Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 56
56 14. sept 2018MENNING
BESTU ÍÞRÓTTA
KVIKMYNDIRNAR
Íþróttir eru góður efniviður í kvikmyndir enda geta
þær verið hádramatískar. Gildir þá einu hvort að um
er að ræða sanna atburði eða skáldskap. Íþrótta-
greinarnar skipta minna máli en hin mannlega saga
á bak við. DV tók saman tíu bestu íþróttakvikmynd-
irnar.
The Wrestler (2008)
Mesta óréttlæti í sögu Hollywood var framið í Kodak-höllinni í febrúar árið
2009. Þá var Mickey Rourke svikinn um Óskarsstyttu fyrir túlkun sína á fjöl-
bragðaglímukappanum Randy Robinson. Í myndinni sýnir leikstjórinn Darren
Aronofsky daglegt líf þessara trölla sem Ameríkanar elska en Evrópumenn líta
á sem holdgervinga lágmenningar. Þó að fjölbragðaglíma sé sett á svið þá reynir
íþróttin meira á iðkendurna en nokkur önnur. Beinbrot, höfuðhögg, steranotkun
og hjartasjúkdómar fylgja glímunni og fíkniefnaneyslan er mikil. Fáir fjöl-
bragðaglímumenn ná háum aldri. Goðsögnin „Rowdy“ Roddy Piper, sem lést úr
hjartaáfalli 61 árs gamall, brotnaði niður á frumsýningu myndarinnar og faðmaði
Rourke. Hann var svo glaður að sagan var loksins sögð.
I, Tonya (2017)
Allir sem eru í kringum fertugt og eldri muna vel eftir
skautadrottningunum Nancy Kerrigan og Tonyu
Harding. Einnig fjölmiðlafárinu í kringum vetrar-
ólympíuleikana í Lillehammer árið 1994, eftir að
Harding var sökuð um að hafa látið meiða Kerrigan.
Harding var ein mesta hæfileikamanneskja í sögu
vetraríþrótta en hún var hvítt rusl og passaði ekki
inn í prinsessuímyndina sem skautadrottningar þurftu að
hafa. I, Tonya segir þessa sögu bæði á gamansaman og
dramatískan hátt og hlaut Allison Janney Óskarsverðlaun
fyrir stórkostlega túlkun á samviskulausri móður Tonyu.
Það má segja að Tonya Harding hafi endurheimt æruna
eftir að myndin kom út.
Mike Bassett: England
Manager (2001)
Költ er ekki nógu sterkt orð til að lýsa þeirri stöðu sem
Mike Bassett: England Manager hefur. Myndin náði
ekki mikilli útbreiðslu en þeir sem hafa séð hana, og hafa
áhuga á enska boltanum, elska hana út af lífinu. Myndin
er gervi heimildamynd (mockumentary) sem segir frá
misheppnaðri ráðningu Mikes Bassett í stjórastól enska
landsliðsins. Hún holdgerir hluti sem fótboltaáhuga-
menn þekkja, gulu pressuna, stjörnustælana, hrokann og
getuleysið. Bassett er stjóri af gamla skólanum sem skrifar
liðsvalið niður á sígarettupakka og spilar kerfið fjórir-fjór-
ir-fokkings-tveir. Margir hafa líkt honum við „Stóra“ Sam
Allardyce sem stýrði enska landsliðinu árið 2016.
Rocky IV (1985)
Rocky var fyrsta íþróttamyndin til að vinna Óskars-
verðlaun sem besta mynd, árið 1976, og síðan þá hefur
serían um hnefaleikakappann Rocky Balboa orðið
hornsteinn í Hollywood. Flestir eru á því að fyrsta myndin
sé best en margir halda sérstaklega upp á rimmu Balboa
og Clubbers Lang í þriðju myndinni. Í fjórðu myndinni
tók sturlunin hins vegar völdin og Rocky hætti að vera
aðeins boxari. Nú var hann orðinn friðarpostuli sem leysti
kalda stríðið með nokkrum hnefahöggum. Myndin er
eins ýkt og hún getur orðið. Andstæðingurinn er sovéskt
steravélmenni, þrisvar sinnum stærri en Rocky sjálfur,
og lokabardaginn á ekkert skylt við hnefaleika. Hér er
ekki barist upp á titla heldur upp á líf og dauða, og örlög
stórveldanna eru að veði.
Moneyball (2011)
Fæstir Íslendingar vita út á hvað hafnabolti
gengur. Þetta er einhvers konar þróuð útgáfa af
kýló. Áhorfandinn þarf hins vegar ekki að skilja
hafnabolta til að hafa gaman af Moneyball því að
myndin gerist að langmestu leyti á bak við tjöldin.
