætti ekki þessvegna. Eg sagði honum að skrifa
eða tala við þig eða pabba og deyja ekki ráðalaus. Nú vona ég
að þú að minnsta kosti hvetjir hann til þess sama eða hjálpir
honum til að fá ábyrgðarmann eða þess háttar svo þetta verði
léttara fyrir hann.
7/7 Ingibjargar Hannesdóttur
Dynegard.
27. des. 1925
Nú er ég komin burtu úr Gautaborg og líklega bráðum úr
Svíþjóð. Það varð nú fyrr en ég bjóst við. Eg hafði vistað mig
á Gullbergsbrobarnaheimili í Gautaborg og ætlaði að vera þar
í 3 mánuði. Eg flutti svo þangað 1. desember og var þar í hálf-
an mánuð, en eftir þann tíma sagði ég af mér embættinu vegna
þess að mér fannst það of erfitt og hafa ekkert kaup annað en
mat. Vissulega átti það að vera námskeið í meðferð ungbama,
en mér fannst ómögulegt að leggja það á mig til lengdar af því
að ég býst aldrei við að verða hjúkrunarkona, hvorki bama né
annarra. Kl. 5 á morgnana urðum við að vakna og vinna hvíld-
arlaust allan daginn til kl. 7 á kvöldin, jafnt helga sem rúm-
helga daga. Ég var svo þreytt fyrstu dagana að ég gat ekki
einu sinni sofnað á kvöldin, ég þurfti þess þó, en svo batnaði