Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Síða 70
70 FÓLK 29. júní 2018
„Saga þernunnar hafði gríðarlega mikil áhrif á mig“
R
ithöfundurinn Sólveig Páls-
dóttir gaf fyrir síðustu jól út
sína fjórðu bók, Refurinn,
sem kom nýlega í versl-
anir í kiljuformi. Refurinn hefur
verið vinsæll hjá lesendum, enda
ekki bara hörkuspennandi, held-
ur tekur efnið einnig á mikilvæg-
um málum í samfélagi okkar. Sól-
veig er leikari og hefur komið fram
á sviði, í sjónvarpi og útvarpi. Hún
hóf að skrifa bækur fyrir sjö árum
og fyrsta bók hennar, Leikarinn,
kom út árið 2012.
En hvaða bækur eru í uppáhaldi
hjá Sólveigu?
Hvaða barnabók er í eftirlæti?
„Ég hef sérstakt dálæti á Dúa bíll
eftir Barbro Lindgren og Eva Eriks-
son sem er skotheld spennubók
fyrir eins til þriggja ára börn. En
svona almennt séð held ég mest
upp á barnabækur sem eru laus-
ar við predikun en innihalda þeim
mun meira af ævintýrum, húmor
og spennu. Mér
koma í hug bæk-
ur eftir Ole Lund
Kirkegaard sem
skrifaði til dæmis
Gúmmí Tarsan og
Fúsa froskagleypi
og dásamlegu
bækurnar þeirra
Astridar Lindgren
og Guðrúnar Helga-
dóttur. Harry Potter-
-bækurnar eru líka
snilld!“
Hvaða bók er uppáhalds?
„Sem barn tók ég algjöru ástfóstri
við Ljóðmæli Páls Ólafssonar og
kunni bókina spjaldanna á milli
sem mér þykir í meira lagi undar-
legt núna. Á unglingsárum hélt ég
mikið upp á bækur Isaac Bashev-
is Singer og drakk í mig frásagnir
hans af samfélagi pólskra gyðinga
og hreifst sömuleiðis mjög af
Manntafli eftir Stefan Zweig. Með
árunum varð bókmenntaáhuginn
enn fjölbreyttari og
þegar ég les bók sem
grípur mig verður
hún uppáhalds um
stund eða þar til að
ég finn þá næstu
sem rígheldur mér.“
Hvaða bók
myndirðu mæla
með fyrir aðra?
„Ég mæli almennt
með öllum lestri
en þær bækur sem
koma fyrst upp í hugann núna eru
Ekki gleyma mér. Grípandi minn-
ingarsaga Kristínar Jóhannsdóttur
sem stundaði nám í Austur-Þýska-
landi skömmu áður en múrinn
féll, ákaflega áhugaverð og mikil-
væg frásögn af lífi ungs fólks á um-
brotatímum. Ég myndi líka benda
á Tvísögu eftir Ásdísi Höllu Braga-
dóttur sem segir flókna sögu fjöl-
skyldu sinnar á hlýjan og einlægan
hátt. Þessa dagana er ég heilluð af
þessari tegund bóka og má til með
að bæta bókum Mikaels Torfa-
sonar, Týnd í Paradís og Synda-
fallið sem og bókunum hans Jóns
Gnarr, Indjáninn og Sjóræninginn
á þennan lista. Það má margt læra
af þessum sjálfsævisögulegu verk-
um.“
Hvaða bók hefurðu lesið oftast?
„Að undanskildum bókum sem ég
kenndi á meðan ég var kennari þá
hlýtur svarið að vera annaðhvort
Íslandsklukkan eftir Halldór Lax-
ness eða Þjóðsögur Jóns Árnason-
ar.“
Hvaða bók breytti lífi þínu og
hvernig?
„Mín fyrsta bók, Leikarinn, sem
kom út vorið 2012 breytti lífi mínu
því að velgengni hennar varð til
þess að ég ákvað að halda áfram
að skrifa. Núna, sex árum síðar,
eru bækurnar orðnar fjórar. En
þess utan þá nefni ég Sögu þern-
unnar eftir Margaret Atwood. Ég
var nýorðin móðir í annað sinn
þegar ég las hana og bókin hafði
gríðarlega mikil áhrif á mig. Því
miður minnir margt sem er að
gerast í heiminum í dag á bók-
stafstrúarríkið Gíleað sem Atwood
skapaði svo eftirminnilega í áður-
nefndri bók.“
Hvaða bók bíður þín næst til
lestrar?
„Ég er rétt hálfnuð með marg-
verðlaunaða bók sem heitir Það
sem að baki býr og er eftir dansk-
an höfund, Merete Pryds Helle.
Þetta er ættarsaga með heilmiklu
persónugalleríi fólks sem býr við
bæði andlegan og veraldlegan
skort. Sagan heldur mér ennþá en
það er eitthvað við frásagnarhátt-
inn sem truflar mig því mér virðist
ekki unnið nægilega vel úr þeim
efnivið sem er fyrir hendi en hver
veit nema allt falli saman í lok-
in og verkið öðlist þá meiri dýpt.
