Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Qupperneq 57
13. júlí 2018 FRÉTTIR 57
Englands óhamingju verði allt að vopni
Heimsókn Donalds Trump kemur á slæmum tíma fyrir Theresu May
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
E
nglendingar eru í sár-
um eftir að knattspyrnu-
lið þeirra beið lægri hlut
fyrir Króötum í undanrás-
um heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu. Fimmtíu og tvö ár
voru liðin frá því að enskt landslið
spilaði úrslitaleik mótsins en þá
hömpuðu Englendingar titlinum
eins og frægt er. Biðin lengist því
enn fyrir ensku þjóðina sem þarf
að gera sér óspennandi leik um
þriðja sætið við Belgíu að góðu.
Það er skammt stórra högga á
milli hjá Englendingum því á 12.-
13. júlí mun Donald Trump, for-
seti Bandaríkjanna, koma í op-
inbera heimsókn og funda með
helstu ráðamönnum þjóðarinn-
ar. Segja andstæðingar Trump
að ekki sé til grimmari refsing en
heimsókn forsetans eftir reiðar-
slagið í Moskvu. Englands óham-
ingju verði allt að vopni.
Fær ekki að snæða í Bucking-
ham-höllHeimsókn Trumps hef-
ur mætt mikilli andstöðu
frá því að Theresa May,
forsætisráðherra Bret-
lands, bauð honum til
landsins þegar hún heim-
sótti Hvíta húsið í janúar
síðastliðnum. Í ljósi and-
stöðunnar var horfið frá
því að öllu yrði tjaldað
til við heimsóknina, eins
og kvöldverði í Bucking-
ham-höll og skrúðgöngu
í miðbænum, en þess í
stað er heimsóknin titl-
uð sem „vinnuheimsókn“.
Mun Trump meðal annars
funda með May og hitta El-
ísabetu drottningu á stutt-
um fundi áður en hann
flýgur úr landi.
Þegar May bauð Trump í
heimsókn var tilgangurinn
meðal annars sá að tryggja
hollustu hans og Bandaríkjanna
við samherja sína í NATO. Mikið
vatn hefur síðan runnið til sjáv-
ar og hægt er að færa rök fyrir því
að heimsóknin gæti ekki komið á
verri tíma fyrir breska forsætisráð-
herrann. May berst nú fyrir póli-
tísku lífi sínu heima fyrir eftir að
hafa tilkynnt umdeilda Brexit-á-
ætlun sína og afsögn tveggja ráð-
herra, þeirra David Davis og Boris
Johnson. Sá síðastnefndi er sagð-
ur leiða uppreisn Brexit-sinna
gegn May.
Vill hitta vin sinn Boris John-
sonÞá var Trump samur við sig
á Nato-fundi í Brussel í vikunni.
Móðgaði hann verðandi gestgjafa
sína með því að segja að landið
væri í upplausn vegna Brexit og að
hann vonaðist til þess að hitta vin
sinn, títtnefndan Boris Johnson,
á meðan heimsókn hans stæði
yfir. Þá sagði hann að viðræður
við Vladimir Putin, forseta Rúss-
lands, yrðu auðveldari en viðræð-
ur við May og aðra leiðtoga NATO-
-ríkja. Þá féllu ummæli hans um
að Þýskaland væri í heljargreipum
Rússlands útaf því hversu háðir
Þjóðverjar eru gasi frá Rússlandi í
grýttan jarðveg.
Orðum Trumps var ekki vel
tekið enda eru leiðtogar NATO-
-ríkjanna í fullkominni óvissu
um hvort Bandaríkin, undir hans
stjórn, myndu halda grundvallar-
gildi sambandsins í heiðri ef Vlad-
imir Putin og Rússar færa sig upp
á skaftið, það er að árás á eitt
NATO-ríki jafngildi árás á þau öll.
Trump fer ekki leynt með að hann
vill að G7-ríkin svokölluðu hleypi
Rússum aftur inn í hópinn sem er
nánast útilokað fyrir May í kjöl-
far þess að Rússar eru sakaðir um
taugaeitursárásina í Salisbury á
dögunum.
Það verður því fróðlegt að fylgj-
ast með hvernig heimsókn Trump
til Bretlands heppnast. Hún verð-
ur söguleg nánast hvernig sem
hún fer. Eins og áður segir mæt-
ir heimsóknin mikilli andstöðu í
Bretlandi. Búist er við fjölmenn-
um mótmælum gegn Trump hvar
sem hann stígur niður fæti.
Enginn hefur þó gengið lengra
en ónefndur listamaður sem borg-
aði enskum bónda hátt gjald fyr-
ir afnot af kornakri einum. Hafði
listamaðurinn reiknað það út að
allar líkur væru á því að flugvél
Trump myndi fljúga yfir svæðið
og þar með væri kominn fullkom-
inn „náttúrulegur strigi“ fyrir lista-
manninn til þess að koma skila-
boðum sínum á framfæri. Ekki ert
hægt að segja að þessi einstakling-
ur hafi ákveðið að búa til eitthvað
tímalaust meistaraverk heldur lét
hann einföld textaskilaboð duga:
„Блядь Trump“. Rússneska orðið
þýðir bókstaflega „hóra“ en er í
rússnesku notað á sama hátt og
enska orðið „fuck“. Svo mörg voru
þau orð.n
Boris Johnson. Ráðherrann fyrr-
verandi er sagður leiða uppreisn
Brexit-sinna gegn Theresu May.
Listamaðurinn greiddi háa
fjárhæð til þess að koma
skilaboðunum „Блядь
Trump“ á framfæri.
Donald Trump
og Theresa May
ræða saman.
S. 565 2217 - pappir@pappir.is - Kaplahraun 20 - 220 Hanarfjörður
Prentun endist í 7, 10 & 15 ár
Er fyrirtækið þitt að nota
löggiltan pappír ?
Eigum allar stærðir á lager