Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 27
FÓLK - VIÐTAL 2729. júní 2018 Í hvernig ásigkomulagi er fólkið sem leitar til ykkar? „Flestir sem koma inn í skólann til okkar eru þeir sem hafa reynslu af geðrænum veikindum og hafa verið á batavegi í einhvern tíma, yfirleitt nokkur ár. En það er ekkert endilega þannig og sumir koma beint úr meðferð á Landspítalan- um. Sumir eru orðnir einkenna- lausir og vilja halda sér á góðum vegi og aðrir vilja bæta lífsgæði sín þótt þeir hafi einkenni. Þannig skilgreinum við bata á einstak- lingsbundinn hátt. Þetta er mjög fjölbreytilegur hópur með mis- munandi bakgrunn og það brýtur niður fordóma að fólk með ólíkan bakgrunn sitji saman í bekk.“ Alls 28 manns voru innritað- ir í fyrsta hóp skólans síðastliðið haust og Þorsteinn finnur fyrir þörfinni. Hann og Esther hafa ver- ið að sækja út á við og sótt styrki til þess. Til dæmis hefur Bataskólinn verið með námskeið í fangels- inu á Hólmsheiði fyrir kvenfanga en geðheilbrigðismál fanga hafa einmitt mikið verið til umræðu á undanförnum árum og mikill skortur á sálfræðiaðstoð fyrir þá. Í haust verður meira gert af þessari útrás. Á skólabekk eftir kulnun í starfi Þorsteinn er nú í sálfræðinámi við Háskóla Íslands, hefur nýlokið við að skila inn BS-ritgerðinni og á aðeins eftir að klára örfáar ein- ingar. Það var að hluta til fyrir til- viljun að hann valdi fagið en hann er útskrifaður leikari og á að baki langan feril í listum. Að fara inn á þessa braut voru því mikil tíma- mót í lífi hans. „Ég vissi ekki alveg hvað sál- fræði var áður en ég skráði mig í námið en hugsaði með mér að þetta væri eitthvað svipað og ég væri búinn að vera að gera í listinni, að skoða mannlega hegð- un.“ Hefur þú sjálfur glímt við and- leg veikindi sjálfur? „Nei, en ég hef upplifað mikla streitu í mínum störfum og var farinn að finna fyrir kulnun á því sviði. Ég þurfti því að taka beygju á mínum ferli og fara í einhverja allt aðra átt.“ Var ekkert skrýtið að setjast á skólabekk með öllum krökkunum? „Jú, það var mjög skrýtið,“ seg- ir Þorsteinn með bros á vör. „Til að byrja með voru fleiri öldungar eins og ég en svo duttu þeir út og ég stóð einn eftir með fólki um tvítugt. En krakkarnir tóku mig með inn í verkefnahópa og voru hlýleg við mig.“ Erum að hræða unglingana okkar Geðheilbrigðismál hafa verið mik- ið til umræðu undanfarin tvö eða þrjú ár, sérstaklega í tengslum við þunglyndi og kvíða og hátt hlut- fall sjálfsvíga hjá ungum mönn- um og drengjum. Þorsteinn seg- ir mikla vakningu vera að eiga sér stað meðal almennings. „Ég finn að fólk sem ég ræði við hefur almennan áhuga á þessum málum og fordómarnir gagnvart geðsjúkum fara sífellt minnkandi. Margt hér á landi er mjög vel gert en það vantar meira fjármagn. Það er til dæmis ekki í lagi að loka geð- deildum hérna á sumrin. Alls ekki í lagi og við eigum ekki að láta það spyrjast út. Einnig vantar ákveðið framhald fyrir fólk sem veikist alvarlega. Þetta er stórt samfélags- legt mál sem allir verða að taka saman höndum til að laga. Og eins og ég segi þá eru skrýtnir hlutir að gerast hjá unga fólkinu.“ Hvað telur þú að sé að gerast þar? „Fólk hefur verið að kenna samfélagsmiðlunum um en ég held að þetta sé stærra mál. Ef að unglingarnir okkar eru kvíðnir þá er ástæða fyrir því. Sú ástæða er yf- irleitt sú að þeir horfa til framtíð- ar og á þjóðfélagið og hugsa: „Vá! Þetta er eitthvað sem ég á ekki eft- ir að ráða við.“ Kvíði er alltaf fyr- ir einhverju og ástæðulaus kvíði er sjaldgæfur. Þegar svona margir eiga í hlut þá er einhver ástæða fyrir þessum kvíða og við full- orðna fólkið erum að gera eitt- hvað vitlaust. Ég held að við séum að láta þetta þjóðfélag líta erf- iðara út en það er í raun. Við erum alltaf að rífast og mikil neikvæðni í gangi. Ofan á það bætist lífsgæða- kapphlaupið og samkeppnis- og keppnisandi á öllum stöðum. All- ir eru sífellt að mæla það hvort þeir séu nógu góðir fyrir þetta eða hitt í stað þess að fólk fái frið til að melta og vera eins og það er. Við erum að hræða unglingana okk- ar.