Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Síða 6
6 13. júlí 2018FRÉTTIR
U
ndir lok apríl síðastliðinn
opnaði nýtt veitingahús í
splunkunýju húsnæði við
Mýrargötu 31 í Reykjavík.
Veitingahúsið fékk heitið LOF og
sérhæfði staðurinn sig í spænskri
matargerð. Tæplega þremur
mánuðum síðar hefur staðnum
verið lokað og samkvæmt heim-
ildum DV blasir gjaldþrot fyrir-
tækisins við. Þá sitja margir starfs-
menn fyrirtækisins og birgjar eftir
með sárt ennið. Hafa starfsmenn
haft samband við stéttarfélag sitt,
Eflingu, til þess að fá aðstoð.
Borguðu hvorki birgjum
né starfsfólki laun
Í kringum rekstur veitingastaðar-
ins var fyrirtækið Lof Restaurant
ehf. stofnað. Eigendur þess voru
Enzo Rinaldi, Birgir Örn Arnars-
son og tengdasonur hans, Jakob
Helgi Bjarnason. Samkvæmt upp-
lýsingum frá fyrrum starfsmönn-
um félagsins kom hugmyndin að
opnun staðarins frá Rinaldi og fé-
laga hans Garcia og leituðu þeir
til Birgis Arnar og Jakobs Helga til
þess að leigja húsnæðið við Mýrar-
götu sem var í þeirra eigu og var
nýreist. Tengdafeðgarnir höfðu þá
mikinn áhuga á að taka þátt í ver-
kefninu og varð það niðurstaðan.
Samkvæmt heimildum DV var
daglegur rekstur í höndum Rin-
aldi og Garcia en Jakob Helgi sá
um fjármál félagsins. Matreiðslu-
mennirnir tveir hafa verið farsæl-
ir í rekstri annarra veitingahúsa og
þess vegna nutu þeir velvildar hjá
hinum ýmsu birgjum fyrirtækisins
varðandi hráefni og önnur tæki
og tól. Það hafi síðan runnið á þá
tvær grímur þegar birgjar fóru að
hafa samband við þá persónulega
vegna vangoldinna reikninga fé-
lagsins og skömmu síðar blossaði
upp reiði starfsmanna sem höfðu
ekki fengið laun sín greidd. Það
var ekki síst vegna þeirrar stað-
reyndar að Jakob Helgi brunaði
um á glænýrri Porsche-bifreið,
sem kostaði um 14 milljónir króna
á sama tíma og starfsfólk fékk ekki
greidd laun.
Fékk ekki aðgang að bókhaldi
og reikningi félagsins
Rinaldi krafðist þess þá að fá
aðgang að reikningum
fyrirtækisins en
við því
varð ekki orðið. Í byrjun júlí-
mánaðar lokuðu Birgir og Jakob
Helgi síðan veitingastaðnum og
stefnir hann nú í þrot. Starfsmenn
félagsins hafa leitað til stéttarfé-
lagsins Eflingar vegna ógreiddra
launa og launatengdra gjalda.
DV hafði samband við Rinaldi
og Garcia við vinnslu fréttarinnar.
Þeir vildu ekki tjá sig um málið en
staðfestu þó að veitingastaðnum
hefði verið lokað og að eigendur
staðarins hefðu deilt um fjárreiður
hans. Þá sögðust þeir harma það
að starfsfólk fyrirtækisins sæti eftir
með sárt ennið og kváðust ætla að
gera allt sem í þeirra valdi stendur
til þess að réttindi þeirra yrðu ekki
fyrir borð borin.
„Ég hef ekkert komið nálægt
rekstrinum og þekki það ekki neitt.
Ég er fyrst og fremst húseigandi,“
sagði Birgir Örn Arnarsson þegar
DV spurði hann hvort staðurinn
væri kominn í þrot. Þá sagði hann
að tengdasonurnn, Jakob Helgi,
væri vissulega í stjórn veitinga-
staðarins en kæmi ekkert nálægt
daglegum rekstri að því er hann
best vissi. Aðspurður hver hefði
séð um bókhald staðarins vísaði
hann á Enzo og Jakob Helga.
Hunsaði beiðni um viðtal
Jakob Helgi hafði sömu sögu að
segja og tengdafaðir hans. Eft-
ir ítrekaðar tilraunir til þess að ná
í hann svaraði hann loks blaða-
manni DV í gegnum tölvupóst
með þessum orðum: „Ég á hús-
næðið undir veitingastaðinn og
kem þannig inn sem minnihluta-
eigandi í LOF. Ég kem ekki að
rekstrinum.“ Hann brást ekki við
óskum blaðamanns um símavið-
tal og svaraði ekki frekari spurn-
ingum um málið, eins og hvernig
það gengi upp að hann væri einn
prókúruhafi fyrirtækisins en kæmi
ekki nálægt rekstri veitingastaðar-
ins.
Jakob Helgi er einn eigandi
byggingafyrirtækisins Modulus
ehf. þar sem hann starfar einnig
samhliða fjárfestingum sínum.
Samhliða þessum störfum var
hann ráðinn framkvæmdastjóri
SUS – Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna í september 2017. Á síð-
asta landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins sóttist Jakob Helgi eftir sæti í
Atvinnuveganefnd flokksins og
þar sagði í stuttum kynningartexta
um hann: „Ég hef þrátt fyrir ungan
aldur reynslu af því að vera
atvinnurekandi. Ég hef
rekið eigið fyrirtæki
í 3 ár og þekki hvað
þarf til að koma
nýju fyrirtæki á
laggirnar. Ég vil að
Sjálfstæðisflokk-
urinn sé leiðandi í
því að minnka bil á
milli launa og heild-
ar launakostnaðar
fyrirtækja.“ n
Setti veitinga-
stað á hausinn á
nokkrum mánuðum
Framkvæmdastjóri SUS
n Hvorki birgjar né starfsmenn fengu nokkuð greitt
n Glænýr Porsche-bíll Jakobs hleypti illu blóði í starfsfólk
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is
Porsche Panamera Turbo S E-hybrid
Það hleypti illu blóði í starfsmenn að sjá einn
eiganda fyrirtækisins bruna um á þessum lúx-
usbíl á sama tíma og laun fengust ekki greidd.
Jakob Helgi Bjarnason Í september
2017 var hann ráðinn framkvæmdastjóri
Sambands ungra Sjálfstæðismanna.
Hann er að auki einn af eigendum Mod-
ulus ehf. sem er byggingarfyrirtæki sem
sérhæfir sig í timburbyggingum. Hann
starfaði þar samhliða starfinu hjá SUS
og fjárfestingum í veitingageiranum.
Veitingastaðurinn LOF
Opnaði í lok apríl en lokaði
hurðum sínum í byrjun júlí.