Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Side 27
FÓLK - VIÐTAL 2729. júní 2018
Í hvernig ásigkomulagi er fólkið
sem leitar til ykkar?
„Flestir sem koma inn í skólann
til okkar eru þeir sem hafa reynslu
af geðrænum veikindum og hafa
verið á batavegi í einhvern tíma,
yfirleitt nokkur ár. En það er ekkert
endilega þannig og sumir koma
beint úr meðferð á Landspítalan-
um. Sumir eru orðnir einkenna-
lausir og vilja halda sér á góðum
vegi og aðrir vilja bæta lífsgæði
sín þótt þeir hafi einkenni. Þannig
skilgreinum við bata á einstak-
lingsbundinn hátt. Þetta er mjög
fjölbreytilegur hópur með mis-
munandi bakgrunn og það brýtur
niður fordóma að fólk með ólíkan
bakgrunn sitji saman í bekk.“
Alls 28 manns voru innritað-
ir í fyrsta hóp skólans síðastliðið
haust og Þorsteinn finnur fyrir
þörfinni. Hann og Esther hafa ver-
ið að sækja út á við og sótt styrki til
þess. Til dæmis hefur Bataskólinn
verið með námskeið í fangels-
inu á Hólmsheiði fyrir kvenfanga
en geðheilbrigðismál fanga hafa
einmitt mikið verið til umræðu
á undanförnum árum og mikill
skortur á sálfræðiaðstoð fyrir þá. Í
haust verður meira gert af þessari
útrás.
Á skólabekk eftir kulnun í starfi
Þorsteinn er nú í sálfræðinámi
við Háskóla Íslands, hefur nýlokið
við að skila inn BS-ritgerðinni og
á aðeins eftir að klára örfáar ein-
ingar. Það var að hluta til fyrir til-
viljun að hann valdi fagið en hann
er útskrifaður leikari og á að baki
langan feril í listum. Að fara inn á
þessa braut voru því mikil tíma-
mót í lífi hans.
„Ég vissi ekki alveg hvað sál-
fræði var áður en ég skráði mig
í námið en hugsaði með mér
að þetta væri eitthvað svipað og
ég væri búinn að vera að gera í
listinni, að skoða mannlega hegð-
un.“
Hefur þú sjálfur glímt við and-
leg veikindi sjálfur?
„Nei, en ég hef upplifað mikla
streitu í mínum störfum og var
farinn að finna fyrir kulnun á því
sviði. Ég þurfti því að taka beygju á
mínum ferli og fara í einhverja allt
aðra átt.“
Var ekkert skrýtið að setjast á
skólabekk með öllum krökkunum?
„Jú, það var mjög skrýtið,“ seg-
ir Þorsteinn með bros á vör. „Til
að byrja með voru fleiri öldungar
eins og ég en svo duttu þeir út og
ég stóð einn eftir með fólki um
tvítugt. En krakkarnir tóku mig
með inn í verkefnahópa og voru
hlýleg við mig.“
Erum að hræða unglingana okkar
Geðheilbrigðismál hafa verið mik-
ið til umræðu undanfarin tvö eða
þrjú ár, sérstaklega í tengslum við
þunglyndi og kvíða og hátt hlut-
fall sjálfsvíga hjá ungum mönn-
um og drengjum. Þorsteinn seg-
ir mikla vakningu vera að eiga sér
stað meðal almennings.
„Ég finn að fólk sem ég ræði við
hefur almennan áhuga á þessum
málum og fordómarnir gagnvart
geðsjúkum fara sífellt minnkandi.
Margt hér á landi er mjög vel gert
en það vantar meira fjármagn. Það
er til dæmis ekki í lagi að loka geð-
deildum hérna á sumrin. Alls ekki
í lagi og við eigum ekki að láta það
spyrjast út. Einnig vantar ákveðið
framhald fyrir fólk sem veikist
alvarlega. Þetta er stórt samfélags-
legt mál sem allir verða að taka
saman höndum til að laga. Og eins
og ég segi þá eru skrýtnir hlutir að
gerast hjá unga fólkinu.“
Hvað telur þú að sé að gerast
þar?
