Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 65
SAKAMÁL 6514. september 2018
var því lýst eftir Lori. Tólf klukku-
stundum eftir að hún hvarf fannst
líkið af henni og bar það merki
um barsmíðar og kynferðis legt
ofbeldi auk þess sem ljóst var að
Lori hafði verið stungin tólf sinn-
um.
Þrátt fyrir grunsemdir lög-
reglunnar um sekt Kenneths var
DNA-tæknin skammt á veg kom-
in og var af þeim sökum ekki
hægt að bendla hann með óyggj-
andi hætti við morðið.
Geymt en ekki gleymt
Árin liðu og málið var geymt en
ekki gleymt. Vickie var óþreyt-
andi við að minna lögregluna á
málið enda hafði hún lofað móð-
ur sinni því. Jafnvel eftir að for-
eldrar systranna voru látnir hélt
hún uppteknum hætti.
„Ég hugsaði ekki stöðugt um
málið, en hélt því á lífi. Eftir að ég
varð 18 ára hringdi ég stöðugt og
minnti rannsóknarlögregluna á
það,“ sagði Vickie.
Í desember, árið 2010, fékk
Mike O’Connell málið til rann-
sóknar. Þegar þar var komið sögu
var Mike, sem hafði verið á snær-
um lögreglu Washington-sýslu,
strangt til tekið sestur í helgan
stein en var þó í hlutastarfi við að
skoða gömul, óupplýst mál.
Ný DNA-tækni
Mike O’Connell fannst það til-
raunarinnar virði að greina
gömlu lífsýnin á ný og lét gera
það. Engin samsvörun fannst í
gagnagrunni lögreglunnar. Mike
lét það bakslag ekki á sig fá og fór
fram á heimild til að krefjast líf-
sýnis úr Kenneth.
Það tók aldeilis tímann að
fá þá heimild og Mike fékk ekki
grænt ljós fyrr en tveimur árum
síðar. Niðurstaðan var óvefengj-
anleg; lífsýni úr Kenneth höfðu
fundist á líki Lori.
Sennilega hélt Kenneth að
grunsemdir um aðild hans að
morðinu á Lori heyrðu sögunni
til, en fortíðin á það til að ná í
skottið á manni og sú varð raun-
in hjá Kenneth. Þann 27. febrúar
2013, rúmum 30 árum eftir
morðið, var hann handtekinn.
Ruglingsleg tilvera
Tilvera Kenneths hafði ekki orðið
einfaldari eftir að hann myrti Lori
og líf hans einkennst af ýmsum
vendingum. Hann gerðist vöru-
flutningabílstjóri, fékk viðvörun
vegna líkamsárásar á fyrrverandi
kærustu, gekk í hjónaband og tók
þátt í uppeldi tveggja stjúpsona.
Reyndar hafði hann einnig
eignast tvö börn með tveimur
konum, en látið sig litlu varða
uppeldi þeirra.
Drukkinn og reiður daginn
þann
Við réttarhöldin sagðist Kenneth
vera saklaus en aðstoðarsak-
sóknarinn hafði á orði að hann
„gæti ekki snúið á tæknina“ og
vísaði þar til niðurstöðu DNA-
-rannsóknar. Kenneth sjálfur
tjáði sig ekki við réttarhöldin og
sýndi engar tilfinningar þegar á
þau leið.
Aðstoðarsaksóknarinn sagði
að verknaður Kenneths hefði að
hans mati verið „verk illrar mann-
eskju.“ Sagði hann enn fremur að
Kenneth hefði daginn þann verið
drukkinn og reiður eftir að hafa
verið neitað um kynlíf af annarri
stúlku. Líklega hefði Lori einnig
hafnað svipuðum þreifingum og
goldið fyrir með lífi sínu.
Drap kanínu og hund
„Þetta var ekki í fyrsta eða síðasta
skipti sem sakborningur notaði
hendur sínar og vasahníf til illra
verka,“ sagði aðstoðarsaksóknar-
inn. Bætti hann við að Kenneth
hefði eitt sinn verið gripinn glóð-
volgur við að murka líftóruna úr
kanínu. Seinna hefði hann skorið
hund frænda síns á háls.
Kviðdómur réð ráðum sín-
um í um fimm klukkustundir og
komst að lokum að þeirri niður-
stöðu að Kenneth Lee væri sek-
ur um morðið á Lori. Dómarinn,
Thomas Kohl, felldi síðan þann
dóm að Kenneth skyldi afplána
að minnsta kosti 15 ár af þeim
30 ára fangelsisdómi sem hann
fékk.
Það tók 30 ár, en að lokum
náði réttlætið fram að ganga.n
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
„ Eftir að ég
varð 18 ára
hringdi ég stöð-
ugt og minnti
rannsóknarlög-
regluna á málið
88 ára konu, Alice Covington, var drekkt í baðkari á heimili sínu, í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum, þann 12. maí 1998. Morðinginn var Carlette nokkur Parker sem vann við heimaþjónustu. Fyrir
morðið hafði Parker tekið út fé af reikningi Covington. Parker var enginn
nýgræðingur í glæpum og árið 1985 játaði hún sig seka um að hafa með svikum
og prettum haft 44.000 dali af aldraðri konu, Catherine Stevenson. Parker fékk
dauðadóm árið 1999.
Kenneth Lee
Hicks Taldi sig
sennilega hafa
sloppið fyrir
horn.
Mike O’Connell
Rannsóknarlög-
reglumaðurinn
sem ekki gafst
upp.
Í dómsal
Kenneth
sýndi engar
tilfinningar við
réttarhöldin.