Myndin er gerð eftir samnefndri bók viðskipta-
blaðamannsins Michael Lewis frá árinu 2003 sem
vakti mikla athygli. Umfjöllunarefnið er Billy Beane,
framkvæmdastjóri liðsins Oakland Athletics, og
hvernig hann náði miklum árangri með því að nýta
sér tölfræðiupplýsingar. Pitt leikur Beane og Jonah
Hill tölfræðigúrú sem hjálpar honum að kaupa
og selja leikmenn. Moneyball er úrvalsmynd fyrir
nörda, sama hóp og spilar Championship Manager
langt fram á nætur.
White Men Can’t Jump (1992)
Tíundi áratugurinn var gullöld NBA og Íslendingar fóru ekki
varhluta af því. Þá skiptust unglingar á körfuboltamynd-
um og vöktu fram á nætur til að horfa á Einar Bollason og
Valtý Björn lýsa leikjum. Margar hörmulegar bíómyndir
komu út á þessum tíma, svo sem The Air Up There og
Space Jam. En White Men Can’t Jump var sérstök. Hún
fjallaði um tvo svikahrappa í götubolta og ástamál tengd
þeim. Það sem kom mest á óvart var hversu færir Wesley
Snipes og Woody Harrelson voru inni á vellinum. Vinátta þeirra
og innbyrðis samkeppni minnti um margt á Magic Johnson og
Larry Bird sem voru sífellt að reyna að toppa hvor annan.
Rush (2013)
Chris Hemsworth og Daniel Bruhl eru óaðfinnanlegir sem Formúlu-heimsmeist-
ararnir James Hunt og Niki Lauda. Myndin segir frá harðri samkeppni ökuþóranna
sem skildu ekkert eftir inni á brautinni og er frábær sem slík. En það áhrifamesta og
mikilvægasta við Rush er hvernig hún sýnir daglegt líf ökuþóra Formúlu á þessum
tíma. Dauðinn var daglegt brauð og mátti gera ráð fyrir því að tveir ökuþórar
dæju á hverju ári. Eftir að heimsmeistarinn Ayrton Senna dó í San Marínó árið
1994 voru öryggismál stórbætt. Lauda sjálfur lenti í keppnisslysi árið 1976 og
skaðbrenndist eins og sýnt er í Rush.
The Karate Kid (1984)
Karate Kid hefur allt sem íþróttamynd frá níunda áratugnum þarf að hafa.
Ungan og óslípaðan demant, gamlan og djúpvitran kennara með baksögu,
svartklædd illmenni og ekki síst myndfléttur með synþapoppi. Leikstjórinn
John G. Avildsen hafði áður gert Rocky með svipuðu sniði en Karate Kid var
fyrir mun yngri hóp. Ófáir krakkar fóru út að sparka í vini sína eftir að hafa séð
myndina sem varð algert æði og gerðar voru fjórar framhaldsmyndir í kjölfar-
ið … misgóðar. Karate Kid gerði einnig hið kjánalega trönuspark
heimsþekkt.
Escape to Victory (1981)
Árið 1942 var knattspyrnuleikur háður milli
úkraínska verksmiðjuliðsins Start og Flakelf, liðs
þýska hersins. Start sigraði 5-3 sem þótti mikil niðurlæging
og enduðu margir leikmenn Start í útrýmingarbúðum í kjöl-
farið. Leikurinn var grunnur að myndinni Escape to Victory
sem fjallar um lið stríðsfanga sem etur kappi við lið fangara
þeirra og nota þeir fyrrnefndu leikinn sem flóttaleið.
Þjóðverjana leiðir sænski stórleikarinn Max von Sydow en
Michael Caine og Sylvester Stallone leiða Bandamenn. Í
myndinni má sjá andlit margra frægra knattspyrnuhetja á
borð við Bobby Moore, Ossie Ardiles, Zoltan Gera og Pele.
Cool Runnings (1993)
Bobbsleðamyndin Cool Runnings er bæði væmin og uppskálduð að stórum hluta.
Sagan af því hvernig Jamaíka, þessi litla Karíbahafseyja þar sem aldrei snjóar,
komst á vetrarólympíuleikana í Calgary árið 1988 er svo ótrúleg að úr hlaut alltaf að
koma gott bíó. Jamaísku keppendurnir eru ólíkir innbyrðis en allir eins og geimverur
í snobbuðum heimi vetraríþrótta og keppendur annarra landa líta niður á þá. Þrátt
fyrir að hafa klesst og þurft að hætta keppni unnu þeir hjörtu allrar heimsbyggðar-
innar. Jamaíska bobbsleðaliðið hefur sex sinnum komist á vetrar-
ólympíuleika síðan 1988.
1
2
6 7
8 9
10
10
54
3