Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 41
Suðurfirðir 29. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Á Stöðvarfirði við þjóð-veg 1 er eitt af áhuga-verðari söfnum lands- ins, Steinasafn Petru, sem er einkasafn byggt upp af ástríðu Ljósbjargar Maríu Petru Sveins- dóttur. Petra lést 10. janúar 2012, en fjögur börn hennar tóku við rekstri safnsins og halda arfleifð móður sinnar við. „Við erum steinasafn með fullt af náttúruminjum líka, uppstoppaða fugla, blómagarð og fleira úr náttúrunni. Safnið er nánast eins og hún skildi við það. Húsið sem Petra byggði og bjó í alla ævi ásamt manni og börnum er hér á sama stað og upprunalegt. Petra var kona sem hafði gaman af náttúrunni, að safna steinum, og fór til fjalla sem ung kona og þótti stórskrýtin fyrir vik- ið, að fara þangað með þrjú börn og nesti í poka í stað þess að vera heima að elda eða baka. Petra safnaði öllu og því er ýmislegt fleira á safninu en steinarnir. Systkinin reka einnig lítið kaffi- hús á staðnum, en það var opnað fyrir þremur árum. „Þetta er lítið og heimilislegt kaffihús þar sem er hægt að fá súpu og brauð, sætt og ósætt bakkelsi. Það er garðskáli sem fólk getur setið í og borðað. Og síðan garðurinn þar sem hægt er að sitja þegar gott er veður.“ Mikið af erlendum ferðamönnum sækja safnið heim, bæði hópar og einstaklingar. Skólahópar koma líka í heimsóknir, sem og Íslendingar. Steinasafn Petru er að Fjarðarbraut 21, Stöðvarfirði. Síminn er 475-8834. Safnið er opið 1. maí–15. október frá kl. 9–18 og kaffihúsið frá kl. 10–17. Heimasíða er steinapetra.is og safnið er einnig á Facebook. STEINASAFN PETRU Einstakt safn náttúruunn- andans Petru Sveinsdóttur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.