Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 8
8 14. sept 2018FRÉTTIR VÆNDISKONURNAR Í REYKJAVÍK OG DULARFULLA HÚSIÐ Á DYNGJUVEGI n Tugir vændiskvenna í miðborginni n Blaðamanni boðið vændi n Vændiskonur í íbúðum Íslendinga n DV fylgdist með kaupendum n Dularfullt hús á Dyngjuvegi n Allt í boði gegn kampavínskaupum Í Reykjavík er að finna tugi vændiskvenna af ýmsum þjóð- ernum. Blaðamaður DV pant- aði þjónustu hjá yfir 20 konum á einni kvöldstund þar sem verð fyrir hálftíma var 25 þúsund en 35 þúsund fyrir klukkutíma. Fyrir endaþarmsmök var rukkað 15 þúsund aukalega. Konurnar voru með aðsetur víða miðsvæðis og gistu margar í leiguíbúðum Ís- lendinga í gegnum hið fræga Air- bnb eða á gistiheimilum. Blaða- menn DV fylgdust með nokkrum húsum þar sem vændiskonur höfðu aðsetur og urðu þar vitni að því þegar íslenskir karlmenn keyptu sér þjónustu kvennanna. Þá könnuðu blaðamenn DV hvort mögulegt væri að kaupa vændi á Kampavínsklúbbum. Á upptöku sem birt er á vef DV í dag má heyra að slíkt er auðsótt og rannsókn DV síðustu vikur staðfestir að vændi er vandamál á Íslandi. Í umfjöllun DV má sjá hvar í Reykjavík vændiskonurnar voru með aðsetur. Tekið skal fram að DV ræddi aðeins við brot af þeim konum sem auglýsa þjónustu sína á hinum ýmsu síðum. Þá leiddi rannsókn DV einnig í ljós að ætla megi að á Íslandi sé að finna fólk sem hafi tekjur af vændisstarfsemi með því að hafa milligöngu með vændi. Vændi og mansal eykst Sumir kalla vændi elstu starfs- grein í heimi á meðan aðrir telja vændi einfaldlega vera kynferðis- ofbeldi, að karlmenn séu að nýta sér neyð kvenna. Á síðustu áratug- um hefur vændi sem og mansal á konum aukist og vex vændismark- aðurinn hvað örast, næst á eftir eiturlyfja- og vopnamarkaðnum. Í sumum löndum er vændi leyft, en í flestum löndum laumast karl- menn inn um bakdyr eða í skjóli myrkurs. Þannig er það alla vega á Íslandi. Lög sem banna vændiskaup voru sett árið 2009. Ísland fetaði þar í fótspor Svíþjóðar sem hafði fyrst þjóða sett slík lög. Vændi á Ís- landi fer fram neðanjarðar í þeim skilningi að mál tengd vændi lenda sjaldan inni á borði lögreglu. Á síðustu árum hafa hin ýmsu mál ratað inn á borð lögreglu eða fjöl- miðla. Alvarlegasta málið í seinni tíð verður að teljast þegar upp komst að Alexander Manrique El- íasson var grunaður um að skipu- leggja vændisstarfsemi í íbúð við Fiskakvísl í Ártúnsholti á sama tíma og hann starfaði hjá Barna- vernd. Þrjár stúlkur frá Perú seldu blíðu sína í nokkrar vikur í íbúð- inni áður upp komst um athæfi Alexanders sem hafði haft uppi háleitar hugmyndir um starfsem- ina, en hann er talinn hafa ætlað að sölsa undir sig íslenska vændis- markaðinn. Strawberries lokað Árið 2007 var herraklúbbnum Strawberries lokað vegna gruns um milligöngu um vændi. Sam- bærilegt tilfelli átti sér stað með skemmtistaðinn VIP Club árið 2013. Til þess að fara afsíðis með konu þurfti að borga fyrir kampa- vín sem kostaði frá tuttugu þúsund krónum og allt upp í tæpa hálfa milljón króna. Skemmtistaðurinn Shooters við Austurstræti 12a hefur verið mikið í umræðunni upp á síðkastið. Undir lok ágústmánaðar var lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu kölluð að skemmtistaðnum vegna slagsmála þar inni. Tveir af dyravörðum staðarins höfðu orðið fyrir alvarlegri líkamsárás. Frá því að staðnum var komið á laggirnar