„Fólk hefur verið að kenna
samfélagsmiðlunum um en ég
held að þetta sé stærra mál. Ef að
unglingarnir okkar eru kvíðnir þá
er ástæða fyrir því. Sú ástæða er yf-
irleitt sú að þeir horfa til framtíð-
ar og á þjóðfélagið og hugsa: „Vá!
Þetta er eitthvað sem ég á ekki eft-
ir að ráða við.“ Kvíði er alltaf fyr-
ir einhverju og ástæðulaus kvíði
er sjaldgæfur. Þegar svona margir
eiga í hlut þá er einhver ástæða
fyrir þessum kvíða og við full-
orðna fólkið erum að gera eitt-
hvað vitlaust. Ég held að við séum
að láta þetta þjóðfélag líta erf-
iðara út en það er í raun. Við erum
alltaf að rífast og mikil neikvæðni í
gangi. Ofan á það bætist lífsgæða-
kapphlaupið og samkeppnis- og
keppnisandi á öllum stöðum. All-
ir eru sífellt að mæla það hvort
þeir séu nógu góðir fyrir þetta eða
hitt í stað þess að fólk fái frið til að
melta og vera eins og það er. Við
erum að hræða unglingana okk-
ar.“
Hvað gerum við þá?
„Lausnin er ekkert endilega
fólgin í fleiri pillum eða sálfræði-
tímum, sem er þó vöntun á, held-
ur að við breytum þjóðfélaginu
og gerum þeim lífið aðeins auð-
veldara. Við sjáum til dæmis mikla
kulnun í starfi hjá kennurum og
aukinn kvíða hjá unglingum, hóp-
ar sem eyða miklum tíma saman
og kannski gæti þar verið sam-
hengi á milli. Það að ungir drengir
loki sig af og spili tölvuleiki út í eitt
gæti hugsanlega verið afleiðing af
vandamálinu en ekki orsökin að
hluta til. Við þurfum að byrja á
forvörnum og laga aðstæðurnar
áður en við byrjum að framleiða
geðsjúkdóma. Síðan verðum við
að forgangsraða rétt í kerfinu okk-
ar því að það er til nóg af pening-
um. Fyrir þá sem hugsa aðeins út
frá peningum þá er líka mjög dýrt
að leyfa fólki að veikjast, alveg fá-
ránleg bissness-hugmynd.“
Braust út úr feimninni í menntó
Þorsteinn er fæddur í Reykjavík
árið 1967 inn í mikla leikarafjöl-
skyldu. Foreldrar hans eru leik-
ararnir Guðmundur Magnússon
og Helga Stephensen og móðurafi
var Þorsteinn Ö. Stephensen sem
hóf sinn leikaraferil á þriðja ára-
tug síðustu aldar. Í sumar útskrif-
aðist Hlynur, sonur Þorsteins, sem
leikari frá Listaháskólanum og er
þar af leiðandi fjórði ættliður leik-
ara. Þorsteinn segir að það hafi þó
ekki alltaf legið fyrir að hann sjálf-
ur myndi feta þessa slóð, því sem
barn langaði hann helst til þess
að verða tónlistarmaður og lék á
trompet með lúðrasveit.
„Ég var ósköp ljúfur sem barn
og skapandi. Svolítið hlédrægur
og feiminn sem varð að vanda-
máli á unglingsárunum. Ég var
óöruggur og hélt mér til hlés en
veit ekki alveg af hverju. Þegar ég
fór í Menntaskólann í Reykjavík
þá snerist þetta við og ég fór að
blómstra. Þá skipti ég um vina-
hóp til að endurskilgreina mig en
það var svo sem ekkert að gömlu
vinunum. Ég þurfti að skipta um
umhverfi til að landið færi að rísa
hjá mér.“
Í MR gekk Þorsteinn í leikfélag-
ið Herranótt og steig fyrst á svið í
leikritinu Húsið á hæðinni – hr-
ing eftir hring eftir Sigurð Páls-
son. Þá varð ekki aftur snúið. Þor-
steinn hlær þegar hann er spurður
um hvort það hafi verið vegna
þrýstings frá fjölskyldunni.
„Það var enginn þrýstingur,
þvert á móti. Ég man eftir kvíða-
svipnum á afa þegar ég sagði hon-
um frá þessu. En hann dró samt
ekkert úr mér og kom á sýningarn-
ar mínar. Hann hefði ábyggilega
þegið það að ég færi frekar í lækn-
isfræði eða lögfræði. Þetta er í
sjálfu sér erfitt starf og illa borgað.“
Var ekkert erfitt fyrir feiminn
strák að stíga á svið?
„Nei,“ segir Þorsteinn hugsi.
„Ég var að brjótast út úr feimn-
inni á þessum tíma og síðan hefur
feimni ekkert mikið að gera með
hvernig fólk stendur sig á sviði.
Feimið fólk blómstrar oft í leiklist
eða uppistandi. Þar eru allt aðrar
aðstæður.“
Uppistand fyrir nýrekið fólk
Eftir menntaskólann hélt Þor-
steinn í Leiklistarskóla Íslands og
síðan í ýmis verkefni á vegum Þjóð-
leikhússins, Borgarleikhússins og
smærri leikhúsa. Að eigin sögn var
hann hins vegar ekki beint að slá
í gegn. Einnig fór hann að skrifa
töluvert og árið 1993 eða 1994 að
halda uppistand, sem var þá nán-
ast óþekkt á Íslandi. Orðið uppi-
stand var ekki einu sinni til.
Sem leiklistarskólanemi stefndi
Þorsteinn á að verða hádramat-
ískur og alvarlegur leikari en fljót-
lega komst hann að því að gaman-
leikurinn ætti betur við hann og
í dag er Þorsteinn nær eingöngu
þekktur fyrir gamanleik og grín í
gegnum ýmsa miðla. Enn kemur
Þorsteinn fram af og til sem uppi-
standari þó að hann leggi ekki
sérstaklega mikla áherslu á þann
vettvang.
Hafa áhorfendur breyst á þess-
um aldarfjórðungi?
„Í sjálfu sér ekki en í dag veit
fólk út á hvað þetta gengur. Þegar
ég var að byrja þá áttu margir erfitt
með að skilja hvað uppistand væri.
Í dag er orðinn miklu meiri kúltúr
fyrir þessu.“
Hefur þú tekið eftir breytingum
á því sem leyfilegt er að segja?
„Já, fólk er orðið miklu meðvit-
aðra um hvað sé móðgandi og á
varðbergi gagnvart því. Að sumu
leyti er það gott en að öðru leyti
takmarkandi. Sérstaklega þegar
fólk er að móðgast fyrir hönd
annarra, það er bara kjánalegt.
Þjóðfélagið hefur breyst mikið á
þessum tíma og grínistar verða að
þróast með. Það er ekki hægt að
vera með sama prógram og sama
húmor og fyrir 25 árum.“
Hefur þú móðgað fólk?
„Já, guð!“ segir Þorsteinn og
slær sér á lær. „Stundum þannig
að ég sé eftir því en stundum
þannig að ég sé ekkert eftir því.
Uppistandarar eru í mikilli hættu
af því að þeir eru í svo nánu sam-
tali við áhorfendur. Með reynsl-
unni hef ég lært að svara fólki og
gert þá góðlátlegt grín að því.
„Hann sagði mér
ekki að hafa neinar
áhyggjur. Þetta væri allt
saman fólk sem hefði
fengið uppsagnarbréf um
morguninn og með þessu
hefði verið reynt að létta
lundina.
M
Y
N
D
IR
H
A
N
N
A