Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 65

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 65
SAKAMÁL 6514. september 2018 var því lýst eftir Lori. Tólf klukku- stundum eftir að hún hvarf fannst líkið af henni og bar það merki um barsmíðar og kynferðis legt ofbeldi auk þess sem ljóst var að Lori hafði verið stungin tólf sinn- um. Þrátt fyrir grunsemdir lög- reglunnar um sekt Kenneths var DNA-tæknin skammt á veg kom- in og var af þeim sökum ekki hægt að bendla hann með óyggj- andi hætti við morðið. Geymt en ekki gleymt Árin liðu og málið var geymt en ekki gleymt. Vickie var óþreyt- andi við að minna lögregluna á málið enda hafði hún lofað móð- ur sinni því. Jafnvel eftir að for- eldrar systranna voru látnir hélt hún uppteknum hætti. „Ég hugsaði ekki stöðugt um málið, en hélt því á lífi. Eftir að ég varð 18 ára hringdi ég stöðugt og minnti rannsóknarlögregluna á það,“ sagði Vickie. Í desember, árið 2010, fékk Mike O’Connell málið til rann- sóknar. Þegar þar var komið sögu var Mike, sem hafði verið á snær- um lögreglu Washington-sýslu, strangt til tekið sestur í helgan stein en var þó í hlutastarfi við að skoða gömul, óupplýst mál. Ný DNA-tækni Mike O’Connell fannst það til- raunarinnar virði að greina gömlu lífsýnin á ný og lét gera það. Engin samsvörun fannst í gagnagrunni lögreglunnar. Mike lét það bakslag ekki á sig fá og fór fram á heimild til að krefjast líf- sýnis úr Kenneth. Það tók aldeilis tímann að fá þá heimild og Mike fékk ekki grænt ljós fyrr en tveimur árum síðar. Niðurstaðan var óvefengj- anleg; lífsýni úr Kenneth höfðu fundist á líki Lori. Sennilega hélt Kenneth að grunsemdir um aðild hans að morðinu á Lori heyrðu sögunni til, en fortíðin á það til að ná í skottið á manni og sú varð raun- in hjá Kenneth. Þann 27. febrúar 2013, rúmum 30 árum eftir morðið, var hann handtekinn. Ruglingsleg tilvera Tilvera Kenneths hafði ekki orðið einfaldari eftir að hann myrti Lori og líf hans einkennst af ýmsum vendingum. Hann gerðist vöru- flutningabílstjóri, fékk viðvörun vegna líkamsárásar á fyrrverandi kærustu, gekk í hjónaband og tók þátt í uppeldi tveggja stjúpsona. Reyndar hafði hann einnig eignast tvö börn með tveimur konum, en látið sig litlu varða uppeldi þeirra. Drukkinn og reiður daginn þann Við réttarhöldin sagðist Kenneth vera saklaus en aðstoðarsak- sóknarinn hafði á orði að hann „gæti ekki snúið á tæknina“ og vísaði þar til niðurstöðu DNA- -rannsóknar. Kenneth sjálfur tjáði sig ekki við réttarhöldin og sýndi engar tilfinningar þegar á þau leið. Aðstoðarsaksóknarinn sagði að verknaður Kenneths hefði að hans mati verið „verk illrar mann- eskju.“ Sagði hann enn fremur að Kenneth hefði daginn þann verið drukkinn og reiður eftir að hafa verið neitað um kynlíf af annarri stúlku. Líklega hefði Lori einnig hafnað svipuðum þreifingum og goldið fyrir með lífi sínu. Drap kanínu og hund „Þetta var ekki í fyrsta eða síðasta skipti sem sakborningur notaði hendur sínar og vasahníf til illra verka,“ sagði aðstoðarsaksóknar- inn. Bætti hann við að Kenneth hefði eitt sinn verið gripinn glóð- volgur við að murka líftóruna úr kanínu. Seinna hefði hann skorið hund frænda síns á háls. Kviðdómur réð ráðum sín- um í um fimm klukkustundir og komst að lokum að þeirri niður- stöðu að Kenneth Lee væri sek- ur um morðið á Lori. Dómarinn, Thomas Kohl, felldi síðan þann dóm að Kenneth skyldi afplána að minnsta kosti 15 ár af þeim 30 ára fangelsisdómi sem hann fékk. Það tók 30 ár, en að lokum náði réttlætið fram að ganga.n Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt „ Eftir að ég varð 18 ára hringdi ég stöð- ugt og minnti rannsóknarlög- regluna á málið 88 ára konu, Alice Covington, var drekkt í baðkari á heimili sínu, í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum, þann 12. maí 1998. Morðinginn var Carlette nokkur Parker sem vann við heimaþjónustu. Fyrir morðið hafði Parker tekið út fé af reikningi Covington. Parker var enginn nýgræðingur í glæpum og árið 1985 játaði hún sig seka um að hafa með svikum og prettum haft 44.000 dali af aldraðri konu, Catherine Stevenson. Parker fékk dauðadóm árið 1999. Kenneth Lee Hicks Taldi sig sennilega hafa sloppið fyrir horn. Mike O’Connell Rannsóknarlög- reglumaðurinn sem ekki gafst upp. Í dómsal Kenneth sýndi engar tilfinningar við réttarhöldin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.