lék grunur á að vændi ætti sér stað undir þeim formerkj- um að keyptur væri sérstakur „kampavínsdíll“ og kemur það- an lýsingin herraklúbbur. „Besta fullorðinsskemmtun Reykjavíkur“ auglýsir klúbburinn á samskipta- miðlum. Á vefnum Reddit hefur stað- urinn verið ræddur í þaula og hafa margir velt fyrir sér þeim vafasömu sögusögnum sem staðnum fylgja. Einn notandinn fullyrðir að staðurinn sé þekktur fyrir að svindla á ölvuðu fólki. Á Facebook-síðu staðarins skrifaði Hjörtur Geirsson tónlistarmaður: „Glatað hóruhús.“ DV reyndi að ná tali af Hirti án árangurs. Sýnt hefur verið fram á tengsl milli Shooters og forvera staðar- ins, VIP Club, sem var í sama hús- næði. VIP Club var lokað af lög- reglu vegna gruns um að vændi væri stundað á staðnum. Allt í boði gegn kampa- vínskaupum Skráður eigandi Shooters Coyote Club er Þórdís Elva Guðmunds- dóttir. Í janúar 2016 greindi DV frá því að lögblindur Bandaríkja- maður hefði kært eiganda Shoot- ers fyrir að hafa gjaldfært tæpar þrjár milljónir út af kreditkort- um hans. Umræddur mað- ur er Colin O’Donohoe. Kvaðst hann hafa pant- að sér nokkra drykki á barnum og búist við reikningi upp á 20 þúsund íslenskar krónur. Annað kom á daginn. Þegar O’Donohoe kíkti á bankayfirlitið kom í ljós að reikningurinn var hvorki meira né minna en 22 þúsund dollarar. Í kæru O’Donohoe kemur fram að undirskriftirnar á kvittunun- um séu greinilega falsaðar og að skemmtistaðurinn hafi misnot- að fötlun hans með refsiverðum hætti. Hægt að kaupa vændi á Shooters Á meðan DV var að kanna vændis- heiminn á Íslandi barst ábending um að auðsótt væri að kaupa vændi á Shooters. Heimildar- maður DV sem þekkir vel til starf- seminnar sagði: „Það er auðvit- að harðbannað að kaupa vændi, en það er ekkert sem segir að þú megir ekki kaupa kampavíns- flösku á nokkur hundruð þúsund og einhverjir ónefndir aukaglaðn- ingar fylgi með.“ Þegar blaðamenn DV fóru á staðinn brugðu þeir sér í hlutverk ferðamanna. Strax og gengið var inn á staðinn kom í ljós að heim- ildarmaðurinn hafði á réttu að standa. Í tröppunum á Shooters tóku konurnar á móti blaðamönn- um á fyrstu hæð. Skömmu síðar urðu reglurnar skýrar. Ef kúnninn festir kaup á kampavíni er honum boðið í lokað herbergi. Á bak við luktar dyr er svo boðið upp á einkasýningar en fyrir 14 þúsund krónur buðust konurnar til að fækka fötum. Í reykingaher- bergi fyrir starfsfólk inni á staðn- um er búið að krota á vegginn setninguna „No money, no hon- ey“. Einnig er boðið upp á að keypt sé kampavín á 100 þúsund krón- ur. Í því tilboði er allt innifalið, sem sagt aðgangur að líkama konunn- ar. Það staðfestu blaða- menn DV en samtalið var tekið upp og má heyra, eins og áður segir í fullri lengd á DV.is, en brot úr samtalinu má lesa hér. „Ég vil fara með þig í einkaher- bergi, við getum ekki gert neitt hér,“ sagði konan. Ég geri mér grein fyrir því, svar- aði blaðamaður. „Við getum ekki gert neitt hér í 35 þúsund klukkutími. 15 þúsund aukalega fyrir endaþarmsmök 36 þúsund klukkutími Laugavegur, 35 þúsund klukkutími Hverfisgata, 35 þúsund klukkutími Hverfisgata, 35 þúsund klukkutími Grettisgata, 35 þúsund klukkutími Hringbraut, 35 þús- und klukkutími Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson Tómas Valgeirsson tomas@dv.is / bjartmar@dv.is „No money, no honey.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.