Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 37
 11. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Sumir fá sér súkkulaði bara til að finna sætt bragð í munninum en þeim fer sífellt fjölgandi sem vilja fá ríkulegri upplifun af súkkulað- ismakki en það. Súkkulaðiframleiðsla er í metnaðarfullri þróun hér á landi, ekki síst hjá handverks-súkkulaði- smiðjunni Omnom sem hefur unnið til fjölda alþjóðlegra gæðaverðlauna. Omnom hefur verið framarlega í þróun á hvítu súkkulaði, sem vel að merkja er ekki endilega hvítt í útliti: „Hvítt súkkulaði er sérstakur flokkur innan súkkulaðigeirans þar sem yfirleitt er notast við kakósmjör, mjólkurduft og sykur, oftar en ekki bragðbætt með með vanillu. Hvíta súkkulaðið sem við höfum verið að gera í gegnum tíðina er frábrugðið hefðbundnu súkkulaði að því leyti að við notum kakósmjörið sjálft en ekki nibburnar eða massann, og því kem- ur ekki þetta hefðbundna súkkulaði- bragð heldur fremur súkkulaði- áferðin,“ segir Kjartan Gíslason, einn stofnenda Omnom. Af hvítu súkkulaði frá Omnom hingað til eru frægustu tegundirnar líklega lakkríssúkkulaði þar sem not- ast er við lakkrísrót, og kaffisúkkulað- ið sem er með kaffibaun. Núna er Omnom búið að setja á markaðinn afar óvenjulega afurð sem veitir mjög sérstæða og eftirminnilega upplifun: Black N’ Burnt Barley. „Þetta varð til upp úr tilraunum okkar með hvítt súkkulaði sem átti að hafa maltkeim og þess vegna notuð- um við ristað maltduft. Bruggverk- smiðjan Ölvisholt hefur oft verið með súkkulaði-pörunarkvöld með okkur og þeir eru með brennt maltað bygg. Sú hugmynd varð til að prófa að setja það saman við þessa blöndu sem var langt komin hjá okkur.“ Brennda maltbyggið fór með bragðblönduna á alveg nýjar slóðir, bragðið er svo óvenjulegt að Om- nom gaf sér lengri tíma en ella til að prófa vöruna áður en hún var sett á markað. Viðbrögðin hjá þeim sem hafa smakkað hafa hins vegar verið á þann veg að það er ekki lengur eftir neinu að bíða og núna er Black N’ Burnt Barley komið í verslanir. „Ég hef aldrei bragðað neitt þessu líkt,“ hefur verið algengt viðkvæði hjá þeim sem hafa gætt sér á vörunni. Hvað er það sem gerir þetta súkkulaði svona sérstakt? „Fyrir utan brennda maltbyggið og annað áðurnefnt sem komið var í blönduna hjá okkur þá notum við salt frá Saltverki. Þeir eru að fram- leiða hraunsalt með viðarkolasvertu, sem er náttúrulegt litarefni og er mikið notað í matvælaframleiðslu, en hún gefur léttan svartan lit – ýkir svertuna. Við notum síðan bygg frá Móður Jörð í Vallarnesi. Við poppum Stjörnupopp og stráum yfir súkkulað- ið. Þannig verður til skemmtileg, stökk áferð,“ segir Kjartan. Black N’ Burnt Barley er selt í verslunum Hagkaupa, Melabúðinni, Vínberinu við Laugaveg og ýmsum öðrum verslunum – að ógleymdri súkkulaðiverslun Omnom að Hólma- slóð 4. Sjá nánar á omnomchocolate.com. Mæðradagurinn „Ég hef aldrei bragðað neitt þessu líkt“ NýJA SúKKuLAðið Frá OMNOM er MÖGNuð uppLiFuN:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.