Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Page 4
4 13. júlí 2018FRÉTTIR
Kylfingurinn
og frægu
foreldrarnir
Þann 19. júlí næstkom-
andi verður stórt skref stig-
ið í íslenskri golfsögu þegar
kylfingurinn Haraldur Frank-
lín Magnús tekur þátt í Opna
breska meistaramótinu í golfi.
Haraldur Franklín verður þar
með fyrsti ís-
lenski karl-
kylfingurinn
sem spilar
á einu af
risamótun-
um í golfi
en þátt-
tökurétt-
inn tryggði
hann sér
með því að
enda í öðru
sæti á afar
sterku úr-
tökumóti
fyrir stór-
mótið.
For-
eldrar Haraldar Franklíns eru
þjóðþekktir. Faðir kylfingsins
er leikarinn Kristján Frank-
lín, sem síðast skelfdi þjóðina,
og í raun heimsbyggðina, sem
illmennið í sjónvarpsþáttun-
um Ófærð. Móðir Haraldar
Franklín er fjölmiðlakonan
góðkunna, Sigríður Arnardótt-
ir, betur þekkt sem Sirrý, sem
um árabil hefur heillað þjóð-
ina með alúðlegri framkomu
og persónutöfrum.
Lítt þekkt
ættartengsl:
H
ann er voða rólegur og ekki
oft í þessum gír. Þarna voru
bara svo margir að taka
þátt og enginn hafði slas-
ast nema bara eitthvað lítilega,
þannig að honum fannst þetta
líta sakleysilega út,“ segir Jónheið-
ur Pálmey Ragnarsdóttir, unnusta
Adolfs Arnar Adolfssonar en Ad-
olf varð fyrir harkalegri árás nauts
í spænska smábænum Denia í
fyrrakvöld. Spænski fréttamiðil-
inn Denia birtir meðfylgjandi ljós-
myndir af átökunum en atvikið
hefur vakið talsverða athygli meðal
bæjarbúa. Undanfarna daga hefur
árleg nautahlaupshátíð farið fram í
Denia en þá er nautum slept laus-
um niður aðalgötu bæjarins á með-
an hugrakkir þátttakendur forða
sér undan á hlaupum. Algengt er
að þátttakendur nálgist hálftrylltar
skepnurnar og ögri þeim.
Í frétt Denia kemur fram að 35
ára gamall erlendur karlmaður
hafi slasast í nautahlaupinu sem
átti sér stað síðastliðið miðviku-
dagskvöld. Fram kemur að hann
hafi hlotið áverka undir hönd-
um og á baki og verið fluttur á
sjúkrahús til aðhlynningar. Hann
sé í stöðugu ástandi.
Í samtali við DV kveðst Jón-
heiður ekki hafa verið viðstödd
þegar atvikið átti sér stað, en parið
hefur verið í sumarfríi á Spáni
undanfarna daga.
„Við vorum búin að fara þarna
áður sem áhorfendur og við vor-
um fullviss um að ekki væri verið
að pína dýrin og engin vopn not-
uð, bara verið að hlaupa undan
þeim. Annars hefði ég strax labb-
að út og við aldrei farið aftur. Ég
var búin að banna Adolf að taka
þátt því ég var hrædd um að eitt-
hvað myndi gerast. En hann fór
svo án mín og stóðst ekki
freistinguna!,“ segir Jón-
heiður.
Hún segir Adolf að-
eins hafa ætlað að snerta
nautið, enda hafði hann
séð marga viðstadda gera
slíkt hið sama. „Hins vegar
snéri það pínu upp á sig
og hann missti undan sér
fæturna og datt. Nautið
notaði tækifærið og stakk
hornunum undir hann
og henti honum yfir sig.
Það náði að gera þrjár
ágætis holur í kallinn.“
Adolf áttaði sig ekki
alveg á hvað hafði gerst,
stóð upp og stökk út í
vatnið og ætlaði bara að
synda í land og fara heim.
Hann var hins vegar
sóttur á bát og beint í
sjúkrabíl,“ segir hún en
svæðinu var í kjölfarið
lokað tímabundið.
„Þetta leit verr út en
það var af því að hann
var dreginn í burtu og
honum skýlt með hvítum
tjöldum á meðan hann var færð-
ur í sjúkrabílinn,“ segir Jónheið-
ur jafnframt en þegar henni var
tilkynnt um slysið leit út fyrir að
það hefði verið mun alvarlega en
raun bar vitni. „Ég varð gríðarlega
hrædd því ég fékk ekkert meira
að vita í einhverja tvo klukku-
tíma, bara það að hann hefði verið
stunginn og ég gæti ekki
hitt hann.“
Hún segir Adolf hafa
sloppið afar vel miðað
við aðstæður og eru þau
bæði frekar brött þrátt
fyrir þetta óvænta atvik.
„Hann er við fína heilsu
og má teljast heppinn af
því að ef hornin hefðu
farið annars staðar inn
þá hefðu líffæri getað
skaddast.“
Jónheiður segir mik-
ið líf og fjör hafa verið í
bænum undanfarna daga
í tengslum við hátíðina en
óhjákvæmilega fylgja slys
þessum hamagangi.
„Það er samt ekki mik-
ið um stungusár held ég.
Það allavega vita allir af
þessu hér. Ég er að spá i
að vera bara heima í húsi
þar til við förum aftur
heim!“
Þá kom hún eftirfarandi
athugasemd á framfæri fyrir hönd
Adolfs:
„Þá er ég búinn að þessu og geri
þetta ekki aftur!“ n
Adolf varð fyrir harka-
legri nautaárás á Spáni
n Árlegt nautahlaup fer fram í spænska bænum Denia
n Stunginn þrisvar og hent upp í loft„Þá er ég búinn
að þessu og
geri þetta ekki aftur!
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Hver er
hún
n Hún er fædd 25.
júlí 1957. Ættuð frá
Goðdal í Bjarnarfirði á
Ströndum.
n Hún vakti fyrst
athygli á Alþýðublaðinu sem þá var
undir ritstjórn Hrafns Jökulssonar.
n Hún þótti óvæginn gagnrýnandi
og gaf hauskúpur þegar skáldverk
vöktu litla hrifningu hjá henni.
n Hún var ráðin ritstjóri DV með
Eggerti Skúlasyni en hætti seint
á síðasta ári og færði sig yfir til
Fréttablaðsins.
n Hún þykir einn besti blaðamaður
landsins og var til umfjöllunar í DV
þar sem hún tætti í sig íslenskar
fjölmiðlakonur.
SVAR: KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR