Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Side 6
6 29. júní 2018FRÉTTIR
S
igurður Þórðarson, settur
ríkisendurskoðandi varð-
andi málefni Lindarhvols
ehf., þáði rúmar 20 millj-
ónir króna á síðasta ári fyr-
ir endurskoðun ársreiknings
félagsins sem og eftirlit með
framkvæmd samnings milli þess
og ríkisins um sölu á eignum. Í
heildina hefur Sigurður innheimt
um 31 milljón króna fyrir sín störf
á rúmum tveimur árum. Verk-
efni hans er að mestu leyti lokið
en hann á þó enn eftir að skila af
sér skýrslu varðandi niðurstöð-
ur eftirlitsins. „Ég þarf að gera
grein fyrir því í hvað þessir pen-
ingar hafa farið,“ segir Sigurður í
samtali við blaðamann. DV hef-
ur heimildir fyrir því að innan
stjórnsýslunnar hafi hinn mikli
kostnaður við störf Sigurðar kom-
ið á óvart og sumir telji að hann
hafi jafnvel farið út fyrir verksvið
sitt. Sigurður vísar því alfarið á
bug og segir að verkefni hans sé
skýrt í lögum.
Skipaður út af vanhæfni
Ríkisendurskoðanda
Í apríl 2016 stofnaði Ríkissjóð-
ur Íslands félagið Lindarhvol ehf.
til þess að annast umsýslu, fulln-
ustu og sölu þeirra eigna sem
runnu ríkissjóði í skaut eftir að
kröfuhafar fallinna viðskipta-
banka og sparisjóða reiddu fram
svonefnd stöðugleikaframlög.
Meðal annars var um að ræða
hluti í Arion banka, Reitum, Sím-
anum, Lyfju og Klakka, áður Ex-
ista, svo eitthvað sé nefnt.
Í stjórn félagsins voru til-
nefndir þrír einstaklingar, meðal
annars Þórhallur Arason, fyrrver-
andi skrifstofustjóri í fjármála-
og efnahagsráðuneytinu, sem
var útnefndur stjórnarformað-
ur. Ríkisendurskoðun var falið að
endurskoða félagið og hafa eft-
irlit með framkvæmd samnings-
ins milli þess og ríkisins. Starf-
andi ríkisendurskoðandi á þeim
tíma var Sveinn Arason, bróðir
Þórhalls. Hann brást við skipun
bróður síns með því að upplýsa
ráðuneytið formlega um tengslin
og benda á vanhæfi sitt. Niður-
staðan varð sú að áðurnefndur
Sigurður Þórðarson, fyrrverandi
ríkisendurskoðandi, var skipað-
ur settur seturíkisendurskoðandi
varðandi málefni Lindarhvols.
31 milljón í
endurskoðun og eftirlit
Þrátt fyrir að gríðarlegir hags-
munir séu undir varðandi starf-
semi Lindarhvols þá er rekstur
félagsins frekar einfaldur. Enginn
starfsmaður er á launaskrá fé-
lagsins. Stjórn félagsins gerði
samning við lögfræðistofuna Ís-
lög, sem er í eigu Steinars Þórs
Guðgeirssonar, um að halda utan
um sölu eignanna. Í ársreikningi
ársins 2017 kemur fram að rekstr-
artekjur félagsins, sem er í raun
framlag ríkisins, hafi verið rúm-
lega 85 milljónir króna. Á móti
eru rekstrarkostnaður upp á 48,6
milljónir króna, laun stjórnar-
manna voru 16,6 milljónir króna
og kostnaður við endurskoðun
fyrirtækisins rúmlega 20 milljón-
ir króna.
Í skýringum kemur fram að
endurskoðun ársreiknings-
ins hafi kostað tæplega 800 þús-
und krónur en eftirlit með fram-
kvæmd samningsins hafi numið
um 19,2 milljónum króna árið
2017. Til samanburðar var kostn-
aðurinn sem Sigurður innheimti
um 2,5 milljónir króna árið 2016
og fyrstu fimm mánuði ársins
2018 var kostnaðurinn 8,5 millj-
ónir króna. Alls hefur Sigurður því
fengið rúmlega 31 milljón króna
fyrir störf sín sem settur ríkisend-
urskoðandi.
