Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Qupperneq 66

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Qupperneq 66
66 MENNING 29. júní 2018 B ækur þessarar viku eru þrjár frumraunir frá frændum okkar á Norð- urlöndum, bækur sem koma út á íslensku í þessari viku. Og tvær bækur á ensku eftir vinsælustu spennusagna- meistara heims. Frábærar frumraunir Örlagasaga um vináttu og minn- ingar: Frá vinum okkar Svíum kem- ur Rauða minnisbókin, frumraun fjölmiðlakonunnar Sofiu Lund- berg. Fjallar hún um hina 96 ára gömlu Doris sem hefur frá tíu ára aldri skrifað nöfn allra sem skiptu hana máli í lífinu í rauða minnis- bók. Nú nánast vina- og ættingja- laus ákveður hún að skrifa ævisögu sína byggða á minnisbókinni. Frá- bær frumraun um ást, vináttu, hamingju og sorg. Ef þér líkaði við Gamlingjann sem skreið út um gluggann og Mað- ur sem heitir Ove þá muntu elska þessa bók. Sálfræðitryllir sem grípur mann frá fyrstu málsgrein: Danski blaðamaðurinn og sagn- fræðingurinn Anne Mette Hancock skrifar Líkblómið, sem fjallar um blaðamanninn Heloise Kaldan, sem telur sig búa yfir góðu skúbbi, en allar heimildir hennar reyn- ast falsaðar. Anna Kiel, sem er eft- irlýst fyrir morð á ungum lög- fræðingi, sendir henni bréf. Kald- an fer að kanna málið, annað morð er framið. Eru morðingj- arnir tveir, hvern- ig tengjast málin Kaldan og er líf hennar sjálfrar í hættu? Ógleymanleg og ljúfsár sönn saga um sorg, missi, lífið og dauð- ann: Í Hvert andartak enn á lífi, fyrstu skáldsögu hins sænska Tom Malmquist, sem er fyrrverandi ís- hokkíleikari, segir hann frá eigin lífsreynslu. Hann og Karin, kona hans, áttu von á sínu fyrsta barni þegar Karin var greind með hvít- blæði undir lok meðgöngunnar. Dóttirin er tekin með bráðakeisara- skurði og Tom upplifir ólýsanlega martröð á hlaupum sínum um gangana á milli vökudeildarinn- ar og gjörgæslunnar; á milli lífs og dauða. Þegar hann snýr heim er hann einn með litlu dóttur sinni og sárri sorginni. Og fáeinum mánuð- um síðar missir hann föður sinn, sem hann hefur alltaf átt flókið samband við. Bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs 2016, hlaut bókmennta- verðlaun Karin Boye og menn- ingarverðlaun DN. Spænska blaðið El País útnefndi hana eina af bestu bókum áratugarins um líf og dauða. Spennusagnameistarar spinna nýja vefi Kyngimögnuð spenna: Nýjasta bók- in úr smiðju hrollvekjukonungs- ins Stephen King er The Outsider, sem fjallar um hafnaboltaþjálfar- ann Terry Maitland sem er grun- aður um morð á 11 ára gömlum dreng. Lögreglumaðurinn Ralph Andersen er miður sín vegna máls- ins, en Maitland þjálfaði einnig son hans. Öll sönnunargögn benda á Maitland, sem hins vegar er með fjarvistarsönnun og var ekki í bæn- um þegar morðið var framið. Geta menn verið á tveimur stöðum í einu? Pólitískur tryllir úr smiðju raðritar- ans Patterson: Spennusagnamet- söluhöfundurinn James Patterson sem spýtir fleiri bókum frá sér á ári en flestir rithöfundar gera á heilli mannsævi, fær engan annan en Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjafor- seta, sem meðhöfund í nýjustu bók sinni, The President is Missing. Líkt og nafnið bendir til þá hverf- ur forseti Bandaríkjanna, fyrrver- andi hermaður, á sama tíma og leyniþjónusta Bandaríkjanna á undir högg að sækja vegna netárása. Reynsla Clinton úr forsetatíð hans er einstök viðbót við frásagnargáfu og rússíbanareið Patterson. n Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu. Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur. Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig. Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570 VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR Hreinskilin og skemmtileg frásögn úr íslenskum nútíma 261 dagur er fyrsta bók Kristborgar Bóelar Stein- þórsdóttur, fjörutíu og tveggja ára, fjögurra barna móður. Eftir að hafa tek- ið erfiðustu ákvörðun ævi sinnar ákveður hún að skilja við seinni barnsföður sinn. Til að komast í gegnum skilnaðinn, andlega, lík- amlega, félagslega, ákveður hún að skrifa dagbók. Dagbók sem lýsir næstu 261 degi í lífi hennar, bæði slæmum, góðum og allt þar á milli. Fyrst þegar ég byrj- aði á bókinni fannst mér fullmikið um grátköstin og hugsaði hvenær hún ætlaði nú að taka sér tak og fara að láta hversdagslífið í fullan gang aftur. Síð- an áttaði ég mig á að svona brást höfund- ur við sínum skilnaði, þetta er hennar saga, hennar líðan, hennar tilfinningar. Nokkrum köflum síð- ar var ég farin að tengja mun frekar við sögu höfundar, við erum svip- að gamlar, báðar búnar að skilja oftar en einu sinni, báðar með sára reynslu að baki. Hvar var þessi bók þegar ég skildi á sínum tíma? Mik- ið hefði verið gott að geta lesið bók eins og þessa og séð að ég var ekki ein í heiminum Bókin er full af kaldhæðnis- legum setning- um og tilsvör- um: „Þú þarft að byrja á því að fyrirgefa sjálfri þér og sættast við þínar ákvarð- anir áður en þú ferð að pakka fyrrverandi ofan í jólaskrautskassa og gefa hann í Fjölskylduhjálp, ef þau vilja þá taka við honum. Nei, myndi fara með hann í Hjálpræðisherinn frekar, þau eru ekki eins vandlát og taka við öllu.“ (bls. 176). Spjall við vinkonur um karl- menn og hið eilífa ástarbras fá sitt pláss: „Í sameiningu komumst við að þeirri niðurstöðu að mann- skepnan sé líklega það sáraeinföld að maður komist aldrei alveg yfir einn án þess að fara undir annan.“ (bls.191). Ég hef orðið vör við að bók- in hefur sætt gagnrýni fyrir þá samlíkingu höfundar að skilnaður sé jafn makamissi. Vissulega hef- ur sú gagnrýni rétt á sér, en eins og ég, í upphafi bókar, verða lesendur að átta sig á að hér opnar höfund- ur sig um eigin reynslu, eigin tilf- inningar og líðan, og hennar upp- lifun er aldrei sú sama og annarra. Við erum öll ólík og því verður upplifun okkar aldrei sú sama, þó að reynslan sem við verðum fyrir geti verið sú sama. „… en þó höfuðáhersla lögð á að ástarsorgarferlið sé bara ná- kvæmlega það sama og þegar ein- hver missir maka í gröfina.“ (bls. 160). Bókin er afar hreinskilin, skemmtileg, ljúfsár, kaldhæðin lýsing höfundar á skilnaði henn- ar og aðstæðum og ekki síst henni sjálfri. Höfundur hleypir lesand- anum alveg inn á gafl í tilfinn- ingalíf sitt, eitthvað sem margir höfundar myndu ekki þora, og allra síst í frumraun sinni. Ég hlakka til að lesa næstu bæk- ur höfundar, því ég hef fulla trú á að hún eigi eftir að skrifa mun fleiri. 261 dagur er skyldulesning fyrir alla sem hafa skilið, eru að skilja eða íhuga að skilja. Til viðbótar við bókina er sam- nefndur lagalisti á Spotify, lög sem lýsa líðan höfundar yfir tímabilið sem bókin fjallar um. Skemmtileg viðbót sem til þessa hefur ekki ver- ið á íslenskum bókamarkaði. „Eat like you love yourself. Move like you love yourself. Speak like you love yourself. Act like you love yourself.“ (bls. 245). n Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Bækur 261 dagur Höfundur: Kristborg Bóel Útgefandi: Björt 416 bls. Frábærar frumraunir og gamalreyndir spennusagnakonungar Nýtt í bókahillunni:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.