Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 8
8 29. júní 2018FRÉTTIR D ýrasta umsýslugjaldið sem fasteignasölur innheimta er rúmlega 60% dýrara en ódýrasta gjaldið sem í boði er, samkvæmt úttekt DV. Af úrtaki DV er dýrasta gjaldið hjá Fold fasteignasölu, eða 79.980 krón- ur. Til samanburðar er ódýrasta gjaldið 48.900 krónur hjá Fast- eignasölunni Bæ. Gjaldið hefur sætt nokkurri gagnrýni því óljóst þykir hvað sé innifalið í gjaldinu og dæmi eru um að kaupendur hafi hreinlega neitað að greiða það. Þannig greindi stórleikar- inn Jóhannes Haukur Jóhannes- son frá því á dögunum að hann hefði tvisvar lent í rimmu við fast- eignasala út af gjaldinu og þurft að hóta að hætta við viðskiptin ef ekki yrði fallið frá því. Hann fékk sínu framgengt. Annað gjald sem er mishátt hjá fasteignasölum er svonefnt gagnaöflunargjald sem seljend- ur fasteigna eru rukkaðir um. Það gjald er til þess að standa straum af kostnaði við afrit af þinglýstum skjölum, veðbandayfirliti, teikn- ingum og öðru sem er nauðsyn- legt að afla til upplýsingar um fasteignina. Ódýrasta gjaldið er 24.800 krónur hjá Hraunhamri fasteignasölu en dýrasta gjaldið er 59.900 krónur hjá Remax og Lind fasteignasölu. Verðmunur- inn er um 140%. Margháttuð aðstoð, samskipti og ráðgjöf Þegar fjárfest er í fasteign er kaup- andi eignarinnar iðulega rukkað- ur um áðurnefnt umsýslugjald auk kostnaðar við þinglýsingu skjala og stimpilgjöld. Gjaldið þykir afar umdeilt, ekki síst vegna þess að óljóst þykir hvaða þjón- ustu kaupandinn er að kaupa. Á vef Félags fasteignasala eru nokk- ur atriði tiltekin til þess að rétt- mæta innheimtu gjaldsins. Þar kemur fram að um sé að ræða „margháttaða aðstoð og ráð- gjöf við gerð kauptilboðs í fast- eign“ sem og „margháttuð sam- skipti við lánastofnanir, meðal annars vinnu við veðflutninga, uppgreiðslu lána, tryggja að fé skili sér á rétta staði, útbúa skilyrt veðleyfi, ná í lánsskjöl, auk marg- háttaðra annarra sam- skipa við lánastofnanir. Oft er um mjög tíma- freka og vandmeð- farna vinnu að ræða.“ Þá er vísað í siðaregl- ur félagsins til að árétta að í gegnum allt ferlið hafi kaupendur mjög greiðan aðgang að fast- eignasölum. Það sé einnig svo ef eitthvað fer úrskeiðis því fast- LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060 Greiðslulausnir tengdar helstu afgreiðslukerfum Sjálfstandandi greiðslulausnir og handfrjálsir posar Mikill munur á umsýslu- gjöldum fasteignasala n Rúmlega 140% verðmunur á umsýslugjaldi n Afar umdeilt gjald Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Kaupandi á að geta þinglýst sín- um skjölum sjálfur og hefur væntanlega mikla hagsmuni af því að þing- lýsing fari þannig að við eigum erfitt með að sjá af hverju kaupandanum er ekki treystandi og hvern- ig fasteignasali verður ábyrgur ef þessi umsýsla ferst fyrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.