Vonandi. Þegar þessu ættarsögu-
æði mínu linnir bíða mín nokkr-
ar freistandi glæpasögur sem ég
hlakka til að lesa.“ n
Ef þú þyrftir að breyta, hvað myndirðu
vilja heita annað en Sigurður Helgi eða
vera annað en Siggi Hlö? Úff … væri til í
eitthvað nafn sem Mannanafnanefnd hefur
hafnað.
Hverjum líkist þú mest? Það segja allir að
ég sé alveg eins og móðir mín heitin og mér
líkar það vel.
Í hverju finnst þér þú vera betri en aðrir?
Í golfi. Skorið kemur mér samt alltaf í
vandræði.
Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum
sem er ekki kennt þar núna? Almenna
mannasiði og kurteisi mætti alveg setja í
forgang.
Ef þú þyrftir að eyða 1 milljón á klukku-
tíma, í hvaða verslun færirðu? Jón og Óskar
á Laugavegi að kaupa feitan demant handa
eiginkonunni.
Hvað viltu að standi skrifað á legsteinin-
um þínum? Dó ekki úr leiðindum.
Sex ára barn spyr þig hvort að jólasveinn-
inn sé til. Hvernig svarar þú? Auðvitað
er jólasveinninn til. Jólin eru ekkert án
jólasveinsins.
Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði alltaf
spilað um leið og þú gengir inn í herbergi
allt þitt líf, hvaða lag myndirðu velja? The
way lifé s meant to be með ELO.
Hvaða lag hefðir þú viljað hafa samið?
Billie Jean með Michael Jackson.
Hvaða lag skammastu þín mest fyrir að
hafa haldið upp á? Wannabe með Spice
Girls.
Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga lífinu,
undir hvaða lagi myndirðu vilja dansa?
Who let the dogs out.
Hvað ætti ævisagan þín að heita? Meistari,
meistari, meistari.
Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast?
Dumb and Dumber.
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en
er það ekki lengur? 80 ś tískan frá mínum
tíma er öll að koma aftur en líklega eru það
ennisbönd.
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið? Frasier
þáttunum.
Borðarðu mat sem er kominn fram yfir
síðasta söludag? Nei, helst ekki, er með
einhverja fóbíu fyrir því.
Heilsarðu frægum Íslendingum úti á götu,
þó þú þekkir þá ekki persónulega? Já, það
geri ég.
Hverju laugstu síðast? Ég er lélegasti lygari
í heimi. Finnst best að segja bara alltaf satt,
þá þarf maður ekki að muna hverju maður
laug síðast.
Um hvað geta allir í heiminum verið sam-
mála? Að vilja heimsfrið.
Á hvern öskraðirðu síðast? Leikmenn Vík-
ings í fótbolta. Þurfti að hvetja þá til sigurs.
Hvaða einstakling finnst þér þú þekkja,
þó þú hafir aldrei hitt hann? Sir Alex
Ferguson.
Hvað er það merkilegasta sem hefur gerst
í heiminum á þínum líftíma? Tölvuöldin.
Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér?
Hrotur.
Hvaða frægu persónu leistu upp til en
sérð eftir því í dag? Michael Jackson.
Hver er mest kynæsandi teiknimynda-
persónan? Strympa.
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að hafa
misst af? Tónleikum með George Michael.
Hver er lélegasti fimmaur sem þú hefur
heyrt? Maður á aldrei að slást við ófrítt fólk
… það er eins og það hafi engu að tapa.
Hver er versta vinnan sem þú hefur
unnið? Ég hef verið mjög heppinn hvað
varðar vinnu. Öll störf hafa verið skemmtileg
en fáein verkefni verið hundleiðinleg en það
þarf víst líka að klára þau.
Hvert er þitt stærsta líkamlega afrek í
lífinu?
Að slá 300 m golfhögg. Það var geggjað.
Í hvaða íþróttagrein finnst þér að kepp-
endur ættu að leika ölvaðir?
Skák. Það væri massa fyndið.
Hvaða kvikmynd þætti þér helst við hæfi
að breyta í söngleik?
Godfather.
Hvað verður orðið hallærislegt eftir 5 ár?
Veip-reykingar.
Ef þú yrðir handtekinn án skýringa, hvað
myndu vinir þínir og fjölskylda halda að
þú hefðir gert af þér?
Neitað að spila You never walk alone á balli
þar sem ég er Dj. Læt frekar handtaka mig.
Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu
vilja eiga sem vin?
Mér finnst Hómer Simpson vera vinur minn
nú þegar. Við erum nokkuð líkir.
Hvað ættu allir að prófa að minnsta kosti
einu sinni í lífinu?
Sjá leik með Manchester United á Old
Trafford.
