Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Page 38
11. maí 2018KYNNINGARBLAÐ
Hjá Bjarkarblómum er lögð mikil áhersla á framúrskarandi úrval af ferskum blómum auk fjöl-
breyttrar gjafavöru þar sem íslensk
hönnun skipar stóran sess.
„Sumarlegir blómvendir eru vin-
sælastir fyrir mæðradaginn, það er
enginn einn litur sem er alls ráðandi.
Bleiku blómin hafa oft staðið upp úr,
en ekki algilt samt,“ segir Bergþóra
Björg Karlsdóttir, eigandi Bjarkar-
blóma sem staðsett er við nýja inn-
ganginn í Smáralind og í Þorlákshöfn.
„Það er algengt að feður komi með
börn sín alveg frá 1–2 ára aldri að
velja blóm handa mömmu. Dagurinn
er orðinn stærri í blómum en konu-
dagurinn og mömmur eru á öllum
aldri. Það eiga flestir mömmu, en það
eiga ekki allir konu eða kærustu.“
Bergþóra byrjaði í blómabrans-
anum í mars 2010 hjá fyrri eiganda
Bjarkarblóma. „Það leiddi til þess að
ég fór í garðyrkjuskólann og í verk-
nám hjá henni og ég útskrifaðist sem
blómaskreytir 2014. Þá flutti ég til
Þorlákshafnar og opnaði búðina þar,
síðan í fyrra ákvað fyrri eigandi að
selja fyrirtækið og ég ákvað að kaupa
minn gamla vinnustað.“
Gjafir sem henta vel með handa
mömmu
Margir velja að láta litla gjöf fylgja
með blómvendinum og hjá Bjarkar-
blómum fæst ýmis gjafavara
sem hentar vel með: til dæmis
hjörtu sem á stendur „mamma
er besta mamma í heimi,“ bollar,
súkkulaði og púðar.
„Hjá okkur fást púðar frá J B
art sem eru mjög vinsælir með
kvenkynsstikkorðum, eins og
einstök, falleg, frábær, æðisleg, kær-
leiksrík og svo framvegis sem segir allt
sem segja þarf um mömmu manns.
En blómin eru samt númer 1, 2 og 3 á
mæðradeginum.“
Bjarkarblóm er með
heimasíðuna bjarkarblom.
is og er einnig á Facebook,
Instagram og Snapchat.
Síminn er 578-5075
og netfangið bjarkar-
blom@bjarkarblom.is.
„Á Snapchat má fylgjast
með blómum, tilboðum og
eins þegar ég er að útbúa
blómaskreytingar.“
Mæðradagurinn
Það er fátt skemmtilegra en fjórhjólaferð eða RIB-bátaferð í heillandi umhverfi. Fyrirtækið Black Beach Tours býður upp á slíkar ferðir í
Þorlákshöfn. Fjaran þar er einkar falleg, um 10 kíló-
metra löng sandströnd (eldfjallaströnd) sem nær
frá Ölfusá að bænum og mætir þar tilkomumiklum
klettaveggjum að vestanverðu. Ógleymanlegt er
að fara þarna um á fjórhjóli eða RIB-báti.
Black Beach Tours býður upp á þessar fjór-
hjólaferðir allt árið um kring. Annars vegar eru í
boði klukkustundarlangar ferðir eftir ströndinni og
hins vegar þriggja tíma ferðir þar sem farið er um
hraun með viðkomu í helli á leiðinni.
RIB-bátaferðir eru í boði á tímabilinu apríl–
október og er þar hægt að velja á milli 30 mínútna
adrenalínferðar, klukkustundarlangrar ferðar og
tveggja tíma ferðar, en sú
síðastnefnda liggur vestur
í Krýsuvíkurbjarg. Einnig er
hægt að splæsa saman fjór-
hjólaferð og RIB-bátaferð sem
er afar skemmtileg og vinsæl
blanda.
Black Beach Tours er með mjög góða
aðstöðu fyrir starfsmanna- og vinahópa
þar sem hægt er að bjóða upp á veitingar
eftir ferðir, allt eins og hentar hverjum hópi.
Á www.blackbeachtours.is er að finna nánari
upplýsingar um allar ferðir og verð þeirra. Ef um
hópa er að ræða er best að óska eftir tilboðum
með tölvupósti á info@blackbeachtours.is eða
með því að hafa samband í síma 625-0500.
Ógleymanleg
upplifun í
Þorlákshöfn
BlAcK BEAcH TouRS:
BJARKARBlÓM:
Fallegir vendir og gjafa-
vara til að gleðja mömmu„Sumarlegir
blómvendir
eru vinsælastir
fyrir mæðradaginn
Opnunartími:
Mánudaga–miðvikudaga
kl. 10–19
Fimmtudaga kl. 10–21
Föstudaga kl. 10–19
laugardaga kl. 10–18
Sunnudaga kl. 12–18
Bjarkarblóm í Þorlákshöfn er opin
frá kl. 13–17 miðviku-, fimmtu- og
föstudaga.