Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Side 18
18 13. júlí 2018FRÉTTIR Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkrautt Högnuðust um 207 milljónir vegna fjárhættuspila Á dögunum óskaði Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogsbæ, eftir upplýs- ingum frá bænum varðandi mál- ið. Spurði Sigurbjörg hvernig það hafi getað viðgeng- ist að stofnanir bæj- arins, eins og heil- brigðiseftirlit og byggingarfull- trúi, hafi ekki gefið réttar upplýsingar til bæjarráðs þegar um- sagnarbeiðni Vídeó- markaðsins um vín- veitingaleyfi hefur verið lögð aftur og aftur fyrir bæjarráð. Síðustu tíu ár hefur bæjarráð Kópa- vogs alltaf gefið jákvæða um- sögn vegna umsóknar Vídeó- markaðins án athugasemda. DV hafði samband við Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóra Kópa- vogs, vegna málsins. Upplýsti Ár- mann blaðamann um að bæði byggingarfulltrúi Kópavogsbæj- ar og forstjóri heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogsbæjar hafi komið á fund bæjarráðs til að útskýra mál sitt. Ekki væri þó hægt að gefa upp hvað kom fram á fundinum þar sem trúnaður gild- ir um bæjarráðsfundi. Aðspurð- ur hvort honum þætti eðlilegt að reknir séu staðir eins og Videó- markaðurinn í Kópavogi, sem selja áfengi og börn geta heimsótt án takmarkana, sagði hann: „Mér finnst það ekki fara saman.“ Sam- kvæmt bestu vitund blaðamanns er Kópavogur eina sveitarfélagið í landinu þar sem sjoppa sem sel- ur eingöngu pylsur er með vín- veitingaleyfi í flokki þrjú. Eins og hefur áður komið fram í umfjöllun DV um málið hefur komið í ljós að bæði Heilbrigð- iseftirlit Hafnarfjarðar og Kópa- vogs, ásamt byggingarfulltrúa Kópavogs hafi brotið lög og reglur þegar kom að umsagnarferli Vid- eómarkaðsins um umsókn þeirra fyrir vínveitingaleyfi. Ástæðan fyrir því að þessi gamla vídeóleiga þarf vínveitingaleyfi er sú að með því leyfi geta þeir séð um rekstur spilakassa. Virðist sá rekstur ganga ágætlega og höfðu eigendur Vid- eó- markaðsins vel upp úr krafs- inu. Högnuðust þeir um 207 milljónir króna á árunum 2015 og 2016 vegna fjárhættuspila. Í því samhengi er rétt að geta þess að Hanna Sigurðardóttir, sem á 50% hlut í Videómarkaðnum ehf., er einnig starfsmaður á bæjarskrif- stofu Kópavogsbæjar. Engar athugasemdir til sýslu- manns Sýslumaðurinn á höfuðborgar- svæðinu sér um útgáfu vín- veitingaleyfa í Kópavogi og safnar saman gögnum frá umsagnaraðil- um eins og Heilbrigðiseftirlitinu, byggingarfulltrúa, bæjarráði, lögreglu, vinnueftirlitinu og slökkviliðinu. DV hafði sam- band við Sigurð G. Hafstað fagstjóra hjá þinglýsinga- og leyfissviði hjá Sýslu- manninum á höfuð- borgarsvæðinu sem sér um að gefa út leyfin og spurði hann út í málið. „Eftirlitsaðilar skulu til- kynna leyfisveitanda um alvarlegar athugasemd- ir sem þeir kunna að gera við rekstur leyfishafa og ann- að sem er tilefni athugasemda af þeirra hálfu við starfsemi og áhrif kann að hafa á rekstrarleyfið.“ Hann staðfestir að sýslumanns- embættið hafi ekki fengið nein- ar athugasemdir varðandi vín- veitingaleyfi Videómarkaðsins og segir: „Síðan umrætt leyfi var endurnýjað hefur leyfisveitanda ekki borist nein gögn frá eftirlits- eða umsagnaraðilum sem tengj- ast athugasemdum um rekstur staðarins eða hnekkt geta efni fyr- irliggjandi umsagna.“ „Jájá, það eru einhverjar pylsur og eitthvað svoleiðis“ Lögreglan á Höfuðborgarsvæð- inu fer með eftirlit á starfsemi Vídeómarkaðsins samkvæmt lög- um um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Í umsögn sinni vegna leyfis Videómarkaðsins á sínum tíma gerði lögreglan engar athugasemdir og hefur ekki gert athugasemdir við rekstur eins stærsta spilakassasalar á landinu undanfarin tíu ár. Það er þrátt fyr- ir að gögn sýni fram á að staður- inn hefur aldrei uppfyllt kröfu laganna öll þau tíu ár sem Vid- eómarkaðurinn hefur verið með vínveitingaleyfið. DV hafði samband við Lög- regluna á höfuðborgarsvæðinu til að fá svör við því hvers vegna lög- reglan hafi ekki tekið eftir þeim augljósu brotum sem eiga sér þar stað í hvert skipti sem þeir gerðu út staðinn og skiluðu já- kvæðri umsögn til sýslumanns- ins. Í samtali við DV staðfesti Gunnar Hilmarsson aðalvarð- stjóri að hann hafi farið í eftirlits- ferð eftir að DV birti frétt um að unglingar gátu keypt áfengi í Vid- eómarkaðnum og tekið með sér. Blaðamaður spurði hann þá hvort hann teldi að staðurinn uppfyllti skilyrði laganna um að flokk- ast sem vínveitingastaður svar- aði hann: „ Já, þeir gera það að mínu viti“. Samkvæmt lögunum er gerð sú krafa að til þess að stað- ur sé skilgreindur sem veitinga- staður þarf hann að vera með fjöl- breyttar veitingar í mat og drykk og fulla þjónustu og auk þess þarf að vera starfandi maður með full- nægjandi þekkingu í framleiðslu. Þegar blaðamaður spurði að- alvarðstjórann hvort staðurinn uppfyllti þá skilgreiningu svaraði hann: „Nei ég hef svo sem… jájá, það eru einhverjar pylsur og eitt- hvað svoleiðis sem þeir eru að búa til þarna, það er víða þannig. Það er ekki matreiðslumaður starfandi þarna.