Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 16
16 14. sept 2018 Í hinu sögulega Wakhan- anddyri, sem liggur á milli Afganistan og Kína, er verið að byggja stórt hernaðarmann- virki. Fáum sögum fer af tilgangi mannvirkisins eða hver eða hverj- ir eru að byggja það, að minnsta kosti er fátt um svör þegar spurt er á opin berum vettvangi. Svæð- ið er erfitt yfirferðar og fáir búa þar en talið er að um 12.000 manns búi þar. Wakhan-anddyrið tengir Afganistan og Kína saman á mjóu svæði sem er eins og fyrr sagði erfitt yfirferðar. Það þykir liggja nokkuð ljóst fyrir að Kínverjar tengist verkefninu en þetta er í fyrsta sinn sem kínverski herinn hefur beina aðkomu að hernaðar- verkefni í Afganistan. En Kínverjar þvertaka fyrir að koma nokk- uð nálægt verkefninu sem og að þeir komi á nokkurn hátt nálægt hernaðarverkefnum í Afganistan. Það eina sem þeir gangast við að gera í Afganistan er að eiga öðru hverju í pólitískum viðræðum um aðgerðir gegn hryðjuverkum, ann- að ekki. En South China Morning Post, sem er með höfuðstöðvar í Hong Kong, segir að heimildir blaðsins innan kínverska hersins segi að hernaðarmannvirkið sem verið er að byggja sé fjármagnað af kín- verska hernum en sé í Afganistan. Auk þess segja heimildarmenn blaðsins að fyrirhugað sé að stað- setja 500 kínverska hermenn í hernaðarmannvirkinu, sem er líklegast einhvers konar herstöð, þegar það er tilbúið. En bæði af- gönsk og kínversk stjórnvöld þver- taka fyrir það. Afganska sendi- ráðið í Kína sagði í faxi til South China Morning Post að engir kín- verski hermenn myndu nokkru sinni stíga fæti á afganska jörð. En síðan segir sendiráðið að Afganar kunni vel að meta veru Kínverja og að samvinna ríkjanna tveggja og herja þeirra sé náin. Þetta er í algjörri mótsögn við opin bera afstöðu kín- versku ríkis- stjórnarinnar en talskona hennar vísaði þessu algjörlega á bug á fundi í kínverska utanríkis ráðu- neytinu. Sterkur orðrómur En sterkur orðrómur hefur lengi verið á kreiki um að Kínverjar væru að koma sér fyrir á svæð- inu. Þetta hefur komið fram í fjöl- miðlum og þá hafa mörg sam- tök, sem beina sjónum sínum að þessum hluta Mið-Asíu, heyrt af þessu. Fréttastofan Fergana News skýrði frá því fyrr á árinu að Kín- verjar hefðu samið við Afgana um að fjármagna og byggja hernaðar- mannvirki í Wakhan-anddyrinu. Anddyrið, svokallaða, er mjótt landsvæði sem er eina tengingin á milli Afganistan og Kína. Þetta er einhvers konar stuðpúði sem var búinn til í lok nítjándu aldar til að skilja þáverandi stórveldi svæðisins að en það voru Rúss- land og Breska heimsveldið. And- dyrið er 350 kílómetra langt og nær frá afganska Badakhshan- -héraðinu til Xinjiang í Kína. Þetta er hálendissvæði án vega en með fjölmörg fjöll sem teygja sig allt að 5.000 metra upp fyrir sjávar- mál. Fáar leiðir eru um anddyr- ið en þær eru þó til. Meðal annars er talið að Marco Polo hafi farið til Kína eftir einni þeirra þriggja leiða sem þekktar eru á svæð- inu. Opin berlega hefur verið lok- að fyrir umferð á milli ríkjanna í rúmlega 100 ár þar sem Kínverjar hafa lokað landamærum sínum en það er hin óopinbera umferð fólks sem veldur ráðamönnum í Peking ákveðnum höfuðverk og áhyggj- um. Landamæri ríkjanna eru 95 kílómetra löng og liggja eins og fyrr sagði að Xinjiang-héraðinu í Kína. Þar eiga úígúrar, sem eru múslimar, heimkynni en kínversk stjórnvöld telja héraðið gróðrar- stíu hryðjuverkastarfsemi. Kín- versk stjórnvöld telja anddyrið vera hugsanlega leið fyrir hryðju- verkamenn og vopn inn og út frá Kína. Margar tilraunir hafa verið gerðar til að fá Kínverja til að opna landamærin þannig að það- an væri fær leið inn í norðaustur- hluta Afganistan. Síðast reyndu bandarískir stjórnarerindrekar að fá Kínverja til þess fyrir níu árum. En Kínverjar hafa ekki ljáð máls á þessu. Markmið þeirra er að koma í veg fyrir alla óæskilega umferð um landamærin vegna hættu á að þar fari hryðjuverka- menn og vopn um. Kínverjar hafa veitt sem nemur um átta milljörð- um íslenskra króna í hernaðar- aðstoð við Afganistan á undan- förnum þremur árum og hafa peningarnir verið eyrnamerkt- ir baráttunni gegn hryðjuverkum. Kínverjar óttast að öfgasinnaðir múslimar hreiðri um sig í og við anddyrið og geti tekið upp sam- starf við hryðjuverkahópa í Xin- jiang. Þeir myndu síðan ógna Kína og verða miðstöð hryðju- verkastarfsemi í Kína og nærliggj- andi ríkjum sem gegna mikilvægu hlutverki í Silkileiðaráætlun Kín- verja en samkvæmt henni á leiðin að liggja um Tadsjikistan, Ús- bekistan og Kirgistan. Það er því rökrétt að koma upp herstöð og gera þannig einhvers konar tappa í anddyrinu til að koma í veg fyr- ir ferðir hryðjuverkamanna. Kín- verjar hafa einmitt gert það sama í Tadsjikistan undanfarin tvö ár en þar hafa þeir byggt ellefu landamærastöðvar á landamær- um Tadsjikistan og Afganistan. n FRÉTTIR - ERLENT King 18.816 kr. á mánuði* Queen 13.693 kr. á mánuði* KING KOIL ALPINE PLUSH Hágæða Amerískt heilsurúm með millistífu fimm svæða skiptu poka gorma kerfi, mjúkur toppur og steyptir kantar, ásamt botni og fótum. Stærð King (193x203 cm) AFMÆLISVERÐ 213.459 kr. 18.816 kr.* á mánuði með kredikortaláni Fullt verð 355.765 kr. Stærð Queen (153x203 cm) AFMÆLISVERÐ 154.070 kr. 13.693 kr.* á mánuði með kredikortaláni Fullt verð 256.783 kr. *1 2 m án að a va xt al au s k re di tk or ta lá n* *. Ei nn ig h æ gt a ð gr ei ða m eð N et gí ró . Taka sér stöðu í Afganistan Afgönsk börn við Wakhan-hliðið Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is n Kínverjar byggja hernaðarmannvirki á mörkum Kína og Afganistan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.