Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 24

Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 N ýtt skip FISK Sefaood, Drangey SK-2 kom í höfn á Skagafirði í ágúst í fyrra eftir fjór- tán daga siglingu frá tyrkneskri skipasmíðastöð. Gylfi Guðjónsson er útgerðarstjóri FISK Seafood og segir hann að Drangey hafi fyrst haldið til veiða í byrjun þessa árs enda hafi tekið nokkra mánuði að koma öllum vinnslutækjum fyrir um borð. Skipið var það þriðja í röðinni af fjórum framúrstefnulegum skipum sem smíðuð voru með svk. peru- stefni sem beinir skrokknum með afgerandi hætti inn í ölduna og voru margir forvitnir að sjá hvern- ig þessi óvenjulega lögun myndi reynast úti á sjó. Upplýsir Gylfi að eiginleikar Drangeyjar á siglingu hafi verið í samræmi við vænt- ingar. „Ekki væri sanngjarnt að bera Drangeyna saman við eldri skip útgerðarinnar enda stærra skip, en Drangey hefur ótvírætt góða siglingareiginleika og áhöfnin verður ekki vör við mikla hreyf- ingu.“ Betra sjólag og meira pláss Drangey er rösklega 62,5 metrar að lengd og 2.080 brúttótonn. 1.620 kW Yanmar aðalvél knýr skipið áfram og getur keyrt á bæði svart- olíu og gasolíu en siglingarhraði er 14 hnútar. Fimmtán manns eru í áhöfn hverju sinni og skipið stund- ar einkum þorskveiðar í norðvest- urhluta lögsögunnar. „Drangey kom í staðinn fyrir Klakk en hefur svipaða eyðslu þrátt fyrir að vera mun stærra skip,“ segir Gylfi en Klakkur var kominn til ára sinna hafandi verið fyrst sjósettur fyrir fjórum áratugum. „Klakkur var vitaskuld barn síns tíma og það hefur ekki bara orðið þróun í skipshönnun og tækjabún- aði, heldur allur aðbúnaður áhafn- Verðmæti Áhöfnin klár að leggja í hann á meðan bærinn sefur. Þeir snúa heim með skip fullt af dýrmætum fiski. Afköst Það munar um að vera á skipi sem búið er allranýjustu tækni. Fiskur í hæstu gæðum fyll- ir hvert karið á fætur öðru. „Áhöfnin verður ekki vör við mikla hreyfingu“ Eiginleikar Drangeyjar SK hafa verið í samræmi við væntingar. Stefnið beinir skrokknum inn í ölduna og bætir sjólagið til muna. Vel fer um áhöfnina um borð og nýjasta tækni léttir störfin. Dugnaður Hugað að landfestunum. Allur frágangur þykir vera til fyrirmyndar og léttir það störf áhafnarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.