Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Qupperneq 60
60 fólk 11. maí 2018
G
uðrúnu Vilmundardóttur,
bókaútgefanda og eiganda
Benedikt bókaútgáfu var
komið skemmtilega á óvart
nýlega þegar Jón Kalman rithöf-
undur bauð henni á Snaps.
Lokkaði hann hana á staðinn
með loforði um glimrandi hug-
mynd, sem kallaði að hans sögn
á „dinner“ og
vín. „Eiríkur
Guðmunds-
son má
koma
með,
hann er
annar
hug-
mynda-
smiðurinn, annars er þetta við-
kvæmt mál og má alls ekki bæta
í selskapinn,“ hefur Guðrún eftir
honum á Facebook-síðu sinni.
Guðrún var að eigin sögn
spennt, en þegar þau mættu á
svæðið kom leynimakkið í ljós. Jón
hafði kallað saman alla höfunda
Benedikt, nema Friðgeir Einars-
son, sem staddur var í Grikklandi.
Líklegt er að sjaldan eða aldrei
hafi jafn margir öflugir rithöfund-
ar setið að kvöldverði á sama stað.
Adolf Smári, Þórdís Gísladótt-
ir, Auður Ava, Jón Kalman, Sigga
Hagalín, Guðrún Vilmundardóttir,
Ingunn Snædal, Óskar Árni, Berg-
þóra Snæbjörnsdóttir og Eiríkur
Guðmundsson.
Forsetafrúin fyrrverandi á Met Gala
F
yrr ver andi for setafrú Íslands
og athafnakonan, Dor rit
Moussai eff, lét sig ekki vanta
á Met Gala-kvöldinu nú á
dögunum, eins sjá má í mynda-
safni tímaritsins Vogue. Kvöldið
áður hafði Dorrit verið gestgjafi
í veislu í New York á vegum húð-
vörumerkisins Bioeffect og var því
stutt á milli herlegheita.
Fyrsta mánudaginn í maí,
ár hvert, mæta stærstu stjörnur
og færustu hönnuðir heims við
Metropolitan Museum of Modern
Art-safnið í New York. Netmið-
ill Vogue birti fjörutíu myndir frá
kvöldinu í albúmi merktu ljós-
myndaranum Daniel Arnold og
smellti hann af einni góðri mynd
af fyrrverandi forsetafrúnni þar
sem blasir við snjallsími á lofti,
kátur svipur og þessa grínmynd.
J
úlíus Sigurjónsson, sem
jafnan er kenndur
við Júlladiskóin sem
hann hefur haldið
síðustu ár, hætti nýlega
í dagvinnunni, en hann
hafði starfað hjá Wurth
síðastliðin níu ár.
Í sumar mun hann starfa
sem flugþjónn hjá Icelandair og
að öllum líkindum skella í nokkur
Júlladiskó milli þess sem hann hefur
sig til flugs. Önnur lönd eru þó ekki
einu ævintýrin sem Júlli mun lenda í
í sumar, því hann á von á barni með
sambýliskonu sinni, Sigurbjörgu
Hjálmarsdóttur tónlistarkennara.
Júlli á fyrir dótturina Júlíu Hrönn sem
er átta ára.
Fjölgun hjá fremsta grínista landsins
A
ri Eldjárn er orðinn einn
af okkar fremstu uppi-
stöndurum og grínist-
um. Það er hins vegar
ekkert grín að hann og kona
hans, Linda Guðrún Karlsdótt-
ir, eiga von á sínu öðru barni, en
fyrir eiga þau dótturina Arneyju
Díu sem er fjögurra ára.
Gríngenin renna greinilega í
beinan legg því Linda hefur eft-
ir dóttur þeirra: „Mamma þú ert
orðin eins og stór kjötbolla.“
„Mér fannst það ágætis merki
um að það væri orðið tímabært
að tilkynna komu litlu systur
hennar í ágúst,“ segir Linda á
Facebook-síðu sinni.
Dorrit Moussaieff náðist
á mynd hjá Vogue
Júlíus Sigurjónsson fer
úr diskógallanum í háloftin
Mynd: Brynja
Guðrúnu boðið í
óvænt Benedikts-boð
Stuð á Snaps:
Jóna og Úlfur leita að
Evrópusinnuðum hugmyndum
Hvað á sonurinn að heita?:
J
óna Sólveig Elínardóttir, fyrrverandi þingmaður
Viðreisnar, og maður hennar, Úlfur Sturluson al-
þjóðastjórnmálafræðingur, eiga von á sínu fjórða
barni í september.
Var þetta opinberað á Facebook-síðu Jónu þann
9. maí. Jóna og Úlfur eiga fyrir þrjár dætur og voru
því fastlega búin að gera ráð fyrir að stúlku-
barn yrði raunin nú. Þau höfðu komið sér
saman um nafnið Evrópa Von (Evrópa Ósk
eða Evrópa Merkel til vara) enda eru þau bæði
miklir Evrópusambandssinnar. En þá fékk fjöl-
skyldan þær fregnir að drengur væri á leiðinni
og vandaðist þá málið. Konráð Adam, í höf-
uðið á Conrad Adenauer
Þýskalandskanslara, kem-
ur til greina en Jóna og
Úlfur leita nú eftir fleiri
Evrópusinnuðum hug-
myndum.