Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 72

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 72
29. júní 2018 25. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Djöfull er ég skakkur! Á dögunum greindi lögreglan á Suðurnesjum frá því að rútubílstjóri hefði ver- ið stöðvaður í umdæminu, grunaður um akstur undir áhrif- um fíkniefna. Rútan var fullsetin af farþegum þegar meint brot á að hafa átt sér stað. Bílstjórinn, sem er á fertugsaldri, var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem þar til gerð próf sýndu jákvæða svörun varðandi fíkniefnaneyslu. Það sem ekki kom fram í yfirlýsingu lög- reglu var að farþegi í rútunni hafði samband við yfirvöld þegar hann taldi að bílstjórinn væri að reykja kannabis undir stýri. Þegar DV hafði samband við bílstjórann vegna málsins þá neitaði hann því staðfastlega að hann hefði verið að reykja jónu í vinnunni en viðurkenndi þó að THC, virka efnið í kannabis, hefði greinst í blóði hans. Bíl- stjórinn segist hafa verið að vefja sér sígarettu úr svonefndu Bali Shaq tóbaki í langri kaffipásu. Hann staðfestir að þá hafi far- þegi misskilið gjörðir hans og haft samband við lögreglu. „Ég myndi ekki undir neinum kringumstæðum reykja kannabis á vakt,“ segir bílstjórinn í samtali við DV. Hann viðurkennir þó að hann hafi fengið sér jónu kvöldið áður þegar hann var gestur á tón- listarhátíðinni Secret Solstice. „Ég var bara að skemmta mér, þetta er nú tónlistarhátíð,“ segir bílstjór- inn. Eftir því hversu mikils magns er neytt þá mælist THC í blóði fólks allt frá viku og upp í 80 daga frá því að kannabis er neytt. Þar af leiðandi féll bílstjórinn á fíkni- efnaprófi lögreglu. Afleiðings brotsins er sú að bílstjóranum var sagt upp störf- um auk þess sem hann hefur ver- ið sviptur ökuréttindum sínum. Hann bíður nú eftir endanlegum niðurstöðum blóðprufu sem mun ákvarða hvort að hann verði svipt- ur ökuréttindum í sex mánuði eða tvö ár. n tomas@dv.is Neytti kannabis á Solstice og missti vinnuna T ómas Þór Þórðarson, íþróttafréttamaður hjá Vodafone, fékk held- ur betur góða gjöf eft- ir að Íslendingar luku keppni á heimsmeistaramótinu á þriðjudaginn. Eftir síðasta leik liðsins gegn Króatíu fékk Tómas treyju fyrirliðans Arons Einars að gjöf. Þetta kom fram í hlaðvarps- þættinum Innkastið á Fótbolti. net. Treyjan er ekki sú fyrsta sem Tómas fær en eft- ir síðasta leik íslenska liðsins á Evrópumótinu í Frakklandi fékk Tómas einnig treyju Ar- ons. „Hann kastaði í mig treyj- unni og sagði: „Við höldum í hefðir,“ sagði Tómas í þættin- um. Tómas er greinilega mikill aðdáandi Arons en hann fór fögrum orðum um fyrirliðann í hlaðvarpinu. „Ég get bara ekki beðið eftir að hann verði forseti,“ sagði Tómas. Fékk treyju Arons annað stórmótið í röð Auðvelt að versla á byko.is • Sendum út um allt land REIÐHJÓL OG FYLGIHLUTIR -30% • GARÐHÚSGÖGN -27% • SLÁTTU- VÉLAR -20-40% • RAFMAGNS- OG BENSÍNGARÐVERKFÆRI -20-40% NAPOLEON GRILL -30% • BROIL KING GRILL -30% • BLÓMAPOTTAR OG GARÐSKRAUT -35% • TIMBURBLÓMAKASSAR -25% • BLÓM, TRÉ OG RUNNAR -30% • FRÆ -40% • REYKOFNAR OG ELDSTÆÐI -30% GJØCO INNIMÁLNING -25% • VERKFÆRABOX OG -SKÁPAR -30% JÁRNHILLUR -30% • ÁLTRÖPPUR OG STIGAR -25% • EINHELL RAFMAGNSVERKFÆRI -25% • HARÐPARKET -20% • LJÓS -25% PLAST-BOX -35% FERÐAVARA -25% • FERÐATÖSKUR -35% LEIKFÖNG -35% • KÖRFUBOLTASPJÖLD -30% • POTTAR, PÖNNUR OG BÚSÁHÖLD -25% • TEXTÍLVÖRUR -25% BLÁ BOSCH VERKFÆRASETT -25% • COFRA ÖRYGGISSKÓR OG FATNAÐUR -25% • LOFTASTIGAR -25% • MOTTUR OG DREGLAR -25% • BAÐFYLGIHLUTIR -25% • SALVIA ESPALE GIRÐINGAEININGAR -20% • OG MARGT MARGT FLEIRA! Sjáðu öll tilboðin á byko.is B ir t m eð fy ri rv ar a um in ns lá tt ar -/ pr en tv ill ur o g/ eð a m yn db re ng l.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.