Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 39
Suðurfirðir 29. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ BELJANDI BRUGGHÚS: „Eftirspurnin hefur verið vonum framar“ Ef það fæst ekki í Kaup- fjelaginu þá þarftu það ekki KAUPFJELAGIÐ: Á þjóðhátíðardaginn árið 2017 opnuðu Elís Pétur og Daði brugghúsið Beljanda á Breiðdalsvík. Í brugghúsinu fer fram hágæða bjórframleiðsla ásamt því að státa af einum skemmtilegasta bar landsins þar sem heimamenn og gestir geta smakkað framleiðsluna í þægilegu umhverfi. „Elís og Daði, sem báðir ólust upp á Breiðdalsvík, fengu hugmyndina að brugghúsinu hvor í sínu lagi. Fé- lagarnir hittust í Breiðdalnum sumar- ið 2015 og eftir stuttar umræður var slegið til og ráðist í framkvæmdir við gamla sláturhúsið á staðnum. Belj- andi Brugghús var síðan opnað þann 17. júní í fyrra með feikna miklu partíi,“ segir Elís Pétur. Brugghúsið hefur því slitið barnsskónum og eftirspurn hef- ur verið meiri en eigendurnir bjuggust við. Beljandi sérhæfir sig í framleiðslu á bjór á kútum og er bjórinn í boði á flestum börum Austurlands ásamt völdum stöðum í Reykjavík. „Við erum með fjórar tegund- ir núna, en höfum bruggað nokkra fleiri. Á ársafmælinu kom LLK, sem er léttur ljúfur og kátur sumarbjór með limebragði. Beljandi er léttur pale ale, auðdrekkanlegur og skemmtilegur, Spaði er IPA sem er mjög vinsæll og útlendingar elska hann og svo er Skuggi, sem er porter bjór. Við erum stöðugt að þróa uppskriftir en fyrst og fremst er að hafa gaman af þessu og skapa skemmtilega stemningu á Breiðdalsvík.“ Boðið er upp á bjórkynningar þar sem fræðst er um brugghúsið og afurðir smakkaðar. „Stærri hópar panta með fyrirvara, en aðrir bara koma inn,“ segir Elís Pétur. Á staðnum er einnig pool-borð og í boði að koma inn með veitingar frá Kaupfjelaginu á Breiðdalsvík sem er í næsta húsi. Beljandi er að Sólvöllum 23a, Breið- dalsvík. Síminn er 860-9905 og net- fangið er beljandibrugghus@gmail.com Opnunartími er kl. 11 til miðnætt- is alla daga og stundum lengur um helgar. Beljandi er á Facebook: Beljandi Brugghús. Á Breiðdalsvík reka Helga Rakel Arnardóttir og Elís Pétur Elís-son Kaupfjelagið, litla fallega matvöruverslun, þá einu í bæjar- félaginu, og kaffihús með „fish and chips“ og fleiri veitingum. „Við keyptum reksturinn og versl- unarhúsið fyrir ári síðan,“ segir Helga, sem er ættuð frá Hvammstanga, en Elís er frá Breiðdalsvík. Verslunin er sett upp á gamaldags máta og má þar finna mikið af munum úr sögu kaupfélagsreksturs á Breiðdalsvík. Eins er að finna söguágrip af upp- byggingu staðarins, gamlar myndir og skjöl sem gaman er að grúska í með kaffinu. Hjá Kaupfjelaginu er gott úrval af mat- og gjafavöru og á grillinu er boðið upp á hamborgara, panini- brauð, pulled pork, bökur og „local fish and chips,“ en fiskurinn kemur frá útgerð sem Helga og Elís reka einnig á staðnum. Pitsuofninn er alltaf í gangi á föstudögum og laugardögum og ýmsum fleiri tyllidögum. Kaupfjelagið þjónar mikilvægum tilgangi sem verslun og kaffihús, bæði fyrir heimamenn en ekki síður fyrir gesti sem sækja Breiðdalsvík heim, en í bænum búa um 140 manns. Á sumrin er staðurinn vel sóttur af ferðamönnum, bæði innlendum og erlendum. „Iðnaðarmenn og sjómenn koma mikið til okkar í hádeginu í mat og í pitsu um helgar. Það eru mjög margir heimamenn sem koma hér á hverjum degi, sumir oft á dag, og fá sér kaffi og sitja lengi og spjalla. Mað- ur hittir alltaf alla í Kaupfjelaginu,“ segir Helga. „Svo gildir það sama hér og annars staðar: „Ef það fæst ekki í Kaupfjelaginu, þá þarftu það ekki.“ Kaupfjelagið er að Sólvöllum 25, Breiðdalsvík. Síminn er 475-6670 og netfangið er kaupfjelagid@gmail.com Afgreiðslutími sumars er 10–20 alla daga nema sunnudaga en þá er opið til 17. Afgreiðslutími vetrar er kl. 11–17 alla daga. Kaupfjelagið er á Facebook: Kaup- fjelagid Verzlun – Kaffihús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.