Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 1. O K T Ó B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 239. tölublað 106. árgangur
HEFUR VERIÐ
KALLAÐUR
SUPERMAN
SPENNANDI
UPPFÆRSLA OG
FERSK RÖDD
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
bbbbn 77 FINNA.ISVIÐSKIPTAMOGGINN
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Þyrluflugmönnum Landhelgisgæslunnar gafst í gær tækifæri
til að fara í reynsluflug á nýjustu björgunarþyrlu evrópska
þyrluframleiðandans Leonardo Helicopters í fylgd með
ítölskum flugmönnum fyrirtækisins. Þyrlan er af svokallaðri
nýjustu kynslóð hátækniþyrla og var prófunin gerð í
tengslum við væntanlegt útboð og kaup Gæslunnar á þremur
nýjum björgunarþyrlum. Áformað er að útboðið hefjist í byrj-
un næsta árs og á næstu mánuðum verða því þyrlur frá helstu
framleiðendum skoðaðar og prófaðar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hátækniþyrla sveimaði yfir Reykjavík í gær
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Meðalverð seldra íbúða í 101
Reykjavík var 538 þúsund krónur á
fermetrann á þriðja fjórðungi í ár.
Það er um 20 þúsund krónum hærra
en á fjórða fjórðungi í fyrra.
Fermetraverð seldra íbúða hefur
einnig hækkað í Hlíðunum, Vestur-
bænum og Grafarvogi í ár en staðið í
stað í Seljahverfinu. Verð í Breið-
holti er nú lægra en í lok árs 2017.
Þetta má lesa úr greiningu Þjóð-
skrár Íslands fyrir Morgunblaðið.
Kostar dæmigerð 100 fermetra
íbúð í Grafarvogi nú 43 milljónir.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka, segir tölur
Þjóðskrár benda til að miðborgar-
álagið sé að festa sig í sessi. Álag á
eignir miðsvæðis hafi áður verið
fremur hóflegt. Hann segir aðspurð-
ur að eftir því sem verðið sé hærra,
og hvert prósent vegi þyngra, megi
ætla að prósentuhækkanir verði
minni en síðustu misseri. Jaðarsvæði
séu að verða of dýr fyrir tekjulága.
Greiðslugetan breytist minna
„Með því styttist í að verðið fari
fram yfir greiðslugetu umtalsverðs
hóps kaupenda. Greiðslugetan hefur
enda verið að breytast mun hægar.“
Magnús Árni Skúlason, hagfræð-
ingur hjá Reykjavik Economics, seg-
ir jafnvægi að skapast á íbúðamark-
aði eftir miklar hækkanir. »30-31
Fermetraverðið komið í
538 þúsund í miðborginni
Hagfræðingur segir kaupverðið farið að nálgast þolmörk
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Frakkastígur Verðið hefur hækkað.
Nýr forseti Alþjóðaskáksambandsins FIDE, Dvorkovich,
tekur jákvætt í hugmyndir um að halda heimsmeist-
araeinvígið í skák árið 2022 á Íslandi. Þá verða liðin 50 ár
frá einvígi aldarinnar, þegar Bobby Fischer og Boris
Spassky öttu kappi í Laugardalshöll. Gunnar Björnsson,
forseti Skáksambands Íslands, segir að mikil tækifæri fæl-
ust í því að mótið yrði haldið á Íslandi.
Rússinn Dvorkovich, fyrrum aðstoðarmaður Pútíns
Rússlandsforseta, naut stuðnings Skáksambands Íslands en með kjöri hans
er 25 ára valdatímabili Kirsans Ilyumzhinovs lokið. Hann hlaut 103 at-
kvæði gegn 78 atkvæðum hins gríska Georgios Makropoulos, sem hefur
verið viðloðandi FIDE í um tvo áratugi. »20
Skoða að halda HM-einvígi í skák á Íslandi
Hallur Símonarson, innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar, telur aug-
ljóst að skoða þurfi innkaupaþáttinn sérstaklega í tengslum við fram-
kvæmdir á yfir 400 milljóna króna bragganum í Nauthólsvík. Aðspurður
telur Hallur sig vel hæfan til verksins enda sé embættið óháð borgarstjóra.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, segir að ekkert bendi til
þess að farið hafi verið í neitt útboð hjá borginni í tengslum við málið.
Ítrekar hún nauðsyn þess að fá óháðan aðila til að rannsaka málið. „Ég
treysti innri endurskoðanda sem manni og persónu en mér finnst þetta mál
vera svo stórt og það eru svo margar spurningar og svo mikill feluleikur að
það verði að fá óháðan aðila til að fara í saumana á því,“ segir Vigdís og
bendir á að innri endurskoðandi sitji m.a. fundi borgarráðs. »4
Innkaup vegna braggans verða skoðuð