Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐA 29. júní 2018 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur Suðurlandsbraut 14 2. hæð 108 Reykjavík FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Hvernig í ósköpunum getum við gagnrýnt Heimi? M argir góðir félagar mínir eru sífellt að hnippa í mig og segja mér að gagnrýna Heimi Hallgrímsson fyrir hitt og þetta. „Spurðu Heimi að því af hverju þessi sé ekki í hópnum?“ eða „Hvað var hann að hugsa með því að stilla liðinu svona upp?“ Eftir að íslenska landsliðið lauk keppni á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi urðu nokkrir af þess- um félögum enn æstir og báðu mig um að núna þyrfti ég afdrátt- arlaus svör við hinu og þessu. Stundum hafa þessir félagar mín- ir eitthvað til síns máls en oftar en ekki er þetta tóm steypa. Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hef- ur síðustu fjögur ár verið að skrifa söguna, söguna sem enginn bjóst við að hægt væri að skrifa. Hver sá það fyrir sér í kringum 2010 að íslenska karlalandsliðið kæmist á Evrópumótið? Enginn. Hver sá það fyrir sér að íslenska landsliðið kæmist á Heimsmeistaramótið í Rússlandi? Enginn. Heimir veit betur en við Þegar rætt er um valið á íslenska landsliðinu er umræðan yfirleitt þannig að aðeins er talað um það af hverju þessi og hinn sé ekki í hópnum. Iðulega þegar sú um- ræða fer af stað er sá sem talar hæst yfirleitt ekki með svörin við því hver ætti að detta úr hópnum í staðinn. Þegar Heimir var nýr í starfi þá var maður oftar en ekki að spyrja út í samsetningu hópsins. Svarið var alltaf það sama. Heimir sagðist vera að velja besta hópinn að þessu sinni. Í það verkefni sem liðið væri á leið út í, eftir góð úrslit og mögnuð afrek. Af hverju ætti ég og þú að efast um að Heimir sé ekki að velja réttan hóp? Hann hefur oft sannað það að hann veit betur en við hin, hann veit hvað íslenska landsliðið þarf. Hann veit hvern- ig samsetningin á hópnum þarf að vera, það eru kannski ekki alltaf bestu knattspyrnumennirnir sem eru valdir. Auðvitað eru þeir valdir, en það sem ég á við er að stundum er leikmaður sem er kannski betri en sá sem er í hópnum ekki valinn. Ástæðan getur verið margþætt en Heimir hugsar mikið út í það hvernig allur 23 manna hópurinn nær saman, hvernig andrúmsloft- ið verði og að allir séu á sömu línu. Að ekki sé maður í hópnum sem verður reiður og pirraður á bekkn- um, sem smitast svo út í fleiri. Þessa list hefur Heimir fullkomn- að, til að vera í íslenska landsliðinu þá þarftu að róa í sömu átt og all- ir hinir. Annars hefðum við aldrei náð þessum árangri. Sófasérfræðingurinn „klikkar ekki“ Heimir hefur verið gagnrýndur fyr- ir þá staðreynd að hann breytti um leikkerfi fyrir leikinn gegn Nígeríu á Heimsmeistaramótinu. Hún er réttmæt en það er líka þunn lína á milli. Íslenska liðinu mistókst í þetta sinn en litlu mátti muna að við hefðum hampað Heimi enn einu sinni sem snillingi. Íslenska liðið fékk færi til að komast yfir í fyrri hálfleik og þá ætla ég að leyfa mér að fullyrða að leikurinn hefði unnist. Eftir leik var Heimir gagn- rýndur en enginn gagnrýndi hann fyrir leik. Sófasérfræðingurinn er mjög góður í því að sjá hlutina eftir að þeir hafa gerst. Við þurftum á Kolbeini að halda Ef ég ætti að gagnrýna Heimi fyrir eitthvað í aðdraganda Heimsmeistaramótsins og það sem gerðist í Rússlandi, þá er það einn hlutur. Það sá ég samt ekki fyrr en eftir mótið svo því sé haldið til haga. Það sem Heimir hefði gjarnan mátt gera var að gefa sér meiri tíma í að reyna að fá Kolbein Sigþórsson með til Rússlands. Þegar Heimir valdi hóp sinn var Kolbeinn bara nýbyrjaður að spila með Nantes. Þegar Heimir skildi Kolbein eftir heima þá skildi ég þá ákvörðun mjög vel, hann hafði verið lengi frá en var að koma til baka. Hann hefði hins vegar get- að gefið honum tvær vikur í æf- ingar og svo valið lokahóp sinn. Á HM vantaði okkur Kolbein, það var stóri munurinn frá EM. Hann hefði valdið usla í 20–25 mínútur í leikjum. Það er ég viss um, en gat ég sagt þessa hluti fyrir mótið? Nei, þetta er eitthvað sem ég sá í bak- sýnisspeglinum. Mín spurning er því til þeirra sem vilja alltaf sjá það neikvæða. Hvernig í ósköpunum getum við gagnrýnt Heimi? n Leiðari Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Spurning vikunnar Hefur veðrið áhrif á skap þitt? „Veðrið hefur áhrif á alla en maður reynir að halda reiðinni í sér og vera jákvæður.“ Marteinn Sigurgeirsson „Já, ég er orðin þreytt á þessu en bý svo vel að því að hafa farið tvisvar til heitra landa í vor.“ Kristín Stefánsdóttir „Nei, þessi rigning skiptir engu máli.“ Ingimundur Jónasson „Já og ég er orðin þreytt á þessari rigningu.“ Unnur Guðmundsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.