Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Side 24
24 29. júní 2018FRÉTTIR
V
iðar Skjóldal hefur um
nokkurt skeið verið mik-
ið á milli tannanna á fólki.
Viðar, sem jafnan er kall-
aður Enski, er með nokkur þúsund
fylgjendur á Snapchat. Hann legg-
ur nú spilin á borðið og talar opin-
skátt um baráttu sína við alkóhól-
isma í von um að opna umræðuna
um sjúkdóminn. Hann segist stað-
ráðinn í að leggja flöskuna á hill-
una og hætta að drekka í eitt skipti
fyrir öll.
Versta ákvörðun lífsins
að smakka áfengi
Viðar, sem er 32 ára, er fæddur
og uppalinn á Akureyri. Sautján
ára gamall flutti hann ásamt fjöl-
skyldu sinni til Reykjavíkur en þar
hefur hann meira og minna búið
síðan. „Ég ólst upp á Akureyri og
þar upplifði ég góða tíma, ég fékk
frábært uppeldi og á æðislega fjöl-
skyldu sem vildi allt fyrir mig gera.
Ég var efnilegur í fótbolta og spil-
aði lengst af með Þór á Akureyri.
Þegar fjölskyldan ákvað að flytja
suður hætti ég í boltanum og ég sé
mikið eftir því.“
Það var skömmu eftir að Við-
ar flutti til Reykjavíkur og hætti að
æfa fótbolta sem hann kynntist
áfengi. „Ég smakkaði fyrst áfengi
þegar ég var 17 ára gamall og það
var og verður versta ákvörðun lífs
míns,“ segir Viðar og bætir við:
„Þegar ég prófaði áfengið leið mér
strax vel, það var eins og það hefði
fyllt upp í ákveðið
tómarúm inni í mér.“
Viðar segir áfeng-
ið alla tíð hafa komið
í veg fyrir frama hans
í lífinu. „Mig langaði
alltaf að verða eitt-
hvað en ég hefði getað
náð lengra ef áfeng-
ið hefði ekki verið að
flækjast fyrir mér og
verið minn Akkiles-
arhæll í gegnum lífið,“ segir Viðar.
Eins og áður segir hefur Við-
ar getið sér gott orð sem snappari
en hann viðurkennir að áfengis-
neyslan hafi oftar en ekki verið til
trafala. Á Snapchat-reikningnum,
sem Viðar kallar enskiboltinn,
hefur hann leyft fylgjendum sín-
um að fylgjast með sér ræða um
ensku knattspyrnuna. Með tím-
anum hafa snöppin sífellt orðið
persónulegri og áhorfendur feng-
ið að kynnast lífi Viðars. Lífi þar
sem djammið hefur tekið sinn toll.
Ætlar að takast á við vandann
„Auðvitað hefur þetta oft og tíð-
um verið mjög skemmtilegt en
líka erfitt. Stundum hef ég ekkert
snappað í tvo til þrjá daga en þá er
ég að glíma við sjúkdóminn. Ég er
bara alkóhólisti,“ segir Viðar, sem
bætir því við að hann hafi mikinn
áhuga á því að ná langt í fjölmiðl-
um og standa sig vel.
Viðar segist nú hafa fengið sig
fullsaddan af áfengisneyslunni og
er staðráðinn í því að taka á vand-
anum. Hann náði góðum tíma
árin 2011 til 2013 þegar hann flutt-
ist til Akureyrar og var edrú í tvö
ár. Hann horfir nú til þess tíma. Þá
á Viðar átta ára gamla dóttur sem
hann vill standa sig fyrir. Dótt-
ir Viðars, Carmen Lind, býr með
móður sinni í Bretlandi.
„Það er alltaf möguleiki að
koma til baka og bæta sig. Ég gerði
það árið 2011 og veit ég get þetta,“
segir Viðar og bætir við: „Ég er
byrjaður að taka á vandanum og
ég ætla að standa mig.“ Hann hef-
ur undanfarna daga verið að leita
sér hjálpar hjá AA-samtökunum.
Hann segir umræðuna um
Hjört Hjartarson íþróttafrétta-
mann hafa hreyft við sér en eins
og DV greindi frá í upphafi vik-
unnar hefur Hjörtur sagt starfi
sínu lausu til að glíma við áfengis-
fíkn. „Umræðan um Hjört hreyfði
við mér og mig langaði mikið að
stíga fram og segja mína sögu. Ég
finn mikið til með Hirti og ég vona
innilega að hann nái bata. Svo
vona ég að mín saga geti hjálp-
að fólki sem er í sömu stöðu og ég
er. Ég er góður strákur og vil bara
reyna að hjálpa,“ segir Viðar.
Að lokum vill hann benda öll-
um þeim sem hafa brennandi
áhuga á enska boltanum að adda
honum á Snapchat undir nafninu
enskiboltinn. n
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
„STAÐRÁÐINN Í
AÐ STANDA MIG“
Enski leggur spilin á borðið og ætlar að hætta að drekka:
n Versta ákvörðun lífsins að smakka áfengi n Langar til að standa sig fyrir dóttur sína„Auðvitað hefur
þetta oft og tíðum
verið mjög skemmtilegt
en líka erfitt. Stundum
hef ég ekkert snappað í
tvo til þrjá daga en þá er
ég að glíma við sjúkdóm-
inn. Ég er bara alkóhólisti.
Viðar ásamt
dóttur sinni,
Carmen.
Óðinn Svan Óðinsson
odinn@dv.is