“ Hvað gerum við þá? „Lausnin er ekkert endilega fólgin í fleiri pillum eða sálfræði- tímum, sem er þó vöntun á, held- ur að við breytum þjóðfélaginu og gerum þeim lífið aðeins auð- veldara. Við sjáum til dæmis mikla kulnun í starfi hjá kennurum og aukinn kvíða hjá unglingum, hóp- ar sem eyða miklum tíma saman og kannski gæti þar verið sam- hengi á milli. Það að ungir drengir loki sig af og spili tölvuleiki út í eitt gæti hugsanlega verið afleiðing af vandamálinu en ekki orsökin að hluta til. Við þurfum að byrja á forvörnum og laga aðstæðurnar áður en við byrjum að framleiða geðsjúkdóma. Síðan verðum við að forgangsraða rétt í kerfinu okk- ar því að það er til nóg af pening- um. Fyrir þá sem hugsa aðeins út frá peningum þá er líka mjög dýrt að leyfa fólki að veikjast, alveg fá- ránleg bissness-hugmynd.“ Braust út úr feimninni í menntó Þorsteinn er fæddur í Reykjavík árið 1967 inn í mikla leikarafjöl- skyldu. Foreldrar hans eru leik- ararnir Guðmundur Magnússon og Helga Stephensen og móðurafi var Þorsteinn Ö. Stephensen sem hóf sinn leikaraferil á þriðja ára- tug síðustu aldar. Í sumar útskrif- aðist Hlynur, sonur Þorsteins, sem leikari frá Listaháskólanum og er þar af leiðandi fjórði ættliður leik- ara. Þorsteinn segir að það hafi þó ekki alltaf legið fyrir að hann sjálf- ur myndi feta þessa slóð, því sem barn langaði hann helst til þess að verða tónlistarmaður og lék á trompet með lúðrasveit. „Ég var ósköp ljúfur sem barn og skapandi. Svolítið hlédrægur og feiminn sem varð að vanda- máli á unglingsárunum. Ég var óöruggur og hélt mér til hlés en veit ekki alveg af hverju. Þegar ég fór í Menntaskólann í Reykjavík þá snerist þetta við og ég fór að blómstra. Þá skipti ég um vina- hóp til að endurskilgreina mig en það var svo sem ekkert að gömlu vinunum. Ég þurfti að skipta um umhverfi til að landið færi að rísa hjá mér.“ Í MR gekk Þorsteinn í leikfélag- ið Herranótt og steig fyrst á svið í leikritinu Húsið á hæðinni – hr- ing eftir hring eftir Sigurð Páls- son. Þá varð ekki aftur snúið. Þor- steinn hlær þegar hann er spurður um hvort það hafi verið vegna þrýstings frá fjölskyldunni. „Það var enginn þrýstingur, þvert á móti. Ég man eftir kvíða- svipnum á afa þegar ég sagði hon- um frá þessu. En hann dró samt ekkert úr mér og kom á sýningarn- ar mínar. Hann hefði ábyggilega þegið það að ég færi frekar í lækn- isfræði eða lögfræði. Þetta er í sjálfu sér erfitt starf og illa borgað.“ Var ekkert erfitt fyrir feiminn strák að stíga á svið? „Nei,“ segir Þorsteinn hugsi. „Ég var að brjótast út úr feimn- inni á þessum tíma og síðan hefur feimni ekkert mikið að gera með hvernig fólk stendur sig á sviði. Feimið fólk blómstrar oft í leiklist eða uppistandi. Þar eru allt aðrar aðstæður.“ Uppistand fyrir nýrekið fólk Eftir menntaskólann hélt Þor- steinn í Leiklistarskóla Íslands og síðan í ýmis verkefni á vegum Þjóð- leikhússins, Borgarleikhússins og smærri leikhúsa. Að eigin sögn var hann hins vegar ekki beint að slá í gegn. Einnig fór hann að skrifa töluvert og árið 1993 eða 1994 að halda uppistand, sem var þá nán- ast óþekkt á Íslandi. Orðið uppi- stand var ekki einu sinni til. Sem leiklistarskólanemi stefndi Þorsteinn á að verða hádramat- ískur og alvarlegur leikari en fljót- lega komst hann að því að gaman- leikurinn ætti betur við hann og í dag er Þorsteinn nær eingöngu þekktur fyrir gamanleik og grín í gegnum ýmsa miðla. Enn kemur Þorsteinn fram af og til sem uppi- standari þó að hann leggi ekki sérstaklega mikla áherslu á þann vettvang. Hafa áhorfendur breyst á þess- um aldarfjórðungi? „Í sjálfu sér ekki en í dag veit fólk út á hvað þetta gengur. Þegar ég var að byrja þá áttu margir erfitt með að skilja hvað uppistand væri. Í dag er orðinn miklu meiri kúltúr fyrir þessu.“ Hefur þú tekið eftir breytingum á því sem leyfilegt er að segja? „Já, fólk er orðið miklu meðvit- aðra um hvað sé móðgandi og á varðbergi gagnvart því. Að sumu leyti er það gott en að öðru leyti takmarkandi. Sérstaklega þegar fólk er að móðgast fyrir hönd annarra, það er bara kjánalegt. Þjóðfélagið hefur breyst mikið á þessum tíma og grínistar verða að þróast með. Það er ekki hægt að vera með sama prógram og sama húmor og fyrir 25 árum.“ Hefur þú móðgað fólk? „Já, guð!“ segir Þorsteinn og slær sér á lær. „Stundum þannig að ég sé eftir því en stundum þannig að ég sé ekkert eftir því. Uppistandarar eru í mikilli hættu af því að þeir eru í svo nánu sam- tali við áhorfendur. Með reynsl- unni hef ég lært að svara fólki og gert þá góðlátlegt grín að því. „Hann sagði mér ekki að hafa neinar áhyggjur. Þetta væri allt saman fólk sem hefði fengið uppsagnarbréf um morguninn og með þessu hefði verið reynt að létta lundina. M Y N D IR H A N N A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.