“ Velta hálfum milljarði fyrir HHÍ Happdrætti Háskóla Íslands á 52 spilakassa af þeim rúmlega 90 kössum sem eru á Videómark- aðnum. Sú tala er nokkuð undar- leg í ljósi þess að samkvæmt leyfi frá Slökkviliði höfuðborgarsvæð- isins mega eingöngu 49 manns vera í húsnæðinu á hverjum tíma. Um mikilvægt viðskiptasamband er að ræða þar sem Videómarkað- urinn veltir gríðarlegum fjárhæð- um fyrir HHÍ. Alls velta spilakass- ar um 9 milljörðum á ári hjá HHÍ en Videómarkaðurinn er með um 10% allra spilakassa sem star- fræktir eru. Veltan gæti því verið allt að einn millj- arður á ári og hagnast báðir aðilar vel. Bryn- dís Hrafnkelsdóttir, forstjóri HHÍ, viður- kenndi í samtali við blaðamenn að það „hljómaði illa“ að mun fleiri spilakass- ar væru í rekstri hjá Videómarkaðinum en rúmast þar innandyra samkvæmt leyfum. Þegar Bryndís var spurð hvernig það gæti verið að Happdrætti Háskóla Íslands og starfsmenn fyrirtækisins hafi aldrei tekið eftir því undanfarin áratug að einn stærsti umboðs- aðili þeirra uppfyllti ekki kröf- ur sem gerðar eru til staða sem geta verið með spilakassa frá þeim sagði hún: „Ekki þarna í Videó- markaðnum, nei. Ég bara viðurkenni það að ég hef ekki haft hug- mynd um að það gæti mögulega verið.“ Staðfesti hún við blaða- mann að hún sem forstjóri Happdrætt- is Háskóla Íslands hafi margsinnis farið að skoða Videómarkaðinn sjálf. Aðspurð hvort að hún hefði ekki átt að sjá að ólíklegt væri að staðurinn upp- fyllti skilyrði laganna sagði hún: „Ég þarf bara að skoða þetta mál, það er ekki flóknara en það.“ Passa fyrst og fremst aldurstak- markanir Þegar Bryndís var spurð út í hver eftirlitsskylda Happdrættis Há- skóla Íslands væri gagnvart sín- um umboðsmönnum sagði hún í tölvupósti að Sýslumaðurinn á Suðurlandi sæi alfarið um eftirlit með öllum spilakössum á landinu. Þegar blaðamaður benti henni á að það væri nú ákveðin eftirlits- skylda sem fyrirtæki hennar hefði gagnvart sínum umboðsmönn- um svaraði hún: „Til dæmis með aldurstakmörkin það er það sem við pössum.“ Þegar blaðamað- ur benti henni á að ekkert aldurs- takmark gilti til að fara inn í sölu- turninn Vídeómarkaðinn svaraði hún um hæl: „Víst er aldurstak- mark inn á Videómarkaðinn. Það eru fleiri staðir til þar sem þú þarft að labba í gegnum ein- hverja sjoppu, ég man ekki hvort það voru Íslandsspil sem voru með þannig stað og það hefur ver- ið horft fram hjá því. Þetta hefur allavega verið viðurkennt. Hver er að stoppa þetta ? Þetta hefur ver- ið með þessum hætti síðan 1994.“ Bryndís var svo spurð í lok- in hvort Happdrætti Háskóla Ís- lands ætli að bregðast við þessum ábendingum sem hafa komið fram í fjölmiðlum og í hverju þau við- brögð felast, sagði hún: „Ég ætla að láta skoða þetta“. „Eftirlit hefur ekki verið full- nægjandi“ DV hafði enn fremur samband við Sýslumanninn á Suðurlandi, sem samkvæmt lögum á að sjá um eftirlit með öllum spilaköss- um á landinu, og spurði hvern- ig eftirlitinu væri háttað. Í samtali við Kristínu Þórðardóttur, sett- an sýslumann á Suðurlandi, sagði hún: „Hins vegar skal ekki dregin fjöður yfir það að eftirlit hefur ekki verið fullnægjandi. Til þess skortir embættið fjárheimildir. Til þess að halda uppi virku eftirliti þarf fjármagn. Eins er orðið tíma- bært að heildarendurskoðun fari fram á löggjöfinni í málaflokkn- um.“ Svo virðist sem eftirlit með spilakössum á Íslandi, sem velta um 9 milljörðum á ári, sé lítið sem ekkert og keppast aðilar við að benda á hvorn annan þegar kem- ur að því að fá svör varðandi leyfis- veitingar og eftirlit. n „Ekki þarna í Videó- markaðnum, nei. Ég bara viður- kenni það að ég hef ekki haft hugmynd um að það gæti mögu- lega verið.“ Bryndís Hrafnkelsdóttir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.