Morgunblaðið - 01.09.2018, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 01.09.2018, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 15 bryggju á Akureyri í október síð- astliðnum, en fyrr á því ári fengu Samherji og dótturfélagið ÚA togarana Björgúlf og Kaldbak af- henta. Öll voru skipin smíðuð í Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrk- landi og segir Þorsteinn þau hafa reynst ágætlega og í samræmi við væntingar, til að mynda hvað varð- ar sjóhæfni og eldsneytisnotkun. „Við vorum því með meiri veiði- getu á þessu fiskveiðiári en á því síðasta. Það hefur skilað sér.“ Miklar fjárfestingar í Rússlandi Spurður hvaða áskoranir blasi við Samherja um þessar mundir nefnir Þorsteinn fyrst og fremst breyt- ingar á skipastólnum í uppsjávar- veiðum. „Hér á Íslandi eru það svo kjarasamningarnir sem fela í sér stóra áskorun fyrir félagið. En ekki síst eru þeir sem eru í kringum okkur að verða sífellt betri í veiðum og vinnslu á bolfiski. Það forskot sem við höfum haft fer ört minnk- andi,“ segir Þorsteinn. Nefnir hann í því sambandi ná- grannalönd á borð við Noreg en helst Rússland. „Þar hefur verið fjárfest mjög mikið og útlit er fyrir að svo verði áfram. Hið sama á við um mörg lönd í kringum okkur. Á sama tíma hefur fiskvinnsla á Ís- landi ekki verið að aukast, það er nú bara staðreynd.“ Vilja semja til lengri tíma Þorsteinn bendir einnig á að erlendis fari viðskiptavinunum fækkandi. „Við sjáum áframhaldandi hagræðingu í verslun í markaðslöndunum okkar. Verslanakeðjur sem við höfum skipt við eru að sameinast og verða stærri og stærri, sem þýðir að innkaupaafl þeirra er að aukast. Því fylgja sífellt harðari kröfur um afhendingaröryggi auk þess sem þær vilja í auknum mæli semja um verð langt fram í tím- ann,“ segir hann. „Þetta er hluti af þeim veruleika sem við lifum í núna, verslanakeðj- urnar eru að gera kröfur um lengri og lengri samninga.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Samherjatogarar Björg EA 1, lengst til vinstri, Björgúlfur EA 312 og Kaldbakur EA. Sá síðastnefndi er gerður út á vegum ÚA en hinir í nafni Samherja. Myndin var tekin þegar skipunum var siglt inn á Pollinn á Akureyri til sýnis fyrir bæjarbúa. Tekin var skóflustunga að nýju frystihúsi Samherja á Dalvík fyrr í sumar, en börn af leikskólanum Krílakoti áttu heiðurinn að skóflu- stungunni ásamt starfsfólki Sam- herja, þeim Sigurði Jörgen Ósk- arssyni vinnslustjóra, Gesti Geirssyni, framkvæmdastjóra landvinnslu, og Ragnheiði Rut Friðgeirsdóttur gæðastjóra. Áður hafði verið unnið að land- fyllingu á svæðinu og er svæðið nú tilbúið fyrir næsta áfanga fram- kvæmdarinnar, en áætluð fjár- festing í húsnæði og búnaði er metin á um 3.500 milljónir króna. Fram kom í ræðu Þorsteins Más við undirritun lóðaleigu- samnings við bæjarfélagið í maí á síðasta ári að með samningnum væri tekið stórt skref í átt að nýrri og fullkomnari vinnslu á Dalvík. Dalvíkurbyggð hefði þá í nokk- urn tíma unnið að hugmyndum að endurbótum á hafnarsvæðinu, meðal annars til að mæta mikilli fjölgun ferðamanna og tengdri starfsemi. Með því að flytja starfsemi Samherja á hafnarsvæðið skapist möguleikar fyrir bæjarfélagið til að skipuleggja svæðið allt með öðrum hætti, til hagsbóta fyrir samfélagið í heild. Upphaf Margar hendur vinna létt vek og leikskólabörnin lögðu lið. Stungu skóflum að nýju frystihúsi Marás ehf. Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230 www.maras.is - postur@maras.is Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað SANDFELL SU 75BJÖRG EA 7 HAFBORG EA 152 YANMAR aðalvél MEKANORD niðurfærslugír VULKAN ástengi KORSØR skiptiskrúfa SLEIPNER bógskrúfa SEAMECH vélstýring YANMAR aðalvél YANMAR hjálparvél REINTJES niðurfærslugír BERG skiptiskrúfa STAMFORD ásrafali SCANTROL autotroll NORSAP skipstjórastólar Allt fyrir nýsmíðina ZF stjórntæki SIMRAD sjálfstýring CENTA ástengi SIDE-POWER hliðarskrúfur 8" hljóðkútur EUROPAFILTER smursía SEPAR forsíur PRESTOLITE alternator TEIGNBRIDGE skrúfa LASDROP öxulþétti POLY FLEX vélapúðar FLOSCAN eyðslumælir YANMAR aðalvél ZF niðurfærslugír Mótorpúðar fyrir flestar vélar Alternatorar og DC rafalar TOIMIL Löndunarkranar Sjókopar - sjóinntök - sjósíur - lokar -zink 12V og 24V lensidælur R R Stjórntæki og gírar Rafstöðvar og ljósavélarHliðarskrúfurAðalvélar í skip og báta Allar gerðir af legum Skrúfur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.