Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 52
52 14. september 2018
Í
Bandaríkjunum eru margir
af bestu háskólum heims,
lærðar og virtar stofnanir. En
bræðralagsmenning nem-
enda, sem nær aftur til nítjándu
aldar, er alræmd fyrir óhóf og of-
beldi. Busavígslur hafa þótt sér-
staklega varasamar þar sem ung-
menni í ölæði eru neydd til að
framkvæma lífshættulega gjörn-
inga. Hundruð busa hafa látist í
slíkum vígslum eða aðdraganda
þeirra.
Sofandi á lestarteinum
Eitt óhugnanlegasta dauðsfall
af slíkum toga átti sér stað þann
28. október árið 1905 í Ohio-fylki.
Nýneminn Stuart L. Pierson inn-
ritaðist í Kenyon-háskólann og
vildi ganga til liðs við bræðralag-
ið Delta Kappa Epsilon eins og
faðir hans, auðjöfurinn Newbold
Pierson.
Newbold ætlaði að vera við-
staddur busavígsluna en tafðist
og Stuart missti svefn af áhyggj-
um. Bræðralagsmennirnir
fóru með hann inn í skóg eitt
kvöldið og skildu hann
eftir. Morguninn eftir
fannst hann látinn
á lestarteinum
eftir að lest
hafði keyrt yfir
hann.
Sagt hefur
verið að Stu-
art hafi verið
bundinn við
teinana en
engar sannan-
ir eru fyrir því.
Að öllum líkindum
hefur hann einfaldlega
sofnað á teinunum. Lestarstjór-
inn sem keyrði yfir hann sá ekk-
ert í myrkrinu og varð aldrei var
við neitt óvenjulegt.
Mikið var skrifað um mál-
ið í dagblöðum þess tíma og
bræðralagsmenn úthrópaðir
sem morðingjar. En enginn var
kærður og sannleikurinn mun
sennilega aldrei koma í ljós. Í dag
er Pierson minnst með bálkesti í
námunda við dánarstaðinn.
Raflost í blautum nærbuxum
Hinn nítján ára gamli Nol-
te McElroy lést í busavígslu í
Texasháskóla í Austin þann 30.
september árið 1928. McElroy,
sem talinn var efnileg-
ur ruðningsleik-
maður, gekk
undir vígslu hjá
bræðralaginu
Delta Kappa
Epsilon.
Búin var til
þrautabraut
fyrir nýnem-
ana og voru
þeir aðeins
klæddir í blaut
nærföt. Ein þraut-
in fólst í því að skríða
undir dýnugorma sem tengd-
ir voru við rafmagn. Bræðra-
lagsmennirnir töldu þetta óhætt
þar sem nærri tvö hundruð bus-
ar höfðu skriðið þarna undir yfir
fimmtán ára tímabil.
McElroy komst hins vegar í
snertingu við gormana og fékk
í sig mikinn straum. Hlæjandi
áhorfendurnir þögnuðu þegar
McElroy féll í dá og lést hann
fimmtán mínútum síðar. Eldri
bræðralagsmenn Delta Kappa
Epsilon lofuðu að hætta með
slíkar þrautir í framtíðinni.
Barinn til dauða
Í bræðralagsvígslum hefur það
verið til siðs að berja busana í
heljarviku og í busavígslun-
um sjálfum, oft með
kylfum eða árum.
Oft eru þeir barð-
ir á rass eða læri
en stundum
annars staðar
á líkamann.
Michael
Davis, nemi
í Southeast
Missouri-há-
skólanum, var
laminn til dauða
þann 14. febrúar árið
1994 þegar hann gekkst
undir vígslu hjá bræðralaginu
Kappa Alpha Psi.
Davis var laminn alls staðar
á líkamann þar til hann missti
meðvitund. Þá var hann hins
vegar ekki færður á sjúkrahús
heldur heim til sín og lagður í
rúmið. Davis vaknaði aldrei úr
rotinu og lést af völdum áverk-
anna. Hann var marinn á öllum
búknum og höndunum, rifbeins-
brotinn, með skaddaða lifur og
heilablæðingu.
Fannst á botni stöðuvatns
Hinn átján ára Chad Smith lést í
busavígslu bræðralagsins Kappa
Sigma í Miami-háskóla þann 4.
nóvember árið 2001.
Þar var til siðs að
láta busa stökkva
út í stórt
stöðuvatn í
námunda við
borgina.
Chad
drakk mikið
magn áfeng-
is, eins og
gengur og ger-
ist í slíkum vígsl-
um, og stökk síðan
út í ískalt og djúpt vatn-
ið. En eldri bræðralagsmenn
vildu ekki leyfa honum að synda
strax að landi heldur neyddu
þeir hann til að synda lengra út á
stöðuvatnið.
Hann var mjög drukkinn og
þegar hann var kominn um tíu
metra út á vatnið fann hann fyrir
miklum svima og kallaði á hjálp
en fékk engin svör. Hann hvarf í
vatnið og drukknaði.
Chad fannst á botni vatnsins
næsta dag og fjölskylda hans lög-
sótti bræðralagið. Kappa Sigma
var dæmt ábyrgt fyrir dauða
Chads og var gert að greiða fjöl-
skyldunni rúmlega tólf milljón-
ir dollara, eða næstum einn og
hálfan milljarð króna.
Féll í krampakasti
Ein busun sem fór úr
böndunum var í
California State-
háskólanum 2.
febrúar árið
2005. Vikan
fyrir vígslu
er kölluð
heljarvika af
nemendum
enda eru ný-
nemar þá látnir
gera miður skyn-
samlega og heilsu-
samlega hluti.
Matthew Carrington vildi
komast inn í Chi Tau-bræðra-
lagið og ein áskorunin í helj-
arviku var að gera armbeygjur í
kjallara bræðralagshússins. Ís-
kalt var í kjallaranum og gólfið flóði
í óhreinu vatni. Að auki voru Carr-
ington og aðrir nýnemar neyddir
til að drekka mikið magn vatns úr
stórum brúsum og köldu lofti var
blásið á þá með viftum.
Eftir nokkra stund byrjuðu ný-
nemarnir að æla og misstu
þeir stjórn á þvaglátum
sínum. Að lokum
féll Carrington í
gólfið í miklu
krampakasti
en eldri
bræðralags-
menn brugð-
ust ekki við.
Carrington féll
loks í dá og lést
vegna mikilla
bólgna í heila og
lungum.
Eftir andlát Carringtons
voru sett lög í Kalforníu, nefnd lög
Matts, sem gera saksóknurum kleift
að lögsækja bræðralagsmenn sem
valda dauða eða alvarlegum slys-
um með busavígslu. n
TÍMAVÉLIN
Betri
Svefn
BANVÆNAR BUSAVÍGSLUR
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Matthew Carrington