Skipunartími Sigurðar rann
út þann 1.maí síðastliðinn þegar
Skúli Eggert Þórðarson tók við
sem nýr ríkisendurskoðandi af
Sveini Arasyni. Þar með var emb-
ættið ekki lengur vanhæft til þess
að sinna endurskoðun og eftirliti
með starfsemi Lindarhvols.
Þörf á auknu fjármagni
Sigurður hefur því að mestu lok-
ið störfum sínum. Hann vinn-
ur nú að því að skila skýrslu um
niðurstöðu eftirlitisins. „Þetta
voru tvö aðskilin verkefni. Annars
vegar endurskoðun á ársreikningi
Lindarhvols og hins vegar eftirlit
með framkvæmd samningsins milli
Lindarhvols og ríkisins um fulln-
ustu þessara eigna sem tekin voru
frá slitabúunum. Það var stóra ver-
kefnið. Ég tel að þörf sé á auknu
fjármagni í það eftirlit enda er ver-
kefnið umfangsmikið og gríðarleg-
ir hagsmunir undir,“ segir Sigurður.
Hann segir að fljótlega muni hann
kynna niðurstöður athugunar sinn-
ar fyrir „réttum aðilum“ og í kjölfar-
ið verði þær gerðar opinberar.
En telur Sigurður að hann hafi
farið út fyrir verksvið sitt? „Nei,
það er alveg skýrt samkvæmt lög-
um. Með setningu minni voru mér
falin þessi tvö verkefni,“ segir Sig-
urður. n
Rukkaði Lindarhvol um 31 milljón
króna fyrir endurskoðun og eftirlit
Settur ríkisendurskoðandi:
n Sigurður Þórðarson mun skila af sér skýrslu á næstunni n Þörf á meira fjármagni í eftirlitið
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Sigurður Þórðarson, settur ríkisendurskoðandi.
A
ndri Gunnarsson,
lögmaður og eigandi
lögmannsstofunnar
Nordik, er með réttar-
stöðu sakbornings í rannsókn
skattrannsóknarstjóra og
héraðssaksóknara á meintum
skattalagabrotum útflutn-
ingsfyrirtækisins Sæmark
ehf. Greint var þessu í frétt-
um Stöðvar 2 í vikunni. Andri
er sonur Gunnars Einarsson-
ar, bæjarstjóra í Garðabæ.
Brotin eru sögð vera
þau umfangsmestu sem
upp hafa komið hér á landi
en þau snúa að meintum
skattaundanskotum Sigurð-
ar Gísla Björnssonar, stofnanda
og eiganda Sæmarks ehf. Tengist
Andri málinu sem lögmaður og
viðskiptafélagi Sigurðar Gísla en
fram kemur að húsleit
hafi verið gerð á á lög-
mannsstofu Andra í byrj-
un maímánaðar. Lands-
réttur hafnaði í síðustu
viku kröfu Andra um af-
hendingu þeirra gagna
sem haldlögð voru við
leitina.
Andri hefur verið um-
svifamikill í íslensku við-
skiptalífi undanfarin ár.
Hann og Sigurður Gísli eru
viðskiptafélagar í gegn-
um eignarhaldsfélagið
Óskabeini sem er eig-
andi að hlut í VÍS og
Kortaþjónustunni.
Þá var Andri í hópi
fjárfesta sem keyptu
fimm hótel, þar á
meðal KEA-hótel
og Hótel Borg árið
2012. Hótelin voru
seld árið 2017 með
góðum hagnaði.
Ekki liggur fyrir
hver aðild Andra er
að meintum skatta-
lagabrotum. n
audur@dv.is
Bæjarstjórasonur með réttarstöðu sakbornings
Andri
Gunnarsson.
Gunnar
Einarsson
bæjarstjóri.