Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 57
fólk 5711. maí 2018
Píratar – Greyjoy
Hin svartklædda og brúna-
þunga Greyjoy-ætt
byggir völd sín á
sjóránum. Sjó-
ræningjar frá Járn-
eyjunum hafa siglt
upp öll fljót á megin-
landinu og angrað þá
sem þar búa líkt og
Píratarnir með sínar
rannsóknarnefndir og
spurningaflóð.
Miðflokkurinn – Clegane
Það er öllum ljóst að Miðflokkurinn vill vinna með Sjálfstæðisflokkn-
um líkt og Clegane-ættin sem ver Lannister fram í rauðan dauð-
ann. Forsprakkar Miðflokksins, Vigdís Hauksdóttir og Sveinn Hjörtur
Guðfinnsson, minna óneitanlega á hina öflugu og miskunnarlausu
Clegane-bræður, Vigdís á Hundinn og Sveinn á Fjallið. Þegar þau
koma ríðandi í hlað er best að forða sér.
KrúnuleiKar í reyKjavíK
Samfylkingin –
Stark
Stark-ættin er
góða fólkið,
svo réttsýnt að
áhorfendum
verður flökurt.
Þetta vamm-
leysi og skortur
á klókindum get-
ur hins vegar orðið
til þess að menn missi höfuðið eins
og foringi þeirra Eddard fékk að
kynnast. Samfylk-
ingin verð-
ur að læra
að bíta
frá sér ef
hún ætl-
ar að lifa
af í hörð-
um heimi.
Spyrjið bara
Oddnýju.
Sjálfstæðisflokkurinn – Lannister
Lannister-ættin er líkt og Sjálfstæðisflokkurinn erkitýpan af
illsku þó að þar leynist einstaka grey með samvisku inni á
milli. Þetta er ættin sem gerir hvað sem er fyrir völd og á nóg
af skildingum til að láta óþægileg mál hverfa. Líkt og systkin-
in Jaime og Cersei eru Eyþór Arnalds og
Hildur Björnsdóttir óárennileg sem and-
stæðingar en hver veit hvað fer fram bak
við tjöldin? Vinstri græn – Martell
Dorne, svæði Mart-
el-ættarinnar, er
himnaríki há-
skólamennt-
aðra um-
hverfissósía-
lista. Þar er fólk
af öllum kyn-
þáttum, konur eru
áberandi og valdamiklar
og æðsti valdhafinn, Doran prins, er
fatlaður. Líkt og margir vinstri leiðtogar
lifir Martell-ættin í sérstaklega miklum
vellystingum í Vatnagörðunum.
Viðreisn
– Arryn
Arryn er átaka-
fælin ætt sem
lokar sig af bak við
hið Blóðuga hlið á
meðan allar aðrar ættir berast á bana-
spjótum. Þess í stað hugsar leiðtogi
þeirra, Lysa Arryn, einungis um eigin
ástamál á meðan hún gefur stálpuð-
um syni sínum brjóst. Að loka aug-
unum fyrir vandamálum borg-
arinnar og ræða aðeins um
þægileg málefni er list sem
Þórdís Lóa
Þórhalls-
dótt-
ir kann
vel.
Kvenna-
hreyfingin
– Targaryen
Þegar þrælaborgin
Yunkai var frelsuð hóp-
uðust allir hinir nýfrelsuðu
þrælar að Daenerys Targar-
yen og hrópuðu „Mhysa!
Mhysa!“ eða „Móðir! Móð-
ir!“. Hér var kominn fram nýr
leiðtogi sem hafði hin kvenlegu
gildi gæskunnar og réttlætis-
ins að leiðarljósi, móðir alls
mannkyns. Sama gild-
ir um Ólöfu Magnús-
dóttur hjá Kvenna-
hreyfingunni en hún
á þó enga dreka til
að fleyta henni
inn í borgar-
stjórn.
Sósíalistaflokkurinn – Tully
Tully-ættin ríkir á Fljótasvæðinu sem liggur mitt á
milli flestra annarra svæða í Westeros. Í
hvert skipti sem brjótast út átök
lendir þessi hópur því undir.
Húsin eru brennd ofan af
fólki, öllu fé stolið og þaðan
af verra. Líkt og Tully-ætt-
in þarf Sósíalistaflokkurinn
að berjast fyrir því að fá að
vera til.
Borgin mín
Reykjavík – Bolton
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir
vill svipta öll skólabörn snjallsímunum
líkt og Ramsay Bolton vill svipta fólk
húðinni. Ramsay kom einmitt fram
á sjónarsviðið sem eitt mesta
illmenni þáttanna um svipað
leyti og Sveinbjörg beitti sér
gegn moskubyggingu. Þræðir
þeirra liggja
saman.