Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Qupperneq 29
Borgarfjörður 13. júlí 2018 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is LANDNÁMSSETRIÐ: Frábær áningarstaður fyrir fjölskyldur í sumar Landnámssetrið í Borg-arnesi er fjölbreytt menningarsetur og af- þreyingarmiðstöð sem hentar ekki síst fjölskyldum sem vilja eiga saman skemmtilega stund enda státar Land- námssetrið af frábærum veitingastað þar sem boðið er upp á hollan mat úr úrvals hráefni. Hljóðleiðsagnirnar um sögusýningarnar í setr- inu, Landnámssýninguna og Egilssögusýninguna, eru fáanlegar á 15 tungumál- um en auk þess er sérstök barnaleiðsögn á íslensku. Enginn aðgangseyrir er að sýningunum fyrir börn undir 14 ára sem eru í fylgd með fullorðnum. „Krakkar hafa afskaplega gaman af sýningunum og barnaleiðsögnin höfðar til krakka allt niður í 5 ára ef þau hafa gaman af sögum. Það hefur verið gaman að fylgjast með öllum fjölskyldunum sem hafa komið hingað þar sem foreldrar og afar og ömm- ur njóta þess að fara með börnin á sýningarnar,“ segir Sigríður Margrét Guðmunds- dóttir, framkvæmdastjóri Landnámssetursins. Að sögn Sigríðar eru er- lendir ferðamenn í meirihluta á meðal gesta Landnáms- setursins en staðurinn höfðar þó ekkert síður til Íslendinga. Veitingastaðurinn er fjöl- skylduvænn og notalegur og er opinn alla daga frá kl. 10 til 21. „Við erum með hollustu- hlaðborðið okkar alla daga frá 11:30-15:00. Vinsældir þess eru alltaf að aukast enda er það á hagstæðu verði,“ segir Sigríður. Á hlað- borðinu eru fjölbreyttir græn- metisréttir, salöt, heit súpa og ilmandi nýbakað brauð. Draugaleg sýning sem krakkar eru spenntir fyrir Sögusýningarnar tvær veita einstaka innsýn í fortíð þjóðarinnar á afar lifandi hátt með áhrifamiklum myndverkum. Á Egilssögu- sýningunni eru gestir leiddir í gegnum nokkurs konar völundarhús inn í ævin- týraheim sögunnar. And- rúmsloftið er lævi blandið og sýningarrýmið er myrkt, dulúðugt og draugalegt, sem er sennilega ein af ástæð- unum fyrir því hvað krakkar hafa gaman af sýningunni. Landnámssýningin byggir á þeim einstöku heimildum um upphaf Íslandsbyggðar sem er að finna í Íslendinga- bók og Landnámu. Bækurn- ar voru skrifaðar á 12. öld, sennilega báðar af Ara fróða. Það eru ekki margar þjóðir sem eiga svo nákvæm- ar skrifaðar heimildir um uppruna sinn aðeins um 200 árum eftir að atburðirnir áttu sér stað. Efni sýningarinnar byggir á þessum heimildum en engin ábyrgð er tekin á sannleiksgildi þeirra. Með lýsingu og lifandi mynd- um er leitast við að skapa spennandi andrúmsloft, auk þess sem þar er að finna fá- gætt líkan af Íslandsfari eftir Gunnar Marel Eggertsson. Leiksýningar og uppákom- ur með rithöfundum sem sent hafa frá sér vinsælar sögulegar skáld- sögur eiga sér stað á Söguloftinu í Land- námssetrinu en sú dagskrá lifnar við á haustin og er þá auglýst sérstaklega. Fallegar gjafavörur Í Landnámssetrinu er rekin verslun með fallegri og vand- aðri gjafavöru. „Þessar vörur eru ekkert endilega fyrir útlendinga heldur henta þær prýðilega sem gjafir handa Íslendingum líka. Við leggjum áherslu á íslenska hönnun og erum líka með afurðir hand- verksfólks úr héraðinu,“ segir Sigríður Margrét. Góður vettvangur fyrir hópa Í Landnámssetrinu er hægt að bjóða uppá allskyns afþr- eyingu fyrir fyrirtæki og hópa og staðurinn hentar prýði- lega fyrir ráðstefnur, árshá- tíðir og hópefli. Fundarað- staða á fallegu pakkhúslofti er fyrir allt að 80 manns en fyrir allt að 30 manns ef þátttakendur sitja við borð. Vinsælt er að fara í ratleiki úti við í nágrenni Landnám- setursins. Ratleikurinn er í snjallsímum og hægt að aðlaga þrautir og spurningar hópnum. Ítarlegar og fróðlegar upplýsingar um þjónustu og dagskrá Landnámssetursins er að finna á vefsíðunni landnam.is. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 437 1600 og fyrirspurnir má einnig senda á netfangið land- nam@landnam.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.