Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Page 8
8 11. maí 2018fréttir M agnús Ólafsson var lista­ maður með myndavélina. Hann var 75 ára þegar hann lést eftir stutta legu á Landakotsspítala þann 26. júlí 1937. Magnús var á meðal elstu og þekktustu borgara Reykjavíkur. Hann fæddist þann 10. maí 1862 í Saurbæ í Dalasýslu. Magnús giftist Guðrúnu Jónsdóttur og eignuðust þau sjö börn. Magnús flutti ungur með for­ eldrum sínum til Stykkishólms. Þar nam hann verslunarfræði og 23 ára gamall gerðist hann versl­ unarstjóri á Akranesi og rak versl­ un Th. Thomsen í ein 15 ár. Þá varð hann seinna oddviti Akra­ neshrepps og fjárhaldsmaður kirkjunnar á staðnum og gegndi embætti sóknarnefndarmanns. Þá var hann einn stofnenda bindindisfélags Akranes. Árið 1901 ákvað Thomsen að hætta verslunarrekstri á Akranesi. Má segja að það hafi orðið gæfa fyrir fólk sem hefur áhuga á sögu og kann að meta fallegar ljósmynd­ ir. Magnús tók þá ákvörðun að leggja fyrir sig ljósmyndagerð. Ekki leist nú öllum á þá ákvörðun, sex barna faðir með nánast tvær hendur tómar eftir flutning til höfuðborgarinnar. En Magnús var staðráðinn í að læra fagið og hélt til Kaupmannahafnar til að ljúka námi og festi kaup á þeim besta búnaði sem völ var á, kom heim og opnaði ljósmyndastofu í Reykjavík. Á hverju sumri ferðaðist Magn­ ús um landið þvert og endilangt og tók fagrar myndir af landslagi og fólki. Eru myndir Magnúsar margar unun á að horfa og óhætt að fullyrða að hann hafi verið brautryðjandi á sviði ljósmyndun­ ar. Vöktu myndir hans af náttúru Íslands athygli bæði hér heima og erlendis. Erfitt er að meta verk Magnúsar en ljóst að þær verða aldrei metnar til fjár. Magnús var einnig fyrstur til þess hér á landi að lita stækkaðar myndir og nýtti til þess vatnsliti. Í minningargrein um Magnús segir að hann hafi verið teiknari góður og líklega get­ að orðið einn okkar fremstu list­ málara hefði hann haft áhuga á að leggja þá listgrein fyrir sig. Þá mun Magnús hafa smíðað sínar eigin myndavélar. Síðustu tíu ár ævi sinnar dró Magnús sig mikið til í hlé. Hann hafði tapað heyrn og hafði það djúpstæð áhrif á hann. Dvaldi hann því mikið á heimili sínu. Í minningargrein um Magnús segir: „Var hann sístarfandi heima fyrir, enda næstum alltaf heilsuhraust­ ur, þar til hann kenndi sjúkdóms þessa, hjarta bilunar, sem leiddi hann til bana eftir stutta legu.“ Myndabanki Magnúsar er geymdur hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Safnið er eitt fjöl­ margra stofn ana í heim inum sem hlaðið hefur inn merki­ legum gömlum ljós myndum hjá Commons­ verkefninu hjá vef síð­ unni Flickr. Við hvetjum lesendur til að heimsækja Ljósmyndasafn Reykjavíkur, bæði á neti og í raun­ heimum. Hér má sjá ýmsar stórbrotnar myndir sem sýna hvernig lífið var í Reykjavík og nágrenni fyrir um 100 árum. n Aftur í tímann með merkasta myndasmið landsins n Lífið í Reykjavík fyrir 100 árum n Hætti sem kaupfélagsstjóri til að gerast ljósmyndari n Sex barna faðir með tvær hendur tómar n Smíðaði eigin myndavélar Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is Um 1917 Sex konur í skrúðgarði við Thorvaldsensstræti 6, Önnur f.v. er Kristjana Blöndal, en önnur f.h. er Guðrún Magnúsdóttir. Í baksýn er Thor- valdsensstræti 2–4.1910–1920 Maður og kona á hestbaki á Vonarstræti í Reykjavík. 1924–1925 Fólk á gangi í Austurstræti. Pósthúsið, Sápuhúsið og Íslandsbanki. Gamla bíó í byggingu. 1910–1930 Prjónað í setustofu Sigurjóns snikkara og Elínar konu hans að Vonarstræti 8. Dóttir Páls Einarssonar borgarstjóra t.v. og sennilega Helga. Í dyrum er Sigurjón snikkari. Hópur kvenna að tedrykkju í kringum 1910. 1910–1920 Hópur af mönnum á áningarstað við fjallavatn. Þeir virðast vera með einhvers kona mælitæki. Magnús Ólafsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.