Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 16
16 14. sept 2018
Í
hinu sögulega Wakhan-
anddyri, sem liggur á milli
Afganistan og Kína, er verið að
byggja stórt hernaðarmann-
virki. Fáum sögum fer af tilgangi
mannvirkisins eða hver eða hverj-
ir eru að byggja það, að minnsta
kosti er fátt um svör þegar spurt
er á opin berum vettvangi. Svæð-
ið er erfitt yfirferðar og fáir búa þar
en talið er að um 12.000 manns
búi þar. Wakhan-anddyrið tengir
Afganistan og Kína saman á mjóu
svæði sem er eins og fyrr sagði
erfitt yfirferðar. Það þykir liggja
nokkuð ljóst fyrir að Kínverjar
tengist verkefninu en þetta er í
fyrsta sinn sem kínverski herinn
hefur beina aðkomu að hernaðar-
verkefni í Afganistan. En Kínverjar
þvertaka fyrir að koma nokk-
uð nálægt verkefninu sem og að
þeir komi á nokkurn hátt nálægt
hernaðarverkefnum í Afganistan.
Það eina sem þeir gangast við að
gera í Afganistan er að eiga öðru
hverju í pólitískum viðræðum um
aðgerðir gegn hryðjuverkum, ann-
að ekki.
En South China Morning Post,
sem er með höfuðstöðvar í Hong
Kong, segir að heimildir blaðsins
innan kínverska hersins segi að
hernaðarmannvirkið sem verið
er að byggja sé fjármagnað af kín-
verska hernum en sé í Afganistan.
Auk þess segja heimildarmenn
blaðsins að fyrirhugað sé að stað-
setja 500 kínverska hermenn í
hernaðarmannvirkinu, sem er
líklegast einhvers konar herstöð,
þegar það er tilbúið. En bæði af-
gönsk og kínversk stjórnvöld þver-
taka fyrir það. Afganska sendi-
ráðið í Kína sagði í faxi til South
China Morning Post að engir kín-
verski hermenn myndu nokkru
sinni stíga fæti á afganska jörð. En
síðan segir sendiráðið að Afganar
kunni vel að meta veru Kínverja
og að samvinna ríkjanna tveggja
og herja þeirra sé náin. Þetta er
í algjörri mótsögn við opin bera
afstöðu kín-
versku ríkis-
stjórnarinnar
en talskona
hennar vísaði
þessu algjörlega
á bug á fundi
í kínverska
utanríkis ráðu-
neytinu.
Sterkur orðrómur
En sterkur orðrómur hefur lengi
verið á kreiki um að Kínverjar
væru að koma sér fyrir á svæð-
inu. Þetta hefur komið fram í fjöl-
miðlum og þá hafa mörg sam-
tök, sem beina sjónum sínum að
þessum hluta Mið-Asíu, heyrt af
þessu. Fréttastofan Fergana News
skýrði frá því fyrr á árinu að Kín-
verjar hefðu samið við Afgana um
að fjármagna og byggja hernaðar-
mannvirki í Wakhan-anddyrinu.
Anddyrið, svokallaða, er mjótt
landsvæði sem er eina tengingin
á milli Afganistan og Kína. Þetta
er einhvers konar stuðpúði sem
var búinn til í lok nítjándu aldar
til að skilja þáverandi stórveldi
svæðisins að en það voru Rúss-
land og Breska heimsveldið. And-
dyrið er 350 kílómetra langt og
nær frá afganska Badakhshan-
-héraðinu til Xinjiang í Kína. Þetta
er hálendissvæði án vega en með
fjölmörg fjöll sem teygja sig allt
að 5.000 metra upp fyrir sjávar-
mál. Fáar leiðir eru um anddyr-
ið en þær eru þó til. Meðal annars
er talið að Marco Polo hafi farið
til Kína eftir einni þeirra þriggja
leiða sem þekktar eru á svæð-
inu. Opin berlega hefur verið lok-
að fyrir umferð á milli ríkjanna í
rúmlega 100 ár þar sem Kínverjar
hafa lokað landamærum sínum en
það er hin óopinbera umferð fólks
sem veldur ráðamönnum í Peking
ákveðnum höfuðverk og áhyggj-
um. Landamæri ríkjanna eru 95
kílómetra löng og liggja eins og
fyrr sagði að Xinjiang-héraðinu
í Kína. Þar eiga úígúrar, sem eru
múslimar, heimkynni en kínversk
stjórnvöld telja héraðið gróðrar-
stíu hryðjuverkastarfsemi. Kín-
versk stjórnvöld telja anddyrið
vera hugsanlega leið fyrir hryðju-
verkamenn og vopn inn og út frá
Kína.
Margar tilraunir hafa verið
gerðar til að fá Kínverja til að
opna landamærin þannig að það-
an væri fær leið inn í norðaustur-
hluta Afganistan. Síðast reyndu
bandarískir stjórnarerindrekar
að fá Kínverja til þess fyrir níu
árum. En Kínverjar hafa ekki ljáð
máls á þessu. Markmið þeirra er
að koma í veg fyrir alla óæskilega
umferð um landamærin vegna
hættu á að þar fari hryðjuverka-
menn og vopn um. Kínverjar hafa
veitt sem nemur um átta milljörð-
um íslenskra króna í hernaðar-
aðstoð við Afganistan á undan-
förnum þremur árum og hafa
peningarnir verið eyrnamerkt-
ir baráttunni gegn hryðjuverkum.
Kínverjar óttast að öfgasinnaðir
múslimar hreiðri um sig í og við
anddyrið og geti tekið upp sam-
starf við hryðjuverkahópa í Xin-
jiang. Þeir myndu síðan ógna
Kína og verða miðstöð hryðju-
verkastarfsemi í Kína og nærliggj-
andi ríkjum sem gegna mikilvægu
hlutverki í Silkileiðaráætlun Kín-
verja en samkvæmt henni á leiðin
að liggja um Tadsjikistan, Ús-
bekistan og Kirgistan. Það er því
rökrétt að koma upp herstöð og
gera þannig einhvers konar tappa
í anddyrinu til að koma í veg fyr-
ir ferðir hryðjuverkamanna. Kín-
verjar hafa einmitt gert það sama
í Tadsjikistan undanfarin tvö
ár en þar hafa þeir byggt ellefu
landamærastöðvar á landamær-
um Tadsjikistan og Afganistan. n
FRÉTTIR - ERLENT
King 18.816 kr. á mánuði*
Queen
13.693 kr.
á mánuði*
KING KOIL ALPINE PLUSH
Hágæða Amerískt heilsurúm með millistífu fimm
svæða skiptu poka gorma kerfi, mjúkur toppur
og steyptir kantar, ásamt botni og fótum.
Stærð King (193x203 cm)
AFMÆLISVERÐ
213.459 kr.
18.816 kr.* á mánuði með kredikortaláni
Fullt verð 355.765 kr.
Stærð Queen (153x203 cm)
AFMÆLISVERÐ
154.070 kr.
13.693 kr.* á mánuði með kredikortaláni
Fullt verð 256.783 kr.
*1
2
m
án
að
a
va
xt
al
au
s k
re
di
tk
or
ta
lá
n*
*.
Ei
nn
ig
h
æ
gt
a
ð
gr
ei
ða
m
eð
N
et
gí
ró
.
Taka sér stöðu
í Afganistan
Afgönsk börn við Wakhan-hliðið
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
n Kínverjar byggja hernaðarmannvirki á mörkum Kína og Afganistan