Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 52
52 14. september 2018 Í Bandaríkjunum eru margir af bestu háskólum heims, lærðar og virtar stofnanir. En bræðralagsmenning nem- enda, sem nær aftur til nítjándu aldar, er alræmd fyrir óhóf og of- beldi. Busavígslur hafa þótt sér- staklega varasamar þar sem ung- menni í ölæði eru neydd til að framkvæma lífshættulega gjörn- inga. Hundruð busa hafa látist í slíkum vígslum eða aðdraganda þeirra. Sofandi á lestarteinum Eitt óhugnanlegasta dauðsfall af slíkum toga átti sér stað þann 28. október árið 1905 í Ohio-fylki. Nýneminn Stuart L. Pierson inn- ritaðist í Kenyon-háskólann og vildi ganga til liðs við bræðralag- ið Delta Kappa Epsilon eins og faðir hans, auðjöfurinn Newbold Pierson. Newbold ætlaði að vera við- staddur busavígsluna en tafðist og Stuart missti svefn af áhyggj- um. Bræðralagsmennirnir fóru með hann inn í skóg eitt kvöldið og skildu hann eftir. Morguninn eftir fannst hann látinn á lestarteinum eftir að lest hafði keyrt yfir hann. Sagt hefur verið að Stu- art hafi verið bundinn við teinana en engar sannan- ir eru fyrir því. Að öllum líkindum hefur hann einfaldlega sofnað á teinunum. Lestarstjór- inn sem keyrði yfir hann sá ekk- ert í myrkrinu og varð aldrei var við neitt óvenjulegt. Mikið var skrifað um mál- ið í dagblöðum þess tíma og bræðralagsmenn úthrópaðir sem morðingjar. En enginn var kærður og sannleikurinn mun sennilega aldrei koma í ljós. Í dag er Pierson minnst með bálkesti í námunda við dánarstaðinn. Raflost í blautum nærbuxum Hinn nítján ára gamli Nol- te McElroy lést í busavígslu í Texasháskóla í Austin þann 30. september árið 1928. McElroy, sem talinn var efnileg- ur ruðningsleik- maður, gekk undir vígslu hjá bræðralaginu Delta Kappa Epsilon. Búin var til þrautabraut fyrir nýnem- ana og voru þeir aðeins klæddir í blaut nærföt. Ein þraut- in fólst í því að skríða undir dýnugorma sem tengd- ir voru við rafmagn. Bræðra- lagsmennirnir töldu þetta óhætt þar sem nærri tvö hundruð bus- ar höfðu skriðið þarna undir yfir fimmtán ára tímabil. McElroy komst hins vegar í snertingu við gormana og fékk í sig mikinn straum. Hlæjandi áhorfendurnir þögnuðu þegar McElroy féll í dá og lést hann fimmtán mínútum síðar. Eldri bræðralagsmenn Delta Kappa Epsilon lofuðu að hætta með slíkar þrautir í framtíðinni. Barinn til dauða Í bræðralagsvígslum hefur það verið til siðs að berja busana í heljarviku og í busavígslun- um sjálfum, oft með kylfum eða árum. Oft eru þeir barð- ir á rass eða læri en stundum annars staðar á líkamann. Michael Davis, nemi í Southeast Missouri-há- skólanum, var laminn til dauða þann 14. febrúar árið 1994 þegar hann gekkst undir vígslu hjá bræðralaginu Kappa Alpha Psi. Davis var laminn alls staðar á líkamann þar til hann missti meðvitund. Þá var hann hins vegar ekki færður á sjúkrahús heldur heim til sín og lagður í rúmið. Davis vaknaði aldrei úr rotinu og lést af völdum áverk- anna. Hann var marinn á öllum búknum og höndunum, rifbeins- brotinn, með skaddaða lifur og heilablæðingu. Fannst á botni stöðuvatns Hinn átján ára Chad Smith lést í busavígslu bræðralagsins Kappa Sigma í Miami-háskóla þann 4. nóvember árið 2001. Þar var til siðs að láta busa stökkva út í stórt stöðuvatn í námunda við borgina. Chad drakk mikið magn áfeng- is, eins og gengur og ger- ist í slíkum vígsl- um, og stökk síðan út í ískalt og djúpt vatn- ið. En eldri bræðralagsmenn vildu ekki leyfa honum að synda strax að landi heldur neyddu þeir hann til að synda lengra út á stöðuvatnið. Hann var mjög drukkinn og þegar hann var kominn um tíu metra út á vatnið fann hann fyrir miklum svima og kallaði á hjálp en fékk engin svör. Hann hvarf í vatnið og drukknaði. Chad fannst á botni vatnsins næsta dag og fjölskylda hans lög- sótti bræðralagið. Kappa Sigma var dæmt ábyrgt fyrir dauða Chads og var gert að greiða fjöl- skyldunni rúmlega tólf milljón- ir dollara, eða næstum einn og hálfan milljarð króna. Féll í krampakasti Ein busun sem fór úr böndunum var í California State- háskólanum 2. febrúar árið 2005. Vikan fyrir vígslu er kölluð heljarvika af nemendum enda eru ný- nemar þá látnir gera miður skyn- samlega og heilsu- samlega hluti. Matthew Carrington vildi komast inn í Chi Tau-bræðra- lagið og ein áskorunin í helj- arviku var að gera armbeygjur í kjallara bræðralagshússins. Ís- kalt var í kjallaranum og gólfið flóði í óhreinu vatni. Að auki voru Carr- ington og aðrir nýnemar neyddir til að drekka mikið magn vatns úr stórum brúsum og köldu lofti var blásið á þá með viftum. Eftir nokkra stund byrjuðu ný- nemarnir að æla og misstu þeir stjórn á þvaglátum sínum. Að lokum féll Carrington í gólfið í miklu krampakasti en eldri bræðralags- menn brugð- ust ekki við. Carrington féll loks í dá og lést vegna mikilla bólgna í heila og lungum. Eftir andlát Carringtons voru sett lög í Kalforníu, nefnd lög Matts, sem gera saksóknurum kleift að lögsækja bræðralagsmenn sem valda dauða eða alvarlegum slys- um með busavígslu. n TÍMAVÉLIN Betri Svefn BANVÆNAR BUSAVÍGSLUR Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Matthew Carrington

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.