Hvað myndirðu segja ef Guð hnerraði?
Ertu með ofnæmi?
Ef þú myndir borða sjálfan þig, hvort
myndirðu hverfa eða tvöfaldast?
Vá … þvílíkt hlaðborð sem það væri. Myndi
hverfa.
Ef þú værir ritstjóri dagblaðs og sama
daginn myndi Lagarfljótsormurinn
finnast, Frikki Dór vinna Júróvisjón
fyrir Íslands hönd og Donald Trump vera
myrtur. Hver væri stærsta fyrirsögnin í
blaðinu þínu daginn eftir?
Ormur myrtur í Eurovision.
Ef þú kæmir einn daginn heim úr vinnunni
og þar væri enginn nema Geir Ólafsson í
sturtu, myndirðu hringja í lögregluna?
Alls ekki. Við Geir erum miklir vinir. Ég myndi
rétta honum handklæði.
Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi?
Að skemmta sér og hafa gaman af tilverunni.
Hvað er fram undan um helgina?
Útvarpsþáttur, golf og faðmur
fjölskyldunnar.
Sigurður Hlöðversson, útvarpsmaður, plötusnúður og fararstjóri með
meiru, fagnaði nýlega 10 ára afmæli útvarpsþáttarins Veistu hver ég var?
Siggi Hlö sýndi á sér hina hliðina, staddur í Berlín með hóp á vegum ferða-
skrifstofunnar Visitor á On the Run-tónleikum Beyoncé og Jay Z.
„Dó ekki úr leiðindum “ HIN HLIÐIN
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Ásta Garðars í nýju hlutverki
– ömmustúlka mætt í heiminn
Þ
ann 26. júní síðastliðinn var
flaggað um allt land, enda
afmælisdagur Guðna Th.,
forseta okkar, og stóraf-
mæli í þokkabót, 50 ára. Sá dagur
mun þó líklega hafa aðra þýðingu
í framtíðinni fyrir Ástu Hrafn-
hildi Garðarsdóttur, sem fylgt
hefur þjóðinni í fjölmörg ár, sem
blaðamaður, ritstjóri Séð og heyrt,
kennari í Garðabæ og síðast en alls
ekki síst, sem Ásta og Keli í Stund-
inni okkar. Þennan dag fékk hún
fyrsta ömmubarnið í heiminn og
getur því bætt nýju hlutverki á fer-
ilskrána sína.
„A true lady is never late, she
just arrives in her own sweet time,“
segir Ásta á Facebook-síðu sinni.
„Undurfalleg óræð blanda foreldra
sinna. „Samt alveg eins
og amma sín“, hefði
langamman staðhæft
á innsoginu og drepið
í um leið … mér sýnist
hafa stytt upp.“
Foreldrar ömmu-
barnsins eru elsti son-
ur Ástu, Garðar B. Sigurjónsson,
handboltakappi með Stjörnunni,
nemi til löggildingar fasteigna-
sala og fyrrverandi blaðamaður
á Séð og heyrt. Barnsmóðir hans
er kærastan og Eyjamærin, Sand-
ra Dís Pálsdóttir, sem starfar á 101
hárhönnun. Þau kynntust á sínum
tíma þegar Garðar bað um frí á Séð
og heyrt til að skreppa í klippingu
og settist í stólinn hjá Söndru, sem
heillaði hann upp úr handbolta-
skónum, um leið og hún græjaði
hár hans. Segir Garðar það næst-
bestu ákvörðun sína að hafa farið í
klippingu og heillast af Söndru og
þá bestu að hafa tekið skrefið og
boðið henni út.
Við óskum hinum nýbök-
uðu foreldrum og ömmu inni-
lega til hamingju með nýja fjöl-
skyldumeðliminn.
Dóttir Secret Solstice skipu-
leggjanda fædd að lokinni hátíð
Ú
tlit var fyr-
ir að Katrín
Ólafsson, að-
alskipuleggj-
andi tónlistarhá-
tíðarinnar Secret
Solstice, og unnusti
hennar, Jón Bjarni
Steinsson, gætu
ekki komist sjálf á
hátíðina, þar sem Katrín var sett
með annað barn þeirra sunnu-
daginn 24. júní síðastliðinn,
lokadag hátíðarinnar.
Voru þau búin að skipu-
leggja allt í tíma ef ske kynni að
Katrín myndi eiga fyrir tilsettan
dag. Það skipulag reyndist síð-
an óþarft því daman leyfði for-
eldrum sínum bara
að klára hátíðina og
mætti svo í heiminn
fjórum dögum síðar,
fimmtudaginn 28.
júní.
„Þessi kom í
heiminn snemma
í morgun á fullu
tungli eins og pabbi
sinn. Mamman stóð sig eins og
hetja og allir eru heilir,“ segir Jón
á Facebook-síðu sinni.
Við óskum hinum nýbökuðu
foreldrum innilega til hamingju
með dótturina.