Morgunblaðið - 01.09.2018, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018
Eigum að reyna að vera öðruvísi
Um fimmtán mánuðir
eru síðan íslensku fyr-
irtækin Skaginn 3X,
Nautic, Kælismiðjan
Frost, Brimrún, Naust
Marine og Verkfræði-
stofan Skipatækni ýttu
úr vör nýju markaðs-
fyrirtæki, Knarr Mari-
time. Haraldur Árnason,
framkvæmdastjóri
Knarr, segir vel hafa
gengið fyrir fyrirtækin
að ná saman mark-
miðum sínum.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
E
ins og alltaf er með ný fyr-
irtæki þá er þetta lang-
hlaup, en þegar við lítum
til baka þá hefur það
heppnast sem við lögðum
upp með. Við lögðum frá upphafi
mikla áherslu á Rússland, þar sem
endurnýjun fiskiskipaflotans þar í
landi lá fyrir, og er enn í fullum
gangi,“ segir Haraldur.
„Þetta verða þrjár útboðs við-
bætur til að byrja með, ef það má
orða það þannig, þar sem fyr-
irtækin sem vilja byggja ný skip
eða landvinnslur geta sótt um auka
kvóta út á það. Í fyrsta útboðinu
gerðum við samninga um hönnun á
sex skipum, sem gætu þó orðið
fleiri, og erum við að vinna með
skipasmíðastöðinni úti að þeim
verkefnum núna að koma okkar
búnaði inn í verkefnið og það er í
góðum farvegi,“ segir hann og reif-
ar þann árangur sem náðst hefur í
kjölfarið, en í framhaldi stofnunar
Knarr Maritime stofnaði sami hóp-
ur fyrirtækið Knarr Rus, þar sem
starfa nú þrír starfsmenn og er
Jónas Tryggvason þar í forsvari.
Mörg hundruð tonna geta
„Knarr Rus hefur tekið þátt í þeim
samningum sem Skaginn 3X,
Frost og Rafeyri hafa náð, sem er
sala á tveimur stórum uppsjáv-
arverksmiðjum, annars vegar fyrir
rússneska sjávarútvegsfyrirtækið
Gidrostroy á Kúrileyjum, og hins
vegar fyrir fyrirtækið Lenin Kolk-
hoz í Petropavlovsk,“ segir Har-
aldur og bætir við að um sé að
ræða verksmiðjur með getu upp á
500 til 600 tonna afköst á sólar-
hring með mögulegri stækkun á
afkastagetu þegar fram í sækir.
„Svo hefur Nauticn Rus skrifað
undir samning um hönnun á
krabbaveiðiskipum fyrir Austur-
Rússland, fyrir dóttur fyrirtæki
Russian Fisheries, PrimCrab sem
er í Vladivostok á Austurströnd
Rússlands. Það er í öðru kvótaferli
af þremur, en hönnunarsamning-
urinn er í raun fyrsta skrefið áður
en farið er af stað í kvótaúthlut-
unina, þar sem í ljós kemur hversu
mikinn kvóta fyrirtækin fá. Það er
þess vegna ekki ljóst sem stendur
hversu mörg þau skip verða, en
þau gætu orðið nokkuð mörg,“
segir Haraldur.
Um er að ræða algjörlega nýja
hönnun á krabbaveiðiskipi að hans
sögn. „Allt vinnsludekkið og öll
vinnuaðstaða er inni í sjálfu skip-
inu. Skipið er því ekki opið eins og
flestöll krabbaskip í dag. Það sem
er einnig nýtt í þessari hönnun er
að allar gildrur geta verið teknar
upp í gegnum skipið, í gegnum
svokallaða mánalaug, eða „moon
pool“ eins og það heitir á ensk-
unni. Í raun er þetta gat í skipinu
þar sem gildrurnar eru dregnar
upp,“ segir hann og útskýrir hvers
vegna þörf er á þessu:
„Oft eru gildrurnar lagðar út við
ísröndina en með þessu fyr-
irkomulagi má leggja í ísnum
gegnum mánalaugina, og það getur
verið erfitt þegar ísinn er þykkur
að koma gildrunum aftur upp á yf-
irborðið. En með þessu fyr-
irkomulagi er skipið búið að ryðja
ísnum frá sér og þá geturðu tekið
þær upp vandræðalaust.“ Skipið
verður útbúið til frystingar og líka
til að koma með lifandi krabba í
land.
Stórt teymi í Rússlandi
Landnámið í Rússlandi nam ekki
staðar við stofnun Knarr Rus í
Moskvu borg heldur keypti Nautic
einnig hlut í rússneskri skipaverk-
fræðistofu í Pétursborg, en úr því
varð fyrirtæki sem heitir Nautic
Rus. „Þar starfa hátt í fjörutíu
manns í dag, skipaverkfræðingar
og tæknimenn, og þeirra verkefni
núna er að vinna alla teiknivinnu
fyrir smíði sex skipa, fyrir fyr-
irtækið Norebo ásamt komandi
verkefnum,“ segir Haraldur.
Knarr ásamt aðildarfélögum mun
verða á stórri sjávarútvegssýningu
nú í Pétursborg; „Global Fishery
Forum & Seafood Expo 13-15
September og þar mun Nautic Rus
verða formlega opnað meðan á
sýningunni stendur.
Fjöldinn allur af öðrum verk-
efnum í Rússlandi er enn ótalinn,
enda hefur þessi árangur íslensku
fyrirtækjanna vakið mikla athygli.
„Þær landvinnslur sem Skaginn
3X, Frost og rafeyri eru búinn að
standa að hafa borið hróður fyr-
irtækisins víða á meðal annarra út-
gerðarmanna þar ytra, og sömu-
leiðis þessi hönnun Alfreðs
Tuliniusar og Bárðar Hafsteins-
sonar á skipunum hafa vakið mikla
athygli. Nú er svo komið að við er-
um farin að fá fjölda fyrirspurna
frá öðrum löndum og erum við að
vinna í þeim verkefnum núna. Í
framhaldinu munum við hefja
markaðsstarfsemi í þeim löndum
þar sem við höfum fundið fyrir
hvað mestum áhuga.
Skip á nokkurra mánaða fresti
Þegar litið er yfir síðustu fimmtán
mánuði segir Haraldur að þessi
tími hafi verið skemmtilegur. „En
auðvitað eru þessi verkefni lang-
hlaup, öll sem eitt. Það er eitt að
selja mönnum hugmyndina og
tæknina en svo þarf náttúrlega að
smíða þessi skip, en samkvæmt
þessum nýju rússnesku kvótalög-
um þarf að smíða þau í Rússlandi.
Við höfum fulla trú á að skipa-
smíðastöðvarnar muni leysa þau
verkefni vel af hendi og við mun-
um vinna náið með þeim að því
með okkar fólki hér heima sem
hafa mikla reynslu í smíði fiski-
Morgunblaðið/Hanna
Metnaður „Það sem við Íslendingar þurfum að gera er að nýta þetta unga kraftmikla og vel menntaða fólk sem við eigum,“ segir Haraldur Árnason.
Teikning/Knarr
Fley Svona munu skipin í verkefni Knarr fyrir Norebo koma til með að líta út, en þau verða 82 metra löng og 16